Unga Ísland - 01.06.1939, Side 15

Unga Ísland - 01.06.1939, Side 15
89 tÍNGA ÍSLANl) --------------------- það hús og girðingar með alls konar lögun, en líka grasblettir, rósarunnar og blómabeð. Getur vel farið svo, að manni gleymist um stund, að þetta er dýragarður, en hugsi sem svo: Þetta er yndislegur skrúðgarður! Heyrum við nú ýms hljóð, sum þekkjum við, önnur ekki. Mörg eru einkennileg, sum furðuleg. Hér er margt af fólki. Hingað er ódýrt að komast úr hvaða hluta borg- arinnar sem er með sporvögnum, sem flytja mann langar leiðir fyrir nokkra aura. Fólk er ánægt hér. Hér er það komið út úr mesta borgarhávaðanum, út úr gráu göturykinu, inn í fegurðina, inn í ríki náttúrunnar. Bæði í Kaupmannahöfn og öðrum stærri borgum, eru margskonar garð- ar fyrir fólk, skemmtigarðar.------ Sumir þeirra eru svo náttúrulegir — svo fagrir — að þeim sem þar dvelur, finnst stundum þeir vera komnir langt burt úr borginni, upp í fallega sveit. Þarna geta börnin leikið sér. Móð- irin setið og varpað frá sér heimilis- áhyggjunum um stund, og gamal- mennið hvílt sig. Þessir garðar eru fyrst og fremst paradís hinna snauðu. Þeirra sem ekki hafa efni á að fara upp í sveit á sumrin — þeirra, sem verða að hýrast í stórborgarþrengsl- unum og allri þeirri óhollustu, and- • legri og líkamlegri, sem því fylgir. Þó borgirnar sjálfar beri ekki mikinn vott uni sumar, þá eru þessir garðar þó í sumarklæðum. Allir kunna auðsjáanlega vel við sig í dýragarðinum, hvort sem þeir ganga á hinum ágætum götum, hvíla sig á þægilegum bekkjum, horfa á spegil- uiýnd sína í tærum vatnsfletinum, hall- ast fram á járngrindurnar og horfa á dýrin, eða sitja í veitingaliúsum, eta og drekka og hlusta á hinn ágæta hljóðfæraslátt. Þeir sem eru sparsam- astir og reglusamastir forðast veitinga- húsin, þessa eyðslustaði , sem tæma pyngjuna oft áður en maður veit af. Þeir hafa með sér nestispakka að heiman, sitja þeir á bekkjum, sem standa hér og þar um garðinn, eta smurt brauð eða ávexti, en kasta um- búðunum í körfur, sem standa hjá bekkjunum, engum kemur til hugar að fleyja bréfi á veginn. En margir fleyja öðru á veginn, brauðmolum handa litlum spörfuglum, sem vappa vinalegir og gæfir við fætur þeirra, og tína sér æti — fræ og skordýr. Þessir íuglar eru ekki ,,eitt af dýrunum í dýragarðinum“, þeir eru frjálsir að fljúga hvert sem þeir vilja. Þessir smá- fuglar, eru algengir í Danmörku og eru mikið inni í Kaupmannahöfn, í görðum og á götum úti. Þeir eru afar gæfir vegna þess hvað er verið gott við þá. Það mætti líka gera íslenska fugla gæfari en þeir eru með því að umgangast þá með meiri vinsemd en gert er. — Fólk gefur þeim mat. Hæn- ir þá að sér á marga lund. Það hefir svo mikið yndi af því að heyra þá syngja og sjá þá hlaupa og fljúa kring- um húsin sín. Danir eru yfirleitt miklir dýravinir. Standa þeir Islendingum framar í því efni. En Islendingar hafa bæði fyr og síðar staðið á sorglegu lágu menningarstígi um meðferð á dýrum. Eitt af stærri húsunum í dýragarð- inum verður fyrir okkur. Ætlum við að ganga þar rakleitt inn, en komumst hvergi. Hringjum við þá bjöllu, sem við sjáum. Kemur þá dyravörður og

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.