Unga Ísland - 01.10.1941, Side 18
Sækja smjör í strokk.
Þátttakendur þrír. Tveir þeirra taka
sér stöðu hvor cfegnt öðrum og styðja
höndum hvor á annars axlir. Einhver
léttur hlutur, t. d. húfa, er látin á gólf-
ið rnilli þeirra. Það er smjörið. Sá, sem
þrautina leysir á að ná smjörinu á
þann hátt, að hann klifrar upp á axlir
hinna og stingur sér á höfuðið niður í
strokkinn, milli arma þeirra. Hann
grípur með höndunum hvar sem hann
getur náð festu og með fótunum heldur
hann sér einnig. Síðan tekur hann
smjörið með munninum og á nú erfið-
ustu þrautina eftir, þá, að komast með
smjörið upp úr strokknum aftur.
Hvar er bílstjórinn?
Gunnar (í náttúrufræðitíma) : —
Margar flugur eru svo þungar, að þær
vega eitt kíló.
Kennarinn: Hvaða bull er í þér
drengur. Þú veizt, að það er engin
fluga svo þung.
Gunnar: Ég sagði margar flugur.
UNGA ÍSLAND
Eign Rau?5a Kross íslands.
Ivemur út 10 sinnum á ári í 16 síðu lieftum.
\ Gjalddagi 1. aprll.
(VerÖ blatSsins er kr. 4,50 árg.
Ritstjórar:
Stefán Jönsson* SÍRurtÍur Helgason.
Framkvæmdastjórn blaösins annast:
Arngrímur Kristjánsson.
AfgreiÖsla er í skrifstofu Rauöa Ivrossins.
Hafnarstræti 5 (Mjólkurfélagshúsinu).
Pósthólf 927.
Prenta'Ö í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Maður nokkur kom heim til átt-
haganna eftir langa fjarveru og mætti
líkfylgd. — Hvern er verið að jarða?
hvíslaði hann að einum þeirra, er í
líkfylgdinni voru.
— Það er hann Jóhann gamli, svai'-
aði maðurinn.
— Nei, hugsa sér, er hann dáinn?
— Já, auðvitað. Heldurðu kannské
að þetta sé æfing?
★
Dóra litla: Eigum við að látast verá
hjón?
Palli litli: Nei, mamma segir, að við
megum ekki slást.
★
I biðstofu læknisins:
— Nei, góðan daginn, fröken Frið-
riksen, það var þó gaman, að við
skyldum hittast hér.
Leiðrétting: Nokkrar prentvillui'
hafa slæðzt inn í síðasta blað. 1 kvæúi
á fremstu síðu stendur: „sem ribsber
vaxa í runna“, á að vera ribstré. í sög-
unni ,,Hyggindi, sem í hag koma“,
bls. 107 stendur: ,,Og eina og fimm-
tíu fyrir það“, á að vera: eftir það.
Bls. 111 í kvæðinu „Vorkvöld“ stend-
ur: „Þeir einn af öðrum tínast“, á-
að vera týnast.
128
UNGA ÍSLAND