Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 13

Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 13
Bæn ferðamannsins Eftirfarandi pistil fundum við hengdan uppi á vegg í breskri búð íAlgarve í Portugal. Hann er eftir þekktan háðfugl og dálkahöfund Art Buckenwald og hafði birst í „Los Angeles Times Okkur þótti pistillinn bœði fyndinn og nokkuð sannur, svo að honum var snarlega snarað á íslensku. Ég vona að þessi skophliðstœða, (parodoia) særi engan og læt hér þessa „ Bæn ferðamennsins “ á þrykk útganga: Himneski faðir! Lít til okkar, hinna aumu og hlýðnu þræla ferðamennskunnar, sem erum dæmdir til að ferðast um þessa jörð, til að taka myndir, senda póstkort og að kaupa minjagripi. Sjá til þess, Herra, að flugvélinni okkar verði ekki rænt, farangurinn misfarist ekki og að ekki verði tekið hart á yfirvigtinni. Gef okkur í dag guðlega leiðsögu í leit okkar að móteli, megi símarnir vera í lagi og símaþjónustan tala skiljanlegt tungumál. Leið okkur að góðum ódýrum matstöðum, þar sem vínið er innifalið í matarverðinu. Gef okkur visku til að reikna þjórféð réttilega, í mynt sem að við þekkjum ekki. Sjá til þess að íbúamir láti sér annt um okkur, vegna þess sem við erum en ekki vegna þess sem að þeir geti haft út úr okkur. Veit okkur styrk til að þræða söfn, dómkirkjur og kastala, og ef að við skrópum frá að skoða sögufrægt minnismerki, til þess að geta fengið okkur miðdegistór þá hafðu miskunn með okkur, því að hold okkar er veikt. Góði Guð, vemdaðu konur okkar fyrir kjarakaupum sem þær hafa enga þörf fyrir og engin efni á. Leið þær ekki í freistni, því að þær vita ekki hvað þær gera. Almáttugi faðir, forðaðu eiginmönnum okkar frá að gefa erlendum konum auga, og að bera okkur saman við þær. Láttu þá ekki gera sig að fíflum á börum og næturklúbbum. Framar öllu biðjum við um að þeim verði ekki fyrirgefið, því að þeir vita nákvæmlega hvað þeir gera. Og þegar heim kemur, veit okkur þá náð, að firma einhvem, sem að fæst til að skoða myndirnar og hlusta á sögumar okkar, svo ferðalagið okkar hafi ekki verið til einskis. Olafur Stefánsson Syðri Reykjum. Litli - Bergþór 13

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.