Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 5

Neytendablaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 5
I stuttu máli Lykilorð að læstum síðum á netinu Evrópa: Öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á að auka Til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda þeg- ar nýjar bifreiðir eru hannað- ar hefur verið lagt til að framleiðendur innan Evr- ópusamtaka bifreiðafram- leiðenda (ACEA) gangist undir ákveðnar skuldbind- ingar. Evrópusambandið tel- ur að þessar skuldbindingar uppfylli þær væntingar sem það gerir á þessu sviði. Taka á lokaákvörðun um sam- þykkt þessara skuldbindinga eða jafnvel lagasetningu nú í árslok. Þar er annarsvegar talað um slysa-öryggi (til að draga úr tjóni þegar ekið er á gangandi og hjólandi vegfar- endur) og fyrirbyggjandi öryggi (til að koma í veg fyrir slík slys). Fyrirbyggjandi ráðstafanir eru þessar helstar: • ABS-hemlakerfi verður í 90% nýrra bifreiða frá ár- inu 2003 og í öllum bif- reiðum ekki síðar en frá og með júlí 2004. • Dagljósabúnaður verður í 90% nýrra bifreiða frá ár- inu 2002 og í öllum bif- reiðum frá og með október 2003. Takmarka á slysatjón með þessum aðgerðum einkum: • Bifreiðaframleiðendur framleiða ekki né mark- aðssetja stálgrindur fram- an á stuðara (svokallaðar kengúrugrindur, e. bull- bar) eftir janúar 2002. • Strangari kröfur verða gerðar til skylduprófana á vélarhlífum og stuðurum nýrra bifreiða. Auknar kröfur til skyldu- prófana koma fram í kröfum um hönnun og breytingar á vélarhlífum og stuðurum, kröfum um fjaðurbúnað og um eftirgefanlegri efni en nú í þessum bílhlutum. Rann- sóknir eru enn í gangi. Breytingar á hönnun öku- tækja verður að gera í áföng- um og er miðað við fyrstu breytingar eftir júlí 2005. Nýjar skráningar verða inn- leiddar í áföngum (80% eftir júlí 2010, 90% árið 2011 og 100% árið 2012). Næsti áfangi tekur til fyrirbyggjandi öryggis fyrir tilstilli nýrrar tækni sem þekkt er sem ITS (e. Intellig- ent Technology System). Hér má sem dæmi nefna skynjara sem hjálpar öku- mönnum við að greina hluti sem eru of nálægt bifreið- inni. Slfkir skynjarar em nú til en enn ekki hægt að nýta þá í bíla. Árið 2004 á bif- reiðaiðnaðurinn að skoða hvernig þessari þróun hefur fleygt fram og hvemig hana megi laga að bifreiðum og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Framkvæmdin á að hefjast árið 2010. Hluti þess efnis sem er á vefsetri Neytendasamtakanna á netinu, www.ns.is, er á læstum síðum enda eru þær aðeins fyrir félagsmenn. Frá 1. janúar 2002 breytist lykil- orð félagsmanna og verður „af.27“. Hægt verður þó að nota gamla lykilorðið til og með 15. janúar 2002. Póstlisti Neytenda- samtakanna Þeir félagsmenn sem vilja fá tölvupóst til að vita þegar nýtt áhugavert efni kemur inn á heimasíðu Neytendasamtak- anna, www.ns.is, eru hvattir til að hafa samband við skrif- stofu samtakanna. Síminn er 545 1200, bréfsími 545 1212 og netfang ns@ns.is. Aðstoðið samtökin við að byggja upp betri aðstæður fyrir okkur neytendur Neytendasamtökin auglýsa eftir fólki sem hefur ttma og vill aðstoða samtökin við framkvæmd ýmissa verk- efna. Meðal annars er um að ræða aðstoð við öflun verð- upplýsinga í verslunum og ætti þetta verkefni að henta vel ellilífeyrisþegum, en þar leitum við aðstoðar neytenda frá öllu landinu. Einnig leita samtökin eftir áhugasömum neylendum (lil að byrja með af suðvesturhorni landsins) til að taka þátt í dómarapall- borði sem gegnir því hlut- verki að dæma mat- og drykkjarvörur út frá bragð- gæðum og fleira. Neytenda- samtökin greiða þeim sann- gjarna þóknun sem taka þátt í þessum verkefnum. Þessi verkefni niiða að því að veita markaðnum aukið aðhald, bæði hvað varðar verð og gæði. Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa okkur við þetta eru vinsam- legast beðnir að hafa sam- band við Neytendasamtökin, sími 545 1200, bréfsími 545 1212 og netfang ns@ns.is. NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2001 5

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.