Unga Ísland - 01.11.1935, Blaðsíða 13
UNGA ÍSLAND
177
Vatnsberinn.
Eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson.
Ég sá hann koma heim með fullar fötur
og fara svo til baka, herðalotinn.
Leið hans lá í gegnum troðnar götur,
því gæfa hans var fyrir löngu þrotin;
og nú var hann orðinn niðurlútur
maður,
sem náungarnir bæði hæða og spotta,
og brunnurinn hans eini bjargarstaður;
nú bar hann vatn til heimila og þvotta.
Andlit hans var magurt, sjúkt og sogið;
samanbitnar varir aldrei klaga
þröngu kjörin. ... En bakið, það var
bogið
af burði vatnsins hina löngu daga.
Og augun sljó af áratuga stríði
og aflraunum við heimsins stranga
drottinn.
Landafræðisþraut:
Setjið stafi í stað krossanna:
komi :
1. xixxaxxx
2. Oxxo
3. xæxxvxx
4. Dxxxdxx
5. xxxmxxo
6. xexxex
1. Borg í Portúgal.
2. Fljót í Bandaríkjunum.
3. Borg á Sjálandi.
4. Borg í Þýskalandi.
5. Fljót í Suður-Ameríku.
6. Borg á Italíu.
Fremstu stafirnir lesnir ofan frá og
En stundum skein þar barnsins svipur
blíði,
sem birtu sló á gamla píslarvottinn.
Á kvöldin, þegar húmið yfir hnígur,
þá heyrist lágvær grátur frá ’ans barmi.
Og bænasöngl í blakka rökkrið stígur
og beiskir dropar falla ótt af hvarmi... .
Hann þurrkar burtu tár og þungan
stynur,
og þrammar áfram gegnum myrkrið
svarta.
Menn skilja ei, að vegamóður vinur
á vonadrauma til í sínu hjarta. —
Vatnsberi! Þú ert viljans mikli bróðir,
en varst að lúta hinum grimmu mönn-
um.
Og þótt’ú ættir enga milda móðir
og mættir strita brauðsins hörðu önn-
um,
þá geymdirðu eld í þínu göfga hjarta
á göngu þinni, bæði fyrr og síðla.
Og sífellt af því kærleiksbáli bjarta
böðlum þínum reyndir þú að miðla. —
öftustu stafirnir neðan frá, mynda
nafn á höfuðborg 1 Evrópu.
-----x-----
Frá Grikklandi.
Ungliðar R. K. í Perirhora skrifa:
,,Við höfum sagt mýflugunum stríð á
hendur. Við gröfum skurði, þar sem
mýrlent er, svo að vatnið renni á burtu
og mýflugurnar geti ekki verpt eggjum
sínum þar. Við stráum kalki yfir sorp,
er við sjáum, og einu sinni í viku göng-
um við um þorpið til að raðgæta, h'vort
hræ af húsdýrum hafi ekki verið skil-
in eftir á víðaviangi. Ef við finnum
eitthvert hræ, gröfum við það hið
skjótasta".