Neytendablaðið - 01.06.1999, Síða 20
Kynlífið
Viagra - töfralyf síðasta áratugar
aldarinnar eða bölvaldur heilbrigðra?
Viagra, eitt umtalaðasta lyf
okkar tíma, er senn að
koma á markað hér á landi.
Sem lyf er það einkar athygl-
isvert, frá sjónarhorni lækna-
vísinda og efnafræði en ekki
síður sálfræðinnar. Sú stað-
reynd að um 10% allra karl-
manna þjást af getuleysi sem
orsakast af ónógri stinningu,
og um það bil 52% karlmanna
á aldursbilinu 40-70 ára, gerir
að verkum að þörf fyrir lyfið
er mikil. Menn eins og Bob
Dole hafa dásamað lyfið fyrir
verkun þéss enda má rétt
ímynda sér þá ánægju og
sjálfsstyrkingu sem það getur
valdið, ef viðkomandi hefur
ekki um langa hnð getað nýtt
sér þau gæði sem náttúran
leggur hverjum og einum
karli til.
Ekki ástarlyf
Sé lyfið notað í réttum til-
gangi er það í lagi en mis-
notkun á því getur haft alvar-
legar afleiðingar. Viagra, sem
þekkt er undir vísindanafninu
sildenaffl-cítrat, virkar á bæði
kynin og er ekki ástarlyf, þ.e.
kynörvandi, heldur grípur það
inn í ferli sem einungis veldur
vélrænni stinningu. Hver sá
sem tekur lyfið verður með
öðrum orðum að sjá sér sjálf-
ur fyrir kynörvun. Taki heil-
brigður maður lyfíð getur það
valdið vefjaskaða af súrfefnis-
skorti vegna þess að stinning-
in stendur mun lengur en nátt-
úran telur þarft (framleiðandi
Viagra ráðleggur fólki að leita
læknisaðstoðar þegar í stað ef
stinning hefur staðið yfir
lengur en 4 tíma!). Verði
getnaðarlimur eða snípur fyrir
alvarlegum skaða getur það
haft í för með sér endanlegt
ólæknandi getuleysi sem or-
sakast ekki af ónógri stinn-
ingu. Einnig verður að gæta
þess að viðkomandi sé ekki
með vissa hjartasjúkdóma þar
sem lyfið hefur valdið dauða
20
fólks með slíka sjúkdóma.
Það ítrekast því að enginn
skyldi nota lyfið nema að
höfðu samráði við lækni, jafn-
vel þótt viðkomandi þjáist
ekki af hjartasjúkdómum og
hægt sé að kaupa það á net-
inu!
Saga Viagra
Saga Viagra hófst fyrir 14
árum þegar efnafræðingar hjá
lyfjafyrirtækinu Pfizer voru
að þróa lyf gegn hjartaöng og
háum blóðþrýstingi. Verkefni
þeirra var að hindra virkni
ákveðins ensíms sem brýtur
niður boðefni sem veldur
æðavíkkun og gæti þannig
slegið á blóðþrýsting. Fyrir
var þekkt ofnæmislyfíð Zapr-
inast, sem ekki hafði verið
markaðssett af hálfu þeirra
sem þróuðu það, var æðavíkk-
andi en hafði einnig óæskileg-
ar aukaverkanir. Rannsóknar-
hópurinn hófst handa við að
breyta Zaprinast til að fá
meiri sértæka virkni. Þróunar-
starfið tók fjögur ár og á með-
an voru búin til og prófuð
1600 efnasambönd. Viagra
leit dagsins ljós 1989 og var
þá þekkt undir nafninu UK
92480 eða bara sildenafíl. Við
prófanir þessa efnasambands
á sjúklingum með alvarlega
hjartaöng uppfyllti það ekki
þær væntingar sem menn
höfðu. Á sama tíma voru
gerðar þoltilraunir og tilraunir
til að kanna hámarksskammt
sem hægt væri að gefa af lyf-
inu til langframa án aukaverk-
ana. Vegna stærðar skammts-
ins tilkynntu sjálboðaliðamir
um aukaverkanir, svo sem
höfuðverk, ógleði, sjóntrufl-
anir, vöðvaverki og breytingar
á limstinningu. Þá var ákveð-
ið að prófa lyfið gegn getu-
leysi þrátt fyrir að vísinda-
mennimir vissu ekki hvemig
efnasambandið virkaði. Síðar
kom í ljós, í rannsóknum
þeirra sem að hlutu Nóbels-
verðlaunin á síðasta ári, að
virknin tengjist hlutverki NO
sem boðefnis í líkamanum.
I lokarannsóknunum sem
gerðar vom í Bretlandi, Sví-
þjóð og Frakklandi á 225
karlmönnum kom fram að
88% þeirra sem fengu lyfið
sögðu að kynlíf þeirra hefði
batnað til muna og rúmlega
90% vildu halda áfram að
taka lyfið. Af þeim sem hættu
töku lyfsins vom aðeins 4%
sem að sögðu að lyfið virkaði
ekki og 4% hættu vegna auka-
verkana. í ljós kom að virkni
lyfsins var í réttu hlutfalli við
skammtinn, sem að sjálfsögðu
gleður hjarta hvers sérfræð-
ings.
Líka fyrir konur?
Sem stendur hefur Viagra
hjálpað milljónum karlmanna
sem þjást af getuleysi. í raun-
inni er ekkert því til fyrirstöðu
að þetta lyf geti hjálpað kon-
um sem þjást af samskonar
stinningarleysi á sníp, sem
veldur því að þær eiga erfítt
að fá fullnægingu. Lyfjafyrir-
tækið rannsakar nú áhrif Vi-
agra á 500 konum í Bretlandi,
en mælir ekki enn sem komið
er með notkun þess fyrir kon-
ur.
Byggt á: Chemistry in
Britain, 1, 35, (1999), bls 24,
vefsíðu Pfizer um viagra:
http://www.viagra.com og
NBC.
NU Stinning
Svampvetur i
(Corpus cavemosum) 4
PDE5
t
Hvernig virkar Viagra
Kynferðisleg örvun í heila veldur því að nituroxíð (NO) losn-
ar úr taugaendum svampvefja og æöum í kynfærum og
kveikir á ensími sem heitir guanýl-sýklasi. Það breytir gú-
anósínþrífosfati (GTP) yfir í sýklískt gúanósínmonofosfat
(cGMP). Þetta veldur æðavíkkun og meira blóð flæðir inn f
liminn eða snfpinn og veldur stinningu. Samtímis er cGMP
brotið niöur af fosfódíesterasa, gerð 5 (PDE5), þannig að úr
veröur gúanósýlmonofosfat (GMP) sem er óvirkt. Ef cGMP
hleðst ekki upp vegna ónógrar framleiðslu á NO verður
engin stinning. Hér grípur Viagra inn í með því aö hindra
PDE5 í að brjóta niður cGMP og cGMP hleðst upp. Viagra
virkar því án tillits til þess hver orsök lítillar NO framleiðslu
er.
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1999