Litli Bergþór - 01.04.1996, Side 17

Litli Bergþór - 01.04.1996, Side 17
Þorrablót, setningarávarp Góðir gestir, verið hjartanlega velkomin og gleðilega hátíð. Enn höldum við þorrablót. Þá þykir við hæfi að sleppa fram af sér beislinu, borða of mikið, drekka of mikið og gera of mikið grín að sveitungunum. Áður en við byrjum á þessari ofnotkun langar mig að segja ykkur frá því sem ég var að hugleiða hérna í Aratungu í morgun, þegar við vorum að leggja síðustu hönd á undirbúning blótsins. Mér hefur alltaf þótt afskaplega skemmtilegt að hlusta á mér eldra fólk segja frá hvemig lífið var áður fyrr, þegar allt var með ólíkindum frumstætt og með öllu óskiljanlegt hvernig hægt var að komast af án allra þeirra þæginda og tækni, sem til er í dag. Svo í morgun datt mér í hug að þessi þróun heldur stöðugt áfram og hægir ekki á. Sungið Það eru ekki nema rúm tuttugu ár síðan ég var við vinnu hér í þessu húsi og bar heitið talsímakona. Þá vom á símstöðinni ekki nema tvær símalínur út úr sveitinni, önnur til Reykjavíkur, hin á Selfoss. Mér eru sérlega minnisstæðir dagar í brakandi þurrki, en spáð rigningu, þegar biluðu vélamar hjá bændum og þeir þurftu að hringja í Globus að panta varahluti. Biðin eftir símtalinu til Reykjavrkur gat farið upp í tvo tíma. Ég skildi það ekki svo vel í þá tíð, en skil það enn betur eftir því sem árin líða, af hverju þeir voru stundum orðnir dálítið æstir, jafnvel vondir loksins þegar samband komst á, en þvflíkar aðstæður. Nú er aftur á móti öldin önnur nú eru allsstaðar símar, nokkrir símar inni í bæ, farsími a.m.k. í öðrum bflnu, einn í fjósinu, eða gróðurhúsinu eða verkstæðinu, og GSM í brjóstvasanum. Ur öllum þessum tólum er hægt að hringja beint, hvert sem er, og hvenær sem er sólarhringsins. Gömlu stöðinni var alltaf lokað klukkan átta og þá var náttúrlega ekki hægt að hringja nema rétt á 6-8 næstu bæi. En þetta er ekki allt. Margir bera boðtæki alltaf í beltinu, svo þeir geti á augabragði séð, hveijir vilja ná sambandi við þá, ef svo ólfldega vill til að ekki er sími í nágrenninu. Svo em þeir með faxtæki við einn af símunum, við annan er símsvari, sem tekur skilaboð og þá eru enn ótaldar tölvur, sem manni skilst að hægt sé að nota í nánast hvaða verk sem er. Alla þessa tækni nota nú bændur, sem fyrir rúmum 20 árum gátu ekki hringt beint, nema rétt á næstu bæi. Núna er svo alnetið að halda innreið sína og eftir fáein ár verður það vísast notað hér á hverju koti. Ekki hef ég mikla hugmynd um, hvernig þetta net virkar, en stundum hefur mér dottið í hug að gott væri að hafa heimasíðu fyrir á þorrablóti. Þarf ekki talsímakonu á hvern bœ? gróusögur í Biskupstungum. Sögur yrðu þá allar skráðar jafnóðum, og þá geta viðkomandi fórnarlömb leiðrétt, ef ekki er rétt með farið, þetta væri öllum til sýnis í einu og yrðu þar með ekki lengur gróusögur, heldur sannar sögur. Áður en tekið verður til matar, langar mig að benda ykkur á blöð sem liggja frammi á borðum, á þeim eru nokkrir fyrripartar. Við förum þess á leit við þá sem það vilja, að þeir sendi okkur botna á þessa parta. Þessu blaði má skila í kassa sem eru hér upp við sviði og síðar í kvöld verður farið yfir og jafnvel veitt verðlaun fyrir þann besta. Guðrún Hárlaugsdóttir Borgarholti. Skattafsláttur. sjálfvirkur lánsréttur, öflugur lífeyrissjóður, lántil húsnæðismála og afburða ávöxtun fæst með þátttöku í RS. Réttu megin við strikið með Reglubundnum sparnaði Reglubundinn sparnaóur - RS - er einfalt og sveigjanlegt sparnaðarkerfi sem hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin við strikið í fjármálum. Ávinningurinn er margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum hætti, átt greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um að millifæra ákveðna upphæð reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörfaók eða Spariveltu sem saman mynda RS. I*/ Rcglul)undinn /•sj)arnaður Við inngöngu í RS færðu þægilega fjárhagsáætlunar- möppufyrir heimilið og fjölskylduna. Viltu stofna þinn eigin lifeyrissjóð, spara fyrir ákveðnum útgjöldum, leggja grunn að þægilegri fjármögnun húsnæðis, tryggja þér skattafslátt, ávinna þér lánsrétt og tryggja þér örugga afburðaávöxtunhvortsemþúvilt jV LanQSDanKI spara í lengri eða skemmri tíma? Mk Islands Bankl a llra landsmanna Allar nánarí upplýsingar fást í ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreidslu Landsbankans

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.