Verktækni - 16.02.1988, Síða 6

Verktækni - 16.02.1988, Síða 6
ORLOFSSJÓÐUR BHMR AUGLÝSING TIL ORLOFSGESTA OBHMR Orlofssjóður BHMR auglýsir hér með um- sóknarfresti vegna páska- og sumarútleigu á orlofshúsum í Brekkuskógi og íbúð á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 15. mars n.k. vegna páskavikunnar 28.3-4.4. 1988 en til 1. maí n.k. vegna sumarorlofstímans 20.5.-16.9. 1988. Sérstök umsóknareyðublöð fást á skrifstofu BHMR, Lágmúla7,108 Reykjavík og áskrifstofu Samvinnuferða—Landsýnar, Austurstræti 12, Reykjavík. Umsóknum skal skilað ti skrifstofu BHMR. Páskavikan telst frá mánudegi 28. mars til mánudags 4. apríl en á sumarorlofstímanum er leigt fráföstudegi til föstudagsfráog með hvíta- sunnuhelginni. Vikuleigan er 5.000 krónur á þessum tíma. Strax að liðnum umsóknarfresti er unnið úr umsóknum. Félagsmenn í Orlofssjóðnum (þ.e. félagsmenn í stéttarfélögum háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna) eiga forgang fram yfir aðra umsækjendur. Einnig er reynt að gæta þess að þeir félagsmenn sem minnst hafa notið orlofshúsa BHMR hafi forgang fram yfir aðra umsækjendur. Fyrir og eftir páskaleyfi og sumarorlofstíma geta allir leigt orlofshús BHMR og sjá Sam- vinnuferðir— Landsýn um það verk fyrir Orlofs- sjóð BHMR. STARFSMENNTUNARSJÓÐUR RÍKISSTARFSMANNA í BANDALAGI HÁSKÓLAMENNTAÐRA RÍKISSTARFSMANNA STARFSREGLUR STRIB 1. Umsóknum skal skilað á sérstökum um- sóknareyðublöðum til STRIB, c/o BHMR, Lág- múla 7, 108 Reykjavík. 2. Stjórn STRIB heldur reglulega fundi þar sem fjallað er um umsóknir og miðast umsóknar- frestur fyrir þessa fundi við lok hvers ársfjórð- ungs. 3. Umsækjendurskulu vandafrágang umsókna og tilgreinanákvæmlegatil hvers þeirætlaað verja styrkfé auk annarra atriða sem um er spurt á eyðublaði. 4. Stjóðstjórn setur reglur um hámarksstyrk- fjárhæðir. Þær eru nú sem hér segir: — vegna innanlandsverkefna allt að 12.000 kr. — vegna ferðar til útlanda og námskostn- aðar erlendis allt að 35.000 kr. 5. Greiðslur úr sjóðnum skulu að jafnaði fara fram eftir á gegn framvísun reikninga og ann- arra gagna sem sanna að styrkur nýtist til þeirra verkefna sem ætlað er. Styrkur miðast við að greiða kostnað vegna náms- og ferða- kostnaðar umsækjanda. 6. Einungis sjóðfélagar STRIB geta fengið styrki úr sjóðnum. Allir félagsmenn í aðildar- félögum BHMR eru jafnframt sjóðfélagar í STRIB, en einnig starfsmenn þeirra opinberu stofnana sem gerst hafa aðilar að sjóðnum með öðrum hætti. Umsækjandi skal vera starfsmaður ríkisins þegar hann sækir um og þegar nám/námskeið er sótt. 7. Styrkhæfireru þeirsjóðfélagarsem ekki hafa hlotið hámarksfyrirgreiðslu s.l. 2 ár, en við úthlutun skulu þeir njóta forgangs sem aldrei hafa hlotið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum. 6 VERKTÆKNI — 16. FEBRÚAR 1988

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.