Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2010 Heimildir: Björn Magnússon: sami Einar Bjarnason: sami Eiríkur Einarsson: Guðni Jónsson: sami Jón Espólin: Árni Magnússon og Páll Vídalín: Páll Eggert Olason: Sigurgeir Þorgrímsson: Borgfirzkar æviskrár Manntöl Bændatöl Manntalsbækur Árnessýslu frá 18. öld Kirkjubækur Læknatöl Annarra heimilda er getið í texta. Nokkrar góðar vefsíður um ættfræði íslendingabók: http://www.islendingabok.is Islenski ættfræðivefurinn - The Icelandic Gen Web :http://www.halfdan.is/aett Legstaðaskrá: http://www.gardur.is Manntöl - Þjóðskjalasafn íslands: http://www.archi- ves.is/index ,php?node=124 ORG ættfræðiþjónustan: http://www.simnet.is/org Tannlæknatal 1854-1997 (með síðari breytingum og viðbótum á netinu): http://um.margmidlun.is/um/tannsi/vefsidur.nsf/in- dex/1.0020?open w3ætt: http://w3aett,rhi ,hi.is Ættfræðifélagið - The Genealogy Society: http:// www.vortex .is/aett Ættfræðisíða Systu: http://notendur.snerpa.is/systa- oggaui/aettfraedisidasystu .htm http://familysearch.org FamilySearchLabs Family Search Family tree Þjóðskráin: http://www.thjodskra.is/ The Emigration fron Iceland to North America: http://www.halfdan.is/vestur/vestur.htm Lögberg Heimskringla http://www.logberg.com/ Þjóðræknisfélagið: http://www.inl.is/index.htm Fyrirspurn og fyrsta svar Steffen Stummann Hansen í Leirvík í Færeyjum, vinnur að útgáfu mikils rits um Leirvíkinga, sem hann kallar Leirvíkingar 1901. Þetta er bók með myndum allra íbúa þessa þorps um 1900. Hverri mynd fylgir æviágrip viðkomandi persónu. Einn íbúanna á þessu tímabili, segir Steffen, var fslendingur að nafni Jens Bjarnason. Hann giftist til Leirvikur. Samkvæmt okkar kirkjubókum segir Steffen, var hann fæddur á íslandi 22. september 1866, en þar kemur ekki fram fæðingarstaðurinn. Jens Bjarnason lést hér í Leirvík 27. janúar 1947 og var grafinn þar. Steffen óskar eftir upplýsingum um fullt nafn Jens, sömuleiðis hvernig það var stafað, einnig staðfesting á fæðingardegi og ári og hvar á landinu hann var fæddur. Ritstjóri gróf upp eftirfarandi upplýsingar um Jens og sendi Steffen: Jens hét fullu nafni Jens Bjarnason Welding, en Weldingsnafnið er komið frá dönskum for- feðrum hans. Jens var fæddur í Kristjánsbæ í Hafnarfirði 11. október 1867. Faðir hans hét Bjarni Kristjánsson og var fæddur 1828. Móðir hans hét Kristrún Magnúsdóttir og var fædd 1831. Jens var einn níu systkina. Fjölskyldan bjó í Kristjánsbæ eða Weldingsbæ í Hafnarfirði. Nafnið Kristjánsbær eða Weldingsbær, kemur frá langafa Jens, Kristjáni Welding,semfæddurvaríKaupmannahöfn 1761 og lést í Hafnarfirði 1844. Kristján Welding var versl- unarþjónn og steinsmiður. Hann kom til Hafnar- fjarðar um 1780. Faðir hans var Frederick Welding, fæddur um 1713 og látinn um 1780. Hann var íslandskaupmaður. Ritstjóri fræddi Steffen einnig um að gefin hefði verð út bók um Weldingættina á Islandi. Ef einhver lumar á fleiru sem Steffen hefði gagn af má senda honum línu á eftirfarandi heimilis- fang: Steffen Stummann Hansen, Senior researcher Toftanes 20, FO-520 Leirvrk, Föroyar Kvensa, dama, kvinna, sprund, kona, fröken, meyja. svanni, feima, húsfrú, hrund, heimasœta, freyja. Frændgarður II Ættmeiður Lögréttumannatal íslenzkir ættstuðlar Ölfusingar Vopna-Teitur Saga II1957 Bergsætt Ættartölubækur Jarðabók 1709 íslenzkar æviskrár Framættir íslendinga http://www.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.