Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Qupperneq 11
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2010
Þórhildur Richter:
Jóhanna eða Ingibjörg?
Áður en almenningur fékk aðgang að islendingabok.
is á netinu, kom það fyrir að ég setti saman ættartölur
fólks sem ég hafði einhvern tíman mætt á lífsævinni.
Við þessa iðju hagnýtti ég mér þá gjarnan ábúendatöl,
ættartölubækur og kirkjubækur á Amtsbókasafninu á
Akureyri.
Fyrir kemur, að þegar gluggað er í kirkjubækur, en
þær skiptast í svonefndar ministerialbækur og sókn-
armannatöl, að þar finnist eitt og annað skráð, sem
vekur jafnvel upp enn fleiri spumingar í huga þess
sem leitar, en spurningar þær, sem upphaflega var
ætlunin að fá svör við
Hér á eftir rná lesa dálítið dæmi um eina slíka leit,
þegar aðeins átti að fá svör við einni eða tveim litlum
spurningum.
Á Stakkabergi
Það var nálægt árinu 2000 sem mér datt í hug að setja
sarnan örlitla ættartölu síðustu íbúanna á Stakkabergi í
Klofningshreppi í Dalasýslu, en á Stakkabergi hafði ég
verið sumardvalarbarn nærri hálfri öld fyrr. Þar hafði
fólkið verið mér gott og var mér því afar hlýtt til þess.
Á þessum tíma, sem ég dvaldi á Stakkabergi, áttu
þar þrjú systkini heima ásamt öldruðum föður sínum,
þau Olöf, Ingimundur og Sigfríður. Faðir systkinanna
hét Elínmundur Þorvaldsson og var hann ekkjumaður.
Ekki gekk erfiðlega að finna eitthvað um fram-
ættir Elínmundar, en lengri tíma þurfti til að öðl-
ast einhverja vitneskju um konu hans, Ingibjörgu
Guðmundsdóttur. Fæðingardags hennar var ekki getið
í Dalamönnum, þar stóð aðeins, að hún hefði verið 75
áragömul, þegar hún lézt þann 25. nóvember 1947 og
að faðir hennar hefði verið Guðmundur Nikulásson,
bóndi á Skarðsströnd.
Til að finna eitthvað um komu Ingibjargar í þenn-
an heim, lá þá beint við að fletta upp í kirkjubókum
Skarðssóknar á Skarðsströnd.
Fósturbarnið
GuðmundurNikulássonogSigurlaugGuðmundsdóttir
voru ungt fólk í vinnumennsku á Á á Skarðsströnd
árið 1872. Hann var þá 25 ára og hún tvítug. Þann 30.
september þetta ár eru þau gefin saman í hjónaband í
Skarðskirkju eftir þrjár lýsingar af stól og þarna á Á
voru þau síðan í húsmennsku um nokkurra ára skeið.
Fyrir hjónaband hafði þeim Guðmundi og Sigur-
laugu fæðst sonurinn Helgi, þann 1. nóvember 1870.
Þá hafði Sigurlaug verið til heimilis í Akureyjum, en
fram kernur í nrinisterialbók, þegar þetta er skráð,
að hún hafi verið fósturdóttir Jóns bónda þar. Helgi
mun sennilega hafa dáið ungur, en eyða er í dánarskrá
Skarðskirkju á árunum 1868 til 1874.
Þann 31. desember 1872, eignast ungu hjón-
in dóttur, sem daginn eftir er borin til skírnar. Þetta
er þá skráð í kirkjubók: Fæðingardagur: 31. Desbr.
Skírnardagur og staður: 1 .janúar, íkirkju. Nafn barns:
Jóhanna Guðmundsdóttir. Foreldrar: Guðmundur
Niculásson og kona hans Sigurlaug Guðmundsdóttir
hjón í vinnumennsku á Skarði. Skírnavottar: Jóhanna
Jónsdóttir Ijósmóðir í Manheimum, Skúli gullsmið-
ur Magnússon í Skarði og Stefán bóndi Sveinsson f
Frakkanesi.
Telpa þessi hlaut sem sagt nafnið Jóhanna, og eft-
ir því sem ég get bezt séð, er þetta í einasta skipt-
ið sem Jóhanna þessi Guðmundsdóttir finnst skráð í
ministerialbók Skarðs á Skarðströnd!
Annað og nokkuð undarlegt kemur einnig í ljós, en
Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem síðar verður hús-
móðir á Stakkabergi í Dölum, er lrvergi getið íþess-
ari sömu kirkjubók meðal skírðra meyja á árunum
1870- 1875. í bók þessari hefði þó væntanlega átt að
standa nafn hennar, þar eð foreldrarnir Guðmundur og
Sigurlaug voru allan þann tíma innan sóknarmarka
Skarðssóknar. Reyndar má þess og geta, að ég gáði
einnig í fæðingaskrár kirkjubóka úr næstu sóknum
frá þessum tíma, til að leita af mér allan grun, en þar
fannst ekkert fellt á blað um áðurnefnt fólk.
Fyrst finnst nafn telpunnar Ingibjargar Guðmunds-
Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem síðar verður hús-
móðir á Stakkabergi í Dölum, er hvergi getið í kirkju-
bókum meðal skírðra meyja á árunum 1870-1875. Þó
eru skráðir á hana þrír fæðingardagar!
http://www.ætt.is
11
aett@aett.is