Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 20

Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 20
Hugleiðingar um ferðamál frh. Hestar og menn í Biskupstungnaafrétti. heimatökin á því sviði! Tölur frá upplýsingamiðstöðvum innanlands gefa hins vegar til kynna að íslendingar á ferð um landið spyrja mest um gönguleiðir og það bráðvantar okkur hér, merktar gönguleiðir þar sem sagan og ævintýrin væru fléttuð inní. Hálendið er gífurlega vinsælt, ferðamenn sækja í óbyggðir, gangandi, akandi eða á hestum og þar tel ég vera marga ónýtta möguleika. Dagsferðir upp á hálendið, fjölbreyttar hestaferðir, gönguleiðir á hálendinu svo eitthvað sé nefnt. Ennig má vinna meira með umhverfið og fræga sögustaði. En hver á að gera þessa hluti? Möguleikarnir og hugmyndirnar eru margar, en það vantar aðila sem eru til í nýsköpun og framkvæmdir. Hér hafa einstaklingar gert stóra hluti á ákveðnum sviðum t.d. við Geysi og í Úthlíð og fleiri eru að fóta sig t.d. í Laugarási, en til að styrkja þá staði enn frekar í sessi og auka fjölbreytni fyrir þá sem sækja Biskupstungur heim þarf að bæta við möguleikum á afþreyingu í nágrenninu. Hér með er auglýst eftir ævintýramönnum og ofurhugum til að framkvæma góðar hugmyndir og taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Biskupstungum. Ég vil líka hvetja unga fólkið til að kanna þá fjölbreyttu menntunarmöguleika sem nú bjóðast og nýtast á sviði ferðamála. Margs konar menntun getur skapað þeim atvinnumöguleika og þátttöku í uppbyggingu hér heima í sveit í framtíðinni. Öll erum við í ferðaþjónustunni og skiptum máli. Áherslan verður að vera á gæði annað er vonlaust í samkeppninni í dag. Við verðum að vera viss um að við séum að gera og bjóða okkar besta. Við viljum vera umhverfísvæn og mikið er rætt um græna ferðamennsku þar sem heimamenn og ferðamenn lifa í samlyndi og sátt við umhverfi og náttúru en „Erum við ferðamannavæn?” eins og Magnús Oddsson ferðamálastjóri spurði landsmenn í byrjun sumars. Lítum við vingjarnlegum augum á þá sem eru að ferðast um landið eða eru þeir bara að þvælast fyrir okkur? Við heyrum oft talað um „bakpokalýð” og hjólreiðamenn sem eru óþolandi á vegunum. Ferðamennina sem vaða yfir landið og skilja ekkert eftir. Að mínu mati er svarið við þessu að hluta til fólgið í því að við sjálf náum að hafa stjórn á ferðamálunum og höfum áhrif á hvernig þau þróast í stað þess að þau vaxi vilt. Hverja viljum við fá og hvað viljum við með þá? Hver er sérhæfing staðarins? Hvað ætlum við að standa fyrir? Viðhorf heimamanna eru grundvallarforsenda og þessa hluti þarf að skoða gaumgæfilega. Þá þarf að fara saman m.a. þekking á viðskiptavini og þörfum hans og eigin færni t.d. tungumál, samskiptafærni og viðhorf til viðskiptavinarins. Menntun og símenntun s.s. námskeið o.fl. er orðið nauðsynlegt fyrir aðila í ferðaþjónustu. Við verðum alltaf að halda áfram að bæta við okkur. Því er spáð að samkeppni í umhverfisgæðum verði framtíðin, gæði hins daglega lífs á staðnum t.d. upplýsinga og þjónustu. Náttúran ein og sér er ekki nóg, nútíma ferðamaðurinn þarf eitthvað meira, við verðum að skemmta honum til að fá hann til að stansa. Miðað við marga aðra ferðamannstaði er Island grænt eða umhverfisvænt í eðli sínu, en við þurfum að standa um það vörð og gera betur. Það er vinsælt að koma á staði sem ekki eru búnir til sérstaklega fyrir ferðamenn og sjá landið og landann eins og það er náttúrulegt eða ósnortið. En það þarf að halda vel um taumana því slík ferðamennska er sjálfseyðandi, það er ekki ósnortið lengur ef fjöldinn fær að flæða yfir stjórnlaust. Mergur málsins er, hvað viljum við gera með landið okkar og hvað viljum við að aðrir geri? Við verðum að hafa skoðun á því og reyna að hafa áhrif. Slíkt hefst aðeins með samvinnu. Litli - Bergþór 20

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.