Landneminn - 01.10.1955, Side 3
LANDNEhlNfl
'tg.: ÆskulySsjylkingin — samband ungra sósíalista. Ritstjóri: Einar Bragi Sigurðsson,
Ab.: Forseti. ÆskulýSsjylkingarinnar.
7. tölublað
1955
9. drgangur
Alþjoðasainlmiicl lýðræðissiiinaðrai" æskw
flO ára.
Hinn 10. nóvember eru tíu ár
liffin frá því er formlega var gengið
frá stofnun Alþjóðasambands lýð-
ræðissinnaðrar æsku. Stofnun sam-
bandsins hafði átt sér nokkurn að-
draganda. Á stríðsárunum tókst sam-
starf ýmissa lýðræðissinnaðra sam-
taka til baráttu gegn stríði. Árið
1942 var stofnað svonefnt Alheims-
ráð æskunnar, og boðaði það til
fyrstu alþjóðlegu æskulýðsráðstefn-
unnar í London haustið 1945. Var
Alþjóðasambandið stofnað í lok
þeirrar ráðstefnu, binn 10. nóvember
eins og fyrr segir.
Fyrstu skipti íslands
og Alþjóðasambandsins.
Ráðstefnuna í London sátu fjórir
Islendingar á vegum stúdentaráðs,
þeir Pétur Eggerz, forsetaritari,
Björn Th. Björnsson, listfræðingur,
Kristinn Gunnarsson, hagfræðingur
og Ásmundur Sigurjónsson, blaða-
maður. Þingseta þeirra fól þó ekki
í sér aðild að sambandinu, heldur
voru þeir nánast áheyrnarfulltrúar.
Höfuðtilgangur sambandsins var
frá upphafi að sameina æsku heims-
ins um kröfuna um varanlegan frið,
kröfur um rétt sinn til vinnu og
menntunar, kröfu um aukin mann-
réttindi æskunnar í nýlendunum og
fvlkja heimsæskunni til baráttu gegn
endurvakningu fasismans.
Heimsmót œskunnar.
Veigamesti liðurinn í starfi Al-
þjóðasambandsins hefur verið skipu-
lagning heimsmóta æskunnar. Fyrsta
heimsmótið var haldið í Prag 1947
með 17 þúsund þátttakendum frá 72
þjóðlöndum. Þar voru mættir 9 ís-
lendingar á vegum stúdentaráðs. Ann-
að heimsmólið var haldið í Búda-
pest 1949 með 12 þúsund þátttak-
endum frá rúmlega 90 löndum. Þar
mættu þrír íslendingar á vegum ÆF.
Þriðja heimsmótið var í Berlín 1951
með 26 þúsund þátttakendum frá
102 löndum. Þar voru mættir fjöru-
Líu og fjórir íslendingar, og er það
i fyrsta sinn sem skipulögð er fjölda-
þátttaka héðan í heimsmótunum.
Stofnuð var nefnd til að skipuleggja
undirbúninginn, og áttu ÆF, Félag
róttækra stúdenta og Iðnnemasam-
band íslnnds fnlltrúa í henni. Upp
úr þeirri nefnd var stofnuð Alþjóða-
samvinnunefnd lýðræðissinnaðrar
æsku að loknu Beilínarmótinu. Árið
1953 gerðist Félag ungra Dagsbrún-
armanna aðili að nefndinni auk
þriggja fyrrnefndra félagasamtaka.
— Fjórða heimsmótið var haldið í
Búkarest 1953 með 30 þúsund full-
trúunr fi'á 111 löndum. Þangað fóru
214 íslendingar, og var það tiltölu-
lega stærri hópur en frá nokkru
landi öðru. Á síðast liðnu sumri var
fimmta heimsmót æskunnar haldið í
Varsjá með 30 þúsund æskumönnum
frá 114 löndum, og sóttu það 130
íslendingar.
Heimsmótin hafa orðið æ fjöl-
breyttari, og verður þýðing þeirra
vart ofmetin. Milljónir æskumanna
unr allan heim hafa tekið þátt í
undirbúningi þeirra, og tugþúsundir
hafa tengzt persónulegum kynningar-
og vinaböndum á mótunum sjálfum.
Þegar Alþjóðasambandið var
stofnað töldu aðildarsamtök þess um
30 milljónir æskufólks, en nú er
meðlimatalan orðin urn 90 milljónir
— uugt fólk frá flestum löndum
heims.
LANDNEMINN 3