Litli Bergþór - 01.04.1996, Qupperneq 27
V ísnaþáttur á þorrablóti
Eftir: Kristján Ragnarsson frá Ásakoti.
Höfundur flytur vísurnar.
Ekki er fríður flokkurinn
fátt sem prýðir ódráttinn.
Tungna skríður skrokkurinn
skratti víða á húsganginn.
Nú var málið orðið mér virkilega
skylt.
Ennþá Skagaskarfurinn
skáldaflagið treður.
Lúsamaga larfurinn
Ijóta bragi kveður.
Og Sveinn heldur áfram:
Orðin sannast má ég mæla
margt þó annars gangi á svig.
Lagermanna lygaþvæla
lítið kann að hrella mig.
Núfannst mér nóg komið, enda
friðsamur maður jafhan, með ötfái
undartekningum.
Bragarsviðið breytir lit,
betri siði tökum
Set jum niður sveita krit
semjum frið í stökum.
Sveini hefur líklega verið runnin
mesti móðurinn líka efmarka má
nœstu vísur.
Eflist hróður Arnesinga
alfaðir góður blessi þá.
Mikill sjóður manndóms þinga
menntagróður vex þeim hjá.
Mergur þjóða mun þar rísa
manndómslistin eina og sanna.
Megi sólin sífellt lýsa
á sálir ykkar Tungnamanna.
Guðrún í Borgarholti og Camilla
í Asakoti leika aflist.
Ónefndur burtfluttur Tungnamaður,
sem er mikill áhugamaður um
hringhendur, sendi mér nokkrar
landsfleygar vísur sem hann gerði
athugasemdir við og taldi að hefðu
átt að vera svona. Hefði tímaskortur
ráðið því að þetta urðu ekki
hringhendur.
Yfir þveran eyðisand
einn ég fer að sveima.
Nú er frerið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
þegar hannfór í Tungurnar með
nýjan traktor og eitthvað brást íþví
sem samið var um og var honum heitt
í hamsi.
Varnarþingin velflest þar
varða hring um skammirnar.
Þeir Arnesinga andskotar
eru slyngir braskarar.
Nú, ég varð náttúrlega að taka upp
hanskann fyrir mína menn, en þessi
maður heitir Sveinn og erfœddur og
uppalinn norður á Skaga.
Orðum hagar rímnarefur
á rýrum Skaga dvalið hefur.
Fylli í maga fátt þar gefur
flesta daga hyski sefur.
Nœsta vísa kœmist ekki í gegnum
ritskoðun og er bönnuð innan sextán,
Og önnur:
Nú er talið verður vott
veikist smalahugur.
A morgun skal hann gera gott
Guð minn almáttugur.
Eitt er það öðru fremur sem hefur
tröllriðið sjónvarpsauglýsingum
undanfarið, en það eru
tíðabindaauglýsingarnar, Þar er
auglýst Vanja, Vespres, Libres,
Libero, Pampers. Nei, það eru víst
beiur. Always. Alla vega datt þessum
brottflutta Tungnamanni þessi vísa í
hug.
Always troðin er nú smuga
undir hérna maganum.
Aður létu þær allar duga
ullarlagð úr haganum.
Eitt er það semfarið hefur halloka í
kveðskap okkar Islendinga, en það
eru níðvísur.
En það voru líklega þœr vísur sem
urðu einna fljótastar að verða
landsfleygar.
Einn vinnufélagi minn sendi mér eina
Kristján í Borgarholti og Hjalti í
Asakoti skemmta.
en hafa ber í huga að þetta var allt til
gamans gert.
Liðugt dælist lygaræpa,
landasvæla af gungunum.
Allir þrælar illra glæpa
eiga hæli í Tungunum.
Við svo búið gat ég náttúrulega ekki
látið standa.
Vert er að brýna vísnastingi
vel svo hvíni og hátt við syngi.
Því görótt vín og galdrakyngi
glepur sýn í Húnaþingi.
Sveinn af Skaganum var ekki afbaki
dottinn, og það vildi þannig til að
Hjalti bróðir minn var í
kaupstaðarferð, og varð Sveini það
að yrkisefni.
Litli - Bergþór 27