Unga Ísland - 01.03.1938, Blaðsíða 10
UNGA ÍSLAND
84
Svefninn.
Svefn og vaka skiptist á í lífi allra
æðri lífvera, en hvergi eins reglulega og
hjá manninum. í lífi manna er það
margt, sem er háttbundið, og nægir að
nefna hjartslátt og andardrátt sem
dæmi.
Enginn getur verið án þess að anda,
nema stutta stund, og eins er það með
svefninn, hjá heilbrigðum mönnum að
minnsta kosti.
Öndun og hjartsláttur eru hvort-
tveggja í hinni nánustu þjónustu hjá
sjálfu lífinu, hvorttveggja vinna að því,
að miðla hinum ýmsu líkamshlutum
nauðsynlegri starfsorku, jafnt í svefni
og vöku.
í vöku og starfi er orkuþörf líkam-
ans mjög mikil, og gætir hins þá eðlilega
minna, að hann sé byggður upp eða
endurnærður.
Hlutverk svefnsins er fyrst og fremst
það, að byggja upp, eða sagt með öðr-
um orðum, að fylla þau orkubúr, sem
tæmd eru í vöku og starfi.
Til þess, að þetta megi takast, verður
orkuþörfin að minnka meðan á svefnin-
um stendur, enda er það svo, að hreyf-
ingar og vöðvastarfsemi er mjög lítil í
svefni, og önnur starfsemi, er snýr að
umheiminum.
Sú starfsemi, sem veit beint að hinu
innra, minnkar einnig nokkuð í svefni.
Þannig slær hjartað hægar, öndun verð-
ur grynnri og hægari, meltingarfærin
starfa minna, og þannig mætti lengi
telja.
Hin innri líffæri fá þannig nokkra
hvíld, enda þótt hún sé ekki nálægt því
fullkomin, sökum þess, að starf hinna
innri líffæra er svo lífsnauðsynlegt, að
eigi má hlé á því verða.
Þeir hlutar líkamans, er hvílast best
og endurnærast í svefninum, eru vöðv-
ar og taugakerfi, einnig þeir hlutar lík-
amans, sem í sameiningu bera hita og
þunga dagsins gagnvart umheiminum.
Það er ekki hægt að vænta þess, að
maður, sem neitar líkama sínum um
svefn og hvíld, geti sýnt mikinn dugnað
eða afköst við líkamleg störf. Vöðvar
hans eru síþreyttir sökum þess, að þeim
er meinuð sú endurnæring, er svefninn
veitir.
Sama máli gegnir með þann, er vinn-
ur andleg störf. Ef hann er vansvefta,
verður minnið lakara, skarpskyggni og
ályktunargáfa sljófgast, gáfurnar fá
eigi notið sín.
Fyrir börn og unglinga er svefninn
ennþá nauðsynlegri en fyrir fullorðna,
og er það Ijóst, ef vér hugleiðum það,
að barnið er í örum vexti, bæði í líkam-
legum og andlegum skilningi. Þarfnast
unglingar því ekki aðeins hvíldar og
endurnæringar til viðhalds, heldur engu
síður til viðbótar og vaxtar.
Allir unglingar óska sér að skara fram
úr á einhverju sviði, sem þeim er hug-
leikið. En hvort það er við nám, leika,
íþróttir eða hin algengu lífsstörf, getur
enginn vænst að ná besta árangri, nema
hann veiti sér nægan svefn.
Jóhann Sæmundsson.
Tveir nýir þættir af les- og viðfangs-
efnum munu framvegis birtast við og
við í blaðinu: Móðurmálið og Þjálfun
hug og handar. Marteinn Magnússon
kennari mun fyrst um sinn velja efnið
í þessa kafla.