Neytendablaðið - 01.06.1999, Síða 3
í stuttu máli
íslendingar í
fjórða sæti í
farsímaeign
Islendingar eru í fjórða sæti
meðal jarðarbúa hvað varð-
ar farsímaeign. Þegar tekið
hefur verið tillit til íbúafjölda
eru það aðeins frændur okkar
í Svíþjóð, Noregi og Finn-
landi sem slá okkur við, alla-
vega ennþá. Á meðan 37,3%
Islendinga eiga farsíma eiga
58,5% Finna slíkt þarfaþing.
Þessar upplýsingar eru frá
European Mobile Commun-
Stöð 2 í
Danmörku vill
ication (EMC) og er miðað
við 1. janúar síðlastliðinn.
Símafélög í iðnríkjunum
reikna með því að þegar fram
líða stundir verði hlutfall far-
síma á hvern íbúa komið yfir
100%, sem þýðir að sumir
neytendur framtíðarinnar
muni eiga meira en einn far-
síma. Á sama tíma og síma-
notkunin eykst stöðugt í hin-
um vestræna heimi bíða 150
milljónir jarðarbúa eftir sím-
um til eigin nota. Ný rann-
sókn sýnir jafnframt að innan
við helmingur jarðarbúa notar
símaþjónustu. Það þýðir því
Símafélögin telja að einn gemsi muni ekki duga öllum neytend-
um íframtíðinni og sumir muni því eigafleiri en einn í notkun
samtímis. Ljósmynd: Sif Guðbjartsdóttir.
að virkir símnotendur eru ná- 3. Svíþjóð 45,7%
lægt þremur milljörðum. 4. ísland 37,3%
Hér er listi EMC yfir þær 5.Japan 36,4%
tíu þjóðir sem skara fram úr í 6. Ítalía 35,6%
farsímaeign: 7. Lúxemborg 8. Ástralía 32,1% 31,4%
1. Finnland 58,5% 9. Danmörk 30,8%
2. Noregur 47,6% 10. Portúgal 29,4%
bæta barna- ----------------—7---------7-----
augiýsingar Ertu tryggður 1 sumarfriinu?
Danska ríkissjónvarpið er
með tvær stöðvar, Stöð
1 og Stöð 2. Sú fyrrnefnda er
fjármögnuð með afnotagjaldi
eins og hér, en Stöð 2 er með
auglýsingum. Nú hefur full-
trúi stöðvarinnar í vinnu-
nefnd með þátttöku stórra
auglýsenda lagt fram tillögur
um að stöðin auki siðferði í
barnaauglýsingum. „Til-
gangurinn er að fá fram um-
ræðu um barnaauglýsingar
og auka siðferðið við mark-
aðsetningu gagnvart böm-
um,“ segir Marianne Pittel-
kow, stjórnandi lögfræði-
deildar stöðvarinnar. Þetta
frumkvæði getur kannski
dregið úr þeim hríðarveðmm
sem staðið hafa undanfarið
frá danska menntamálaráðu-
neytinu gegn barnaauglýs-
ingum, en það hefur jafnvel
hótað banni við slíkum aug-
lýsingunum.
011 erum við með einhverj-
ar tryggingar og sum
okkar em sennilega marg-
tryggð. Þó koma alltaf upp
vandamál vegna vantrygg-
inga, ekki síst á ferðalögum.
Það er því full ástæða fyrir
alla þá sem eru á leið til út-
landa að kanna hvernig trygg-
ingarnar standa. Það getur
margborgað sig, ekki bara til
að fyrirbyggja margtrygg-
ingu, heldur ekki síður til að
vera með nægar tryggingar ef
veikindi koma upp, maður er
rændur og svo framvegis.
Hafið samband við trygginga-
félag ykkar ef þið eruð í vafa.
Einnig er boðin viss trygg-
ing ef farseðill hefur verið
greiddur með kreditkorti. En
það er rétt að gæta að sér í
þeim efnum. Undanfarin ár
hafa kortafyrirtækin breytt
nokkuð tryggingaskilmálum
ferðatrygginga sinna. I mars
1995 var skilmálunum breytt
á þann veg að einungis em
greiddar örorkubætur þegar
örorkustig er orðið 16% eða
meira. Sú breyting varð svo í
maí á þessu ári að þegar greitt
er með gullkortum fyrirtækj-
anna verður korthafi að
greiða að minnsta kosti helm
ing ferðarinnar með kortinu
til að vera tryggður en áður
nægði gullkorthöfum að
greiða einungis hluta ferðar-
innar með kortinu.
Enn um
Eins og við sögðum frá í
síðasta tölublaði var það
álit umboðsmanns Alþingis
að samgönguráðuneytið hafi
ekki farið rétt að við úthlut-
un trygginparfjár ferðaskrif-
stofunnar Istravels þegar
rekstur hennar stöðvaðist.
Af því tilefni sendu Neyt-
endasamtökin bréf til sam-
gönguráðuneytisins fyrir
hönd nokkurra félagsmanna
sinna og fóru fram á það við
ráðuneytið að mál félags-
mannanna yrðu endurskoð-
Istravel
uð með hliðsjón af áliti um-
boðsmanns Álþingis. Fyrir
skömmu barst svo svarbréf
ráðuneytisins og var á þá
leið að það teldi ekki ástæðu
til að aðhafast frekar í mál-
inu. Neytendasamtökin hafa
ritað samgönguráðuneytinu
bréf þar sem þau fara fram á
rökstuðning ráðuneytisins.
Framhald málsins er á þess-
ari stundu óljóst og gæti allt
eins verið að það endaði fyr-
ir dómstólum.
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1999
3