Unga Ísland - 01.06.1939, Side 10

Unga Ísland - 01.06.1939, Side 10
84 UNGA ÍSLAND — Gefðu mér brjóstsykur, sagði Bensi. ilvað yrði gert við hann? Tugthús. — Fullkomin útskúfun frá öllu. Nei, nei, nei, þetta skyldi aldrei komast upp, aldrei, aldrei, aldrei. — Gefðu mér brjóstsykur, sagði Bensi. Skúli fór niður í vasa sinn og sótti bréfpokann með brjóstsykrinum. Hann stakk upp í sig mola án þess að verða þess var eða finna bragð hans. Það kom einhver gangandi á götunni að baki hans. Allt var auðvitað komið upp og nú var kaupmaðurinn á hælum hans. Á næsta augnabliki yrði þrifið í öxl hans. Ónei, þetta var bara þungstígur verkamaður á leið til vinnu sinnar. Þannig leið svo tíminn, að þótt margt nýtt bæri fyrir augu drengjanna, hélst athygli Skúla mjög lítið við það, hún hvarflaði stöðugt til hnífsins. Hann fann með sjálfum sér að hann hafði breytt illa og hann óttaðist afleiðingar þess. En eigi að síður vaknaði jafn- framt ást í brjósti hans til þessa und- ursamlega hnífs og hann þráði þá stund heitt og innilega, er gæfi honum tóm til að virða dýrgripinn fyrir sér í ein- rúrni. Hann hafði enn enga peninga fengið fyrir hagalagðana sína, því honum var sagt að verslunin mætti ekki vera að því að veita ullinni viðtöku fyrr en næsta dag. Hann varð þó ekki fyrir neinum vonbrigðum af þessu; hnífur- inn var honum allt. Svo átti þó að lokum að halda heim- leiðis. Þeir félagarnir áttu að verða samferða heim ásamt kaupafólkinu, er fara ætlaði að Holti og kaupakonunni að Hamri. En er til átti að taka, kom dálítið fyrir, sem breytti áæthminni. Það kom nefmlega dálítið upp úr dúrn- um, og það sem kom upp úr dúrnum var það, að kaupakonan, sem var að fara að Hamri, vildi fá að vera sínum gjörðum ráðandi. Þetta var ákaflega skrítin stúlka, ef það var þá stúlka. Hún var svarthærð, en hárið var illa greitt og úfið. Ekki var hún í pilsum, eins og Skúli hafði þó haldið að kvenfólki bæri að vera. Ónei, þessi var nú í buxum, ekki bar á öðru. Skúli glápti á hana og gleymdi nú hnífnum í bili. Ekki var hún ólag- leg og hún hafði góð áhrif á mann á vissan hátt, hin dökku augu hennar voru skær og fjörleg. — Ég ætlaði að láta þig sitja á þess- um brúna hérna, sagði Ólafur við hana. — Je, minn almáttugur, sagði stúlk- an. Þessum! Ég hefi aldrei riðið í söðli á minni lífsfæddri æfi. Ég dett áður en ég kemst á bak. Guð minn í himn- inum! — Nú, það var nú verra, þú hefir aldrei riðið í söðli. En ætii að þetta lagist ekki strax. Ég hefi bara engan hnakk. — Nei, nei, nei, það lagast ekki. Ég fer ekki fet upp í svona gálga, ekki fet. Nei, það geri ég aldrei nokkurn- tíma á æfinni. Ég ætla ekki að sálga sjálfri mér. Ekki hefi ég ætlað mér það. Þér verðið að útvega mér hnakk, annars fér ég suður aftur. Það geri ég, það læt ég yður vita, læt þig vita, þið kunnið víst ekki að þéra sveitakarlarn- ir. — Annars get ég bara setið hér uns þú hefir útvegað mér hnakk. Hún hlammaði sér niður á vagn- kjálka og brosti kankvíslega framan í viðstadda. Þetta leit ekki sem best út. Ólafur bóndi lyfti húfunni lítið eitt og klór-

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.