Unga Ísland - 01.03.1938, Blaðsíða 7

Unga Ísland - 01.03.1938, Blaðsíða 7
VNGA ÍSLAND 31 STEFÁN JÓNSSON: VINIR VORSINS. Framhald. Það var svo sem hægt að gleyma sér við að horfa á þetta allt. Ekkert lá á að fara heim. Nei, heim skyldi hann ekki koma strax. Hann fór niður að ánni og tók að kasta smásteinum út í hana til þess að sjá hringina, sem komu í vatnið. Svona ofarlega í daln- um er áin mjög lítil. Hún fellur niður í dalbotninn í aflíðan,di halla, með smáfossum hér og þar; en þar sem jafnsléttan tekur við, myndast stærsti fossinn. Áin fellur þar fram af dálitlu inn út úr ferskjukjarna, sem ekki sást þó greinilega nema í stækkunarglei’i. Þar var kúla, skorin út úr fílabeini. Hún var á stærð við lítinn handbolta og voru ellefu kúlur innan í henni. Var sagt, að þær væru allar gerðar úr einum fílabeinsbút. Þar voru myndir af kín- verskum húsum, skornar úr korki, mjög fínlegar og í ramma. Þar að auki var allskonar útsaumur, t. d. vegg- teppi, sjöl og dúkar. Allskonar skálar voru þarna og ílát, úr postulíni og uiálmum. Ekki má ég gleyma vegg- teppunum og pappírsvefnaðinum. Ótal margt var þarna, sem ég ekki fer að telja upp hér. Það var mjög fróðlegt sjá þetta, og ég hugsaði með mér, þegar ég fór út, að mikið hlyti fólkið í Kína að lifa öðruvísi en við hér á ís- landi. Og ég vildi óska, að ég sæi svona sýningu frá öllum löndum. bergi og með iðni sinni hefir vatnið myndað töluvert djúpt ker, undir berginu. Þangað uppeftir var Skúli hérumbil kominn, þegar dálítið kom fyrir, sem breytti áformum hans. — Þokan, sem legið hafði á brúnum dals- ins, hafði allt í einu orðið nærgöngulli og án þess að Skúli Bjartmar tæki eft- ir, hafði hún smálæðst að baki hon- um. Hún fyllti nú dalinn algjörlega og grúfði nú grá og köld yfir öllu, sem í dalnum bjó. Skúli var kominn tölu- vert langt frá heimili sínu og einhvers staðar þarna, austur með ánni, var hann nú staddur, sex ára karlmaður- inn, og sá ekki heim. Hann varð þó ekki beinlínis neitt hræddur, en nú var sú hugsun sterkust, að komast heim — heim —heim. Hann hljóp af stað heimleiðis og litlu, bústnu fæturnir báru hann eins hratt og þeir gátu, eitt- hvað, eitthvað út í þokuna. Hann hrasaði og datt í móunum, stóð upp og datt aftur. Allt í kringum hann var niðasvört þokan, hún hnapp- aðist á stráunum og varp silfurgráum lit á jörðina. Grasið, sem rétt áður var svo grænt, og jafnvel kongulóar- vefirnir og moldarflögin, allt var með sama lit. Og svona langt í burtu frá heimilinu varð þetta allt svo einmana- legt fyrir sex ára mann. Hann hljóp og hljóp áfram, áfram; tvær endur flugu frá fótum hans með hásu gargi, svo hurfu þær í þokuna, en garg þeirra lifði eftir hjá honum. Það læsti sig utan um hjartað, það kom yfir höfuð- ið og það gerði honum örðugt um and- ardráttinn, tárin komu fram í augun og hann kallaði örvæntingarrómi út í þokuna: — Mamma, ó, mamma mín!

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.