Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 23
Úthlíðarsókn er til forna þannig afmörkuð: „Að
norðan: Högnhöfði, Kálfstindur í norðvesturhorn
Bjarnarfells. Úr suðvestur horni Bjarnarfells, er
liggur fyrir Haukadalslok, beina stefnu í Tungufljót
hjá Holtakotum. Að sunnan var stefna úr
Tungufljóti, um Vatnsleysuása, Arnarholtsvatn,
Fullsæl og Brúará“. Hér er nú sumt ekki vel Ijóst,
t.d. um Vatnsieysuása. En annað er nokkuð Ijóst.
Hér kemur Útgarður til sögu. Múli lendir ekki í
Úthlíðarsókn. Sunnan á Múlanum er stór, áberandi
steinn, sem Markasteinn heitir. Hann er á mörkum
Austurhlíðar og Múla. Þegar komið er utanmeð
Hlíðum, opnast Haukadalur þegar komið er fyrir
Múlann, en hann er áframhaldandi hæð af
Bjarnarfelli. Ennþá er órannsakað hvort og hvar
garðurinn liggur fyrir sunnan Múla, en það sem vitað
er, stefnir hann á Markastein. Hitt er hulið undir
þúfunum.
Þessi garður var hlaðinn á tíð Gissurar
(Gissröðar) biskups ísleifssonar í Skálholti. Um það
leyti hófst ritöld hér á landi. Þetta var áður
biskupsstóll var settur á Hólum. Um það leyti sem
tíund komst í lög hér á landi. Sæmundur fróði í
Odda var á góðum aldri. Magnús berfættur var þá
Noregskonungur og Eiríkur góði Danakonungur. Þó
þetta sé vitað, er margt hulið móðu gleymskunnar.
Til dæmis hvort það var um þetta leyti, sem
húskarlar höfðingjans í Haukadal, báru Bergþór úr
Bláfelli heim á staðinn, svo hans jarðnesku leyfar
mættu hvílast undir sinni þúfu, við lækjarniðinn og
klukknakliðinn.
Loftmynd af landi Holtakota og Hjarðarlands. Utgarður sést ofarlega til hœgri, nyrst í
Nesholtum. Markasteinninn í Múlanum, sem vitnað er í, er efst til vinstri á myndinni, en heitir þar
Klettur. Um þessar slóðir og í gömlu Tungnaréttirnar, en þœr eru neðst til hœgri á myndinni, reið
fjallmaðurinn, sem segir frá á bls 24-26.
Litli - Bergþór 23