Unga Ísland - 01.11.1935, Page 16
Í80
UNGA ÍSLAND
LESKAFLAR FYRIR LITLU BÖRNIN
Litli broddgölturinn.
Eftir Povl Hammer.
Framh.
Broddgölturinn rölti áfram,
þangað til hann rak trýnið í und-
irskálina. Hann þefaði af mjólk-
inni og fann að lyktin var góð, og
rétt á eftir lapti hann af kappi
eins og dauðþyrstur köttur.
Þá gat Hans ekki stillt sig. „Nei,
nei. Er ekki gaman, pabbi? Sjáðu,
sjáðu!“ Broddgölturinn hætti að
lepja, þegar hann heyrði röddina.
Hann stóð hreyfingarlaus litla
stund, og hugsaði sig um, en svo
fór hann aftur að lepja.
Hans og Óli sáu nú greinilega
framan í broddgöltinn. Hausinn
var þakinn ljósbrúnu hári. Það
glitti í tvö tindrandi augu. En
skrítnast var að sjá, þegar hann
rak út úr sér tunguna og sleikti
mjólkina af svörtu trýninu. Þegar
hann var búinn með mjólkina,
steig hann með framfæturna upp í
skálina og sleikti hana innan.
Síðan hélt hann á brott. Það
var eins og hann liði eftir jörð-
unni, því að fæturnir sáust varla.
Hann flýtti sjer út undir runn-
ana í garðinum og faldi sig.
Hans og Óli ætluðu að elta hann,
en pabbi þeirra bannaði þeim
það og sagði: „Nú þarf broddgölt-
urinn að ná sér í mat, og við meg-
um ekki tefja fyrir honum“.
Litli broddgölturinn rölti síðan
óáreittur milli aldintrjánna, þar
sem Hans og Óli höfðu áður farið.
Broddgeltinum þótti ósköp gott að
éta nýja ávexti alveg eins og strák-
unum. Og þarna var nóg af per-
um og plómum. Það eru aðeins vel