Unga Ísland - 01.03.1938, Side 6
30
UNGA ÍSLAND
Kínverska sýningin.
í síðastliðnum janúar stóð yfir í
markaðsskálanum í Reykjavík,
sýning á kínverskum listiðnaði.
Sýning þessi var eign frú Oddnýj-
ar Sen og manns hennar, sem er
kínverskur háskólakennari. Sýn-
ing þessi vakti fádæma athygli, og
var hún sótt af þúsundum gesta.
Elstu börnum barnaskólanna var
boðið að skoða sýninguna, og fer
hér á eftir grein 12 ára telpu, sem
lýsir mæta vel, hvernig þessi sér-
kennilega sýning kom börnunum
fyrir sjónir. Ritstj.
í haust kom hingað til lands kona,
sem er gift kínverskum manni, og
heitir Oddný Sen. Hún kom með 2
börn, sem þau hjónin eiga. Frú Odd-
ný er íslenzk og er ættuð af Álftanesi.
Þegar styrjöldin byrjaði á milli Kín-
verja og Japana, fór hún hingað til
íslands með börnin, en maðurinn
hennar varð eftir í Kína. Hún kom
með ýmsa kínverska muni, og voru
sumir frá því 200 árum fyrir Krist.
Hún hélt sýningu á munum þessum í
Markaðsskálanum hér. Þau hjónin
voru 15 ár að safna þessu. Skólabörn-
um í elstu bekkjum skólanna hér var
boðið á sýninguna. Bekkurinn minn
fór 31. janúar, um morguninn. Á sýn-
ingunni var margt, sem var gaman að
sjá. Þar voru ýmsar guða-styttur,
gerðar úr postulíni o. fl. ákaflega
skemmtilegar, og bar herguðinn af
þeim öllum. Þar var bakki með 8 skál-
um, og var mynd á hverri skál. Mynd-
irnar voru af guðum Kínverja. Þar
Frú Oddný Sen.
voru föt frá Kína, brúðarpils, mjog
skrautleg, viðhafnarbúningur karla og
kvenna og barnaföt. Allur var þessi
fatnaður ákaflega mikið útsaumaður
og einkennilegur, ólíkur okkar fötum-
Þar voru litlir skór, en með þykkum
sólum. Voru þeir lítið stærri en á ný-
fætt barn og var þó sagt, að þetta vseru
skór af fullorðnum stúlkum. Prjónar
voru þarna, ekki ólíkir bandprjónum>
en breiðari í endann. Það voru 3 teg-
undir af þessháttar prjónum, og borða
Kínverjar með þeim. Einir prjónarnir
voru í hylki og mjög skrautlegir. Það
sem mér fannst allra merkilegast á
sýningunni var útskurðarlistin. Þar var
t. d. ferjubátur með allri áhöfn skor-