Litli Bergþór - 01.06.1991, Síða 9
Torfastöðum. Þá er samþykkt að rituð sé
fundargerð á öllum fundum eftirleiðis í sérstaka
bók. Þá er ákveðið að búið taki til starfa í elleftu
viku sumars. Þá eru í stjórn: Sveinn í Miklaholti
ogÞorfinnurÞórarinsson áSpóastöðum. íþessari
fundargerð er samþykkt tillaga frá Þorfinni:
a) Fundurinn bannar féhirði stranglega að
nota reikningslán búsins eða veltufé þess í sínar
þarfir eða annarra án heimildar frá félögum
búsins.
Vorið 1911 býður Ingvar beykir á Eyrarbakka
að selja búinu smjörkvartil. Keypt vom 150
kvartil.
Árið 1913 virðist vera hætt að sýra smjörið. Þá
eru í stjórn Þorfinnur á Spóastöðum, Víglundur í
Höfða og ÞórðurHalldórsson á Stóra-Fljóti. Þá er
þeim Halldóri í Hrosshaga og Jóni í Tjarnarkoti
lánað til skilvindukaupa til tveggja ára. 23. maí
1913 eru samþykkt ný lög ijómabúsins. Ég hef
ekki fyrstu lögin, en ég tel rétt að birta þessi lög
orðrétt:
Lög Torfastaðarjómabúsins::
1. gr. Rjómabúið er stofnað í þeim tilgangi að
bœta meðferð og verkun smjörsins, auka
framleiðslu þess og útvega svo góðan markað
þess sem kostur er á.
2. gr. Rjómabúið er félagseign. Félagsmaður
er hver sá sem flytur rjóma til búsins til
smjörgerðar. Allir félagsmenn hafa sama rétt og
sömu skyldur og taka þátt í rekstri og stofnkostnaði
búsins að réttri tiltölu við smjörframleiðslu þeirra
í búinu.
3. gr. Þeirsemgerastfélagsmenneftirsamþykkt
þessara laga, skulu greiða inngangseyri, 3 aura
af hverju pundi smjörs hið fyrsta sumar.
Inngangseyrir rennur í varasjóð.
4. gr. Smjörgerðina á búinu hefur á hendi
stúlka sem tekið hefur prófí mjólkurskóla hér eða
erlendis.
5. gr. Rjóma sinn skal hver félagsmaður flytja
til búsins einu sinni á dag eða sjaldnar eftir
samkomulagi við bústýru og bera sjálfur kostnað
afflutningnum með styrkfrá búinu eins ogfyrir er
mœlt í 8. gr. Ekki er bústýru skylt að taka á móti
rjóma síðar en kl. 2 síðdegis.
6. gr. Fötur til að flytja rjómann í til búsins,
leggjafélagsmenn sér sjálfir til. Efrjómabústýra
álítur flutningafötu óhœfa til notkunar, tilkynnir
hún það eiganda og skal hann þá tafarlaustfá sér
nýja.
7. gr. Komi skemmdur eða óhreinn rjómi til
búsins, skal bústýra senda hann heim aftur. Ekki
á eigandi rétt til skaðabótafrá búinufyrir rjóma,
sem þannig hefur komið gallaður til búsins. Eigi
má flytja rjóma til búsins úr veikum kúm og eigi
heldur úr nýbœrum, fyrr en eftir fjóra dagafrá
burðiþeirra. Vikulega skal bústýra gefa vitnisburð
um gæði rjómans og senda félögum með
athugasemdum.
8. gr. Félagar hafa ekki leyfi til að halda rjóma
heima til heimilisnota og smjörgerðarfráfráfœru
til rétta, nema stjórn búsins leyfi. Brjóti einhver
þetta ákvæði varðar það sektum frá 2 til 20
krónumerstjórnbúsinsákveður. Sektirnarrenna
í varasjóð.
9. gr. Rjómabússvæðið skiptist í rjóma-
flutningsdeildir. Hver deilder sjálfráð um tilhögun
á flutningi á sínum rjóma, en allra deildarmanna
samþykki þarf þó til þess að ekki sé
félagsflutningur. Félagssvæðið skiptist í deildir
þannig:
1. Uthlíðardeild:
Úthlíðarsókn öll nema Holtakot og Arnarholt
ásamt Syðri-Reykjum Tjörn og Tjarnarkoti.
2. Skálholtsdeild:
Skálholtssókn öll sem búið notar ásamt
Hrosshaga, Reykjavöllum, Torfastöðum og
Miklaholti.
3. Bræðratungudeild:
Bræðaratungusókn öll ásamt Einholti.
4. Vatnslevsudeild:
Torfastaðasókn öll sem ekki hefur áður verið
talin, nema Ból og Kjaranstaðir. (Kjarranstaðir
skrifað með tveimur r um) ásamt Holtakotum.
5. Haukadalsdeild:
Sóknin öll nema Einholt ásamt Bóli og
Litli - Bergþór 9