Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 8
Hreppsnefndarfréttir
Álagning fasteignagjalda og ákvörðun um
sorphirðugjald.
Hreppsráð gerir tillögu um að lagt verði á
sorpeyðingargjald næsta fjárhagsár.
Sorpeyðingargjald vegna fyrirtækja verði skilgreint
nánar í samþykkt um sorpeyðingu í hreppnum.
Lagt er til að álagning fasteignagjalda verði
óbreytt þ.e. A flokkur 0,5% og B flokkur 1,0%.
Fasteignagjöld af íbúðum aldraða þ.e. 67 ára og
eldri, í eigin húsnæði verði felld niður.
Oddviti kynnti gang mála varðandi
reikningsuppgjör og undirbúning að
fjárhagsáætlanagerð.
Kynnt bréf frá Snorra og Gunnari á Tjörn
dags. 10. des. 1995 þar sem óskað er eftir
kaldavatnsveitu í fyrirhugaða sumarbústaðabyggð í
landi Tjarnar.
Hreppsnefndarfundur 16. janúar 1996.
Oddviti setti fundinn og byrjað var á að skoða
Björgunarsveitarhúsið undir leiðsögn Jakobs
Hjaltasonar og Lofts Jónassonar. Einnig var
Slökkvistöðin og geymslan skoðuð.
Fundargerð hreppsráðs frá 9. janúar.
Hreppsnefndin mælist til að Rauðakrosslandið
fyrrverandi og holtin vestan þess verði girt af og
friðað fyrir beit.
Hreppsnefnd var sammála um að leggja á
sorpeyðingargjald og var hreppsráði falið að ganga
frá þessu máli.
Kauptilboð í Birkilund frá Þóri Sigurðssyni
sem kaupir af Helgu Pálsdóttur.
Hreppsnefnd neytir ekki forkaupsréttar síns.
Bréf Neytendasamtakanna Skúlagötu 26,
dags. 3. jan. 1996. Þar er farið fram á styrk til
reksturs neytendaskrifstofu á Suðurlandi að
upphæð 21.000,- kr. Styrkbeiðninni er hafnað af
hreppsnefnd enda telur hún að Neytendasamtökin
hafi rekið ósanngjarnan áróður gegn landbúnaði og
hagsmunum dreifbýlisins.
Lagt fram bréf frá Slysavarnadeild
Biskupstungna frá 8. jan. 1996 þar sem farið er
fram á fjárstuðning til að Ijúka við húsið sem á að
vígja í byrjun júní 1996. Erindinu vísað til
hreppsráðs og fjárhagsáætlunar.
Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga frá 9. janúar
1996 þar sem bent er á að umsóknarfrestur renni út
31. janúar 1996. Samþykkt var að sækja um lán úr
sjóðnum að upphæð kr. 8 milljónir.
Lagður fram fasteignagjaldalisti. Þar kemur
fram hvað er ógreitt af fasteignagjöldum.
Samþykkt var að láta strika út skuldir undir 1.000,-
kr. sem eru vaxtaskuldir.
Eftirfarandi samþykkt var gerð: „Hreppsnefnd
lýsir þungum áhyggjum vegna stöðu raforkumála í
Biskupstungum. Einfasa rafmagn er enn á stóru
svæði sem torveldar notkun verulega í
atvinnurekstri. Einnig virðist flutningsgeta kerfisins
vera í lágmarki þar sem spenna er víða mjög léleg.
Hreppsnefnd skorar á Rarik að efla dreifikerfi hið
fyrsta, þannig að uppbygging á atvinnurekstri í
sveitinni tefjist ekki af þessum sökum. “
Hreppsráðsfundur 6. febrúar 1996.
Pétur H. Jónsson arkitekt kynnir vinnu við
endurskoðun á aðalskipulagi Skálholts.
Samþykkt að óska eftir því við Skipulag ríkisins að
þeir heimili auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi
Laugaráss og Skálholts.
Pétur kynnir einnig vinnu við endurskoðun á
aðalskipulagi í Reykholti. Pétur lagði fram
kostnaðaráætlun vegna endurskoðunarinnar alls kr.
600.000,- án vsk. og ferðakostnaðar. Efnis- og
útgáfukostnaður er jafnframt undanskilinn.
Samþykkt af hálfu hreppsráðs. Skipulag ríkisins
greiðir 50% kostnaðar.
Fundargerð stjórnar Sorpstöðvarinnar frá 25.
1.1996 lögð fram en þar kemur m.a. fram tillaga
að gjaldskrá, en aðildarsveitarfélög munu greiða kr.
1,50 á hvert kíló sorps fyrstu fjóra mánuði ársins.
Fundarboð Alþýðusambands Suðurlands og
Atorku um opinn fund á Hótel Selfossi um
atvinnumál 15. febrúar n.k. Sent atvinnumálanefnd.
Bréf frá Umhverfisráðuneytinu dags. 19.
janúar 1996 þar sem kynnt er að ráðuneytið mun
framvegis taka gjald af sveitarfélögum v/auglýsingar
á gjaldskrám og öðrum samþykktum og reglum.
Bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga frá 22.
janúar vegna stöðu mála um yfirfærslu
grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga, lagt
fram til kynningar.
Kynnt minnisblað til sveitarsjórna Uppsveita
Árnessýslu um stöðu „Laufskála" í janúar 1996.
íbúaskráin 1. des. 1995 yfirfarin. Heildarfjöldi
íbúa er 519, konur eru 242 og karlar 277. Á
kjörskrá eru 360 manns, 164 konur og 196 karlar.
Deiliskipulag sumarhúsa á Iðu II, eignarhluta
Helgu Pálsdóttur. Sent umsagnaraðilum.
Bréf frá Ferðafélagi íslands, ódagsett, barst 5.
febrúar 1996, þar sem farið er fram á leyfi til að
byggja nýtt sæluhús í Þjófadölum. Lagt er til að
athugað verði betur með staðsetningu hússins t.d.
hvort hugsanlega sé hægt að staðsetja það í mynni
Þjófadala eða austan við Þröskuld. Þannig virðist
það geta nýst meira og í fjölþættari ferðamennsku.
Erindið sent til umsagnar skipulagsnefndar
miðhálendis íslands.
Sorpeyðinargjald: íbúðir kr. 3.000,-,
sumarbústaðir kr. 2.000,-, garðyrkjustöðvar,
búrekstur og annar atvinnurekstur kr. 5.000,-.
Stærri atvinnufyrirtæki greiði fyrir eyðinguna skv.
reikningi enda séu þau með sér gáma.
Skýrsla byggingarfulltrúa vegna 1995 lögð
fram og staðfest.
Litli - Bergþór 8