Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 26

Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 26
Réttir í Tungum og á Skeiðum frh.. hringsnúning alla nóttina. Ég var óþreyttur og í góðu skapi. Sá ég þá á sömu stundu jungfrúna sem ég hafði á svo einkennilegan hátt reitt fyrir framan mig á Tungnaréttadagsmorguninn. Ég bauð henni í kaffi og var hún því fengin því hún kvaðst hafa tapað samferðafólki sínu um nóttina. Drukkum við þar kaffi saman og gengum svo okkur til skemmtunar um eyrarnar þar til farið var að rétta kl. að ganga 7 um morguninn. Við skemmtum okkur hið besta og höfum jafnan verið góðir kunningjar síðan og minnst á réttarferðina. Réttimar gengu vel og gerðist þar fátt sögulegt utan dálitlar ryskingar. Skemmtun var nóg, söngur og óslitinn dans frá kl. 7 um kvöldið til kl. 3 um daginn eða til samans 20 klukkutíma. Og má það kallast allgóð skorpa. Ég keypti nokkur lömb af Flóakörlum og var gott að versla við þá ef maður gat gefið þeim hressingu. Nú var lagt af stað úr réttum og átti að fara yfir Hvítá á dragferjunni hjá Iðu. Við komum þangað í hálfdimmu um kvöldið. Var þar fullt við ferjuna og gekk flutningurinn illa yfir ána. Við komumst upp yfir er var að verða aldimmt og þegar við vorum að leggja á hestana heyrðum við köll úti á ánni, en sáum ekkert fyrir myrkri. Þá hlupu nokkrir vestur með ánni þar til þeir rákust á bát á hvolfí. Settu þeir hann á flot með sama og reru í áttina sem köllin heyrðust. Þar fundu þeir mann sem barst fram ána undan straumi á dauðum hesti. Þetta var maður norðan úr Þingeyjarsýslu sem búinn var að dvelja nokkur misseri í Tungunum. Hafði hann jafnan haldið að ekki væri mikil hætta að sundríða Hvítá á Iðu. Hann hafði komið að ánni um það er búið var að flytja okkur og riðið umsvifalaust út í hana. En er hann kom út í iðukastið var lausi hesturinn- því hann hafði tvo til reiðar- hraðsyndari en sá sem hann reið, en taumurinn var langur. Dregur hann nú að sér lausa hestinn sem kominn var framfyrir hinn en við það kafar hann á makkann á þeim sem hann reið og kaffærir höfuðið svo að hann kafnaði undir eins. Sleppti hann nú lausa hestinum sem synti til lands en hékk við hinn dauða þar til áðurnefndir menn björguðu honum. Hesturinn var dreginn í land á eftir bátnum og gaf eigandinn skrokkinn með öllu saman fátækum bónda þar í nágrenni. Síðan héldum við með manninn heim að Skálholti og þurfti hann hjúkrunar við því hann hafði kólnaði í ánni. Samt gátum við ekki annað en minnt hann á að gjöra ekki grín að okkur Tungnamönnum þó við sundriðum ekki Hvítá að raunalausu þar sem hann hefði nú reynt það sjálfur og drepið hestinn undir sér. Og kvaðst hann ekki mundu reyna það í annað sinn. Svo héldum við heim um nóttina og höfðum mikla skemmtun af túrnum eða réttunum yfirleitt. Eftir réttimar var hver kallaður að þeim verkum sem honum voru ætluð. Ég. t.d. fór í eftirleit um haustið, fór til Reykjavíkur með rekstur. Var vinnan þar fyrir utan smalamennska og var hún örðug þar sem ég átti heima. Ég get nú búist við að sumir efist um sannleiksgildi þessara sögupistla er ég hefi sent þér, Hjálmur minn, en það get ég sannað að öll einstök atriði eru hárrétt. Hitt er aftur ekki alveg víst að þau hafi öll komið fyrir í sömu ferðinni en það álít ég ekki gjöra svo mikinn mismun. Að endingu bið ég þig og þína tilheyrendur að fyrirgefa og taka viljann fyrir verkið. Fjallmaður (Ketill Greipsson). Eins og mér sýnist! Kæru sveitungar! Mig langar aðeins til þess að þrasa í ykkur. Við búum hér í fallegri sveit, eigum góðan skóla og ágætt félagsheimili, tölum sama tungumál, trúum flest á sama guð og erum hæfilega mörg. Ættum við því að geta unnið saman í sátt og samiyndi. Það þýðir ekkert að hver sitji út í sínu horni og bíði eftir því að aðrir geri hlutina. Lífíð er ekki búið þó við séum komin með karl eða kerlingu og nokkur btirn og alls ekki þó börnin séu flogin úr hreiðrinu. Það er hægt að gera svo margt skemmtilegt. Það er gott fyrir alla að fara af bæ og fíflast svolítið eða láta eins og trúður, renna sér nokkrar ferðir í rennibrautinni í sundlauginni, hlaupa á milli bæja, (eða nota orkuna í félögin í sveitinni.) Reynum að fínna bamið í okkur sjálfum,. Við erum öll alveg þrælgóð og skemmtileg. Leyfum því öðrum að njóta þess með okkur. Lesist vandlega! Oddný á Brautarhólk/ Litli - Bergþór 26

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.