Unga Ísland - 01.03.1938, Blaðsíða 19
VMGA ÍSLAND
Hindin á kálfinn, en ljónið er bara
ræningi.«
Ljónið tók undir sig stökk og
ætlaði að hremma kanínuna, en
hún skautst inn i holu sína og
slapp út um hinar dyrnar bak við
runnann.
»Ég skal svelta þig í hel,« öskr-
aði ljónið.« Það hélt, að kanínan
væri kyr inni, lagðist niður og
beið hjá holumunnanum dag eftir
dag. Það varð magurt og lasburða
af sulti, en þorði aldrei að skreppa
frá eftir æti, því að það hélt, að
kanínan slyppi þá út. Það beið
hjá holunni, þangað til það dó úr
hungri, en hindin fékk aftur kálfinn
sinn.
Úr bréfi til Unga íslands.
Fimmtán ára piltur, sem bœði fyr og
nú hefir sent U. t. prýðilegasta efni til
birtingar, skrifar blaðinu:
-----»Mér þótti mjög gaman að fá »Alma-
nak Skólabarna«. Ég er ykkur mjög
þakklátur fyrir að byrja aftur á útgáfu
þess. í síðastliðin tvö ár, þegar alma-
nakið kom ekki út, hélt ég áfram að
skrifa sumar töflurnar, t. d. fuglakomur
á vorin, hreiður fundi o. s. frv.
Töflurnar í almanakinu eru vel til falln-
ar að vekja eftirtekt þeirra, er það eiga.
Ég hefi mjög gaman af að kynna mér
háttu fuglanna. Fylgjast með eggjum og
ungum, o. s. frv.«. — — —
Með bestu kveðju.
Ólafur Þ. Inguarsson,
(15 ára).
43
Þjálfun huga og handar. I.
1) Skiptu þessari mynd í 3 jafna hluta.
2) Skrifaðu ósamstæða orðið sér á blað,
svo vel sem þú getur:
Silfur. Tin. Togleður. Gull. Blý.
3) Skrifaðu næstu tölu við í röðinni:
a) 1, 3, 5, 7, 9.
b) 5, 10, 15, 20.
c) 3, 9, 27.
d) 2, 1, l/2, l/4.
4) Siggi er stærri en Ása systir hans,
og hún er ekki eins stór og Nonni
■ bróðir þeirra. Hvort er stærra,
Nonni eða Ása?
5) Sonur Gríms heitir Óli. Faðir Gríms
heitir Andrés. Hvað er Óli mikið
skyldur Grími?
6) Teiknaðu þessa mynd á laust blað,
klipptu hana í fjóra einslaga hluta
og raðaðu þeim þannig saman, að
þeir myndi ferning.