Neytendablaðið - 01.12.1997, Síða 7
Gæða- og markaðskönnun
Þótt börnunum líki vel að vera í
göngugrind eru þær mjög
slæm uppfinning. í göngugrind
getur barnið á skömmum tíma
komið sér í margar og hættulegar
aðstæður og slysatíðni er há. í
nýrri evrópskri rannsókn kemur
einnig í Ijós að margar göngu-
grindur uppfylla ekki einföldustu
öryggisreglur og ekki eru til neinir
staðlar um hvernig göngugrind á
að vera.
Evrópsk rannsókn
Intemational Testing hefur í samvinnu
við Evrópusamtök neytenda og með
stuðningi Evrópusambandsins gert ítar-
lega könnun á slysatíðni vegna barna-
göngugrinda, samhliða gæðakönnun á 31
göngugrind á markaði í Evrópu.
Neytendablaðið hefur kannað framboð á
göngugrindum í verslunum í Reykjavtk,
á Akureyri og á Isafirði. Við fundum
ellefu mismunandi göngugrindur í versl-
unum, en auk þess er hægt að kaupa eina
í þýskum póstlista. Af þessum tólf
göngugrindum em fimm í gæðakönnun-
inni.
Barnagöngugrind af sömu gerð getur
verið misdýr eftir því hvað fylgir með. Er
göngugrindin til dæmis bara með borði
eða einnig leikföngum? Verð á sömu
barnagöngugrind getur einnig verið
breytilegt eftir verslunum.
Gæðakönnunin
I rannsókn Intemational Testing var litið
til ýmissa áhættuþátta, svo sem hvort
bömin geta klemmt sig, hvort á henni eru
oddhvassir kantar og hlutir, hvort á
grindinni eru litlir hlutir sem börn geta
kyngt eða snúrur sem þau geta vafið um
hálsinn á sér. Auk þess mældur hámarks-
hraðinn sem barn getur náð á göngu-
grindinni.
í mörgum tilvikum losnuðu viðvörun-
armerkingar af grindunum eða aðrir
smáhlutir sem hætta er á að bömin kyngi.
Flestar barnagöngugrindanna stóðust
ekki stöðugleikaprófun og í þremur
tilvikum var hætta á að böm kyrktu sig
þar sem á þessar grindur voru festir leik-
fangasímar og lengd snúrunnar var meiri
en 220 mm, sem er hámark samkvæmt
leikfangastaðli. Flestar göngugrindurnar
geta náð 8 til 10 kílómetra hraða, sem er
mikill hraði fyrir bam á þessum aldri.
Læra börnin að ganga
í göngugrindunum?
Barnagöngugrind veitir barninu mikla
möguleiká á hreyfingu löngu áður en það
getur gengið. Margir foreldrar kaupa
göngugrind í þeirri trú að þær hjálpi
barninu að læra að ganga fyrr en ella.
Þessi fullyrðing stenst þó ekki. Rann-
sóknir benda frekar til hins gagnstæða,
enda geta göngugrindur tafið fyrir eðli-
legri hreyfigetu barna, þar sem hætt er
við að þau læri aldrei að skríða ef þau
byrja snemma í grind. Þó eru barna-
göngugrindur markaðssettar af fram-
leiðendum til þessara nota.
Barnagöngugrind eykur hreyfanleika
barnsins umfram þroska þess. Með að-
stoð göngugrindarinnar getur barnið
komist á mikla ferð og lent í margskonar
hættu.
Slysatíðni há
Ástæður slysa vegna barnagöngugrinda
eru margar. Bömin sitja hærra í göngu-
grindinni og ná í hluti sem þau hefðu
Ekki gefa barna-
göngugrind í jólagjöf
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1997
7