Litli Bergþór - 01.03.1993, Page 27

Litli Bergþór - 01.03.1993, Page 27
drógum bensínið upp í sprauturnar og sprautuðum því svo upp í loftið og bárum eld að um leið. Úr þessu varð svo myndarleg eldsúla sem lýsti sem snöggvast upp gamla braggann í hlaðinu á Kjóastöðum og sló draugalegum bjarma á sakleysisleg andlit ungu vísindamannanna, sem ekki hugsuðu um hættuna af þessu. Eitthvað var Bárður að bera upp á okkur Gumma sök um hengingu á sér, í ógáti að sjálfsögðu. Við vorum eitthvað að hífa hann upp á höndunum í bragganum góða er snuðra hljóp á þráðinn og þurfti endilega að lenda um hálsinn á honum svo hann sofnaði í smá tíma þarna í loftinu, en vaknaði í tíma aftur og er sennilega kominn hér skýringin á lengd hans. En þeir gerðu fleira elstu strákarnir, samanber söguna af tveim ónefndum, sem einn góðviðrisdaginn, er von var á gestum, stungu berum afturendunum út um sitthvorn gluggann á gamla bænum, og létu sitt eftir liggja. En þá er að minnast á stelpurnar sem eru í minnihluta en voru ekkert síðri í uppátækjum og stríðni. Heimildir um frumburðinn eru ekki miklar hjá mér, en hún var í þeirri aðstöðu að hafa engar fyrirmyndir, svo allt sem á eftir kom er frá henni komið. Kalli sagði mér um Siggu að hún hafi verið svo spretthörð og sterk að þeir höfðu ekkert að gera í hana. Hún ýmist hljóp þá af sér eða uppi og lúskraði á þeim, en aldrei fékk ég að kynnast þessu, enda töluvert yngri. Aftur á móti man ég vel eftir því þegar Svana var að troða majonesi upp í mig og láta mig æla. Eyja og Svana sögðust ekki muna eftir neinu misjöfnu frá þeirra hálfu, en mig grunar nú að þær lumi á einhverju sem þær vilja halda leyndu. Þær voru sammála um það að Svana hefði alltaf fengið Eyju til mótmælaaðgerða gegn mömmu ef þær fengu ekki það sem þær vildu. Þær veltu sér upp úr skurðum í nýjum kjólum eða eins og Eyja sagði, að traðka á forláta dúkkum í hænsnahaugnum. Eitt sinn hringdi Marta gamla á Brú og spurði hvort stórslys hefði orðið, en þá var það Svana að öskra fyrir utan gamla bæinn vegna þess að hún fékk ekki það sama og eldri systkinin. Gunna sagði mér sögu af sér og Dóru, en þær áttu það til að príla upp á hlöðuþak, þar sem þær áttu sinn naglann hvor. Þessa nagla létu þær svo tala saman og ráða í heimsmálin eftir bestu getu, ryðgaða þaknagla með aðstoð tveggja stúlkna sem í leyfisleysi notuðu hlöðuþak sem rennibraut, enda rifu þær iðulega buxurnar og fengu skammir fyrir, en fyrir neðan hlöðuvegg stóð Maggi sem ekki komst upp þá hjálpariaust og söng til að stríða Gunnu. "Gunna með rifinn rass". Einnig sagði Gunna mér að stundum kom það fyrir að hópur af skæruliðum lokaðist inni í gamla bragganum á hlaðinu og mátti dúsa þar nokkra stund. Þá var verið að gera eitthvað sem pabbi mátti ekki vita um. Ekki var nú alltaf samstaða meðal hópsins og var þá bara skilið útundan. Sem dæmi má nefna Baskevill höllina, sem nokkur systkinin höfðu byggt úr tómum tunnum með tilheyrandi húsgögnum. Eitthvað var ónefnt systkini þversum í þessum leik, en það var víst eitthvað þvert á yngri árum að sögn Kalla og til að minna hin á tilveru sína skildi ónefnt systkini eftir sig saurlyktarmerki í skál á borðinu í höllinni. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það. Sami heimildarmaður sagði mér að Kalli hefði verið skammarstrikaforingi og hrekkjusvínameistari hópsins. Hann kallaði það að herða mannskapinn með barsmíðum, eilífum selbitum og innanfótarklípum. Til varnar þessum klípum í Kalla, sem Halla segist hafa notað á okkur Gumma, notuðum við nokkuð snjalla aðferð. Við settum pappa inná okkur eða á þá staði sem voru sárastir við klípum. Þá er komið að þeim yngstu, Agli, Bárði og Siffu. Þeir fyrrnefndu vildu stuðla að fjölbreyttari hangiketsframleiðslu og reyndu að reykja nýru. Þeir hengdu þau upp í reykkofann sem stóð við votheysgryfjuna, en hvort það var þeim að kenna eða ekki þá kviknaði í kofanum og brann þar kjöt, aðallega frá Óla, sem pabbi var að reykja fyrir hann. Ekki reyndu þeir frekar þessa framleiðslu, enda fást ekki reykt nýru á íslandi ennþá. Einnig voru þeir með þeim fyrstu sem reyndu loðdýrarækt, er þeir hugðust rækta mýs í olíutunnum og gömlum koffortum, en lítil kunnátta á fóðrun slíkra dýra batt enda á þá atvinnugrein eins og nýrnareykinguna. Sömu leið fór dúfnaræktin, en einn daginn fundust allar dúfurnar látnar og eftir skyndirannsókn og snöggsoðin réttarhöld var kattarræfill sakfelldur og dauðadómur felldur og fullnægt á staðnum, fyrst með berum höndum sem mistókst aðgerlega og lenti það á pabba að aflífa dýrið. Fikt við reykingar á moði, njóla og dýrum vindlum var svo almenn að ég nefni það ekkert frekar, þótt sumir yrðu veikari en aðrir. Þá er komið að lokaþætti þessa pistils, henni Siffu sem engan hafði til að stríða eða hrekkja en varð að þola Egil, Bárð og Jónas Hafsteins, sem var mikið með þeim. Þegar ég spurði hana um hennar prakkarastrik sagðist hún hafa grenjað á hverjum degi undan þeim enda við ofurefli að etja og það af útlærðum striðnis- og fantabragðasérfræðingum er hlutu menntun sína af sér eldri sem aftur námu af sér eldri er höfðu þá elstu sem fyrirmynd og svo lífið í kringum sig. Er því engin furða þótt hún gangi í háskóla eða svo gott sem til að læra rekstrarfræði, ef hún skyldi lenda í sömu aðstöðu og mamma og pabbi, sem enga möguleika höfðu til slíks náms, en urðu að þreifa sig áfram og komust bara vel frá því fyrirtæki sem við köllum fjölskylda eins og ávöxtunin ber vitni um. Litli - Bergþór 27

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.