Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2001, Side 11

Neytendablaðið - 01.12.2001, Side 11
Gæðakönnun Þessi nœrmynd (macro) var tekin með Canon PowerShot G1 í 3,1 megadíls upplausn (2048 xl536) og sannar að myndgœðin eru lítt aðfinnanleg. ast ef notuð eru stór minniskort eða skjárinn og leifturljósið mikið notuð. Til trafala er að burðast með margar rafhlöður, straumbreyti og/eða hleðslutæki. • Ef mikið er tekið af mynd- um á stuttum tíma hitnar myndavélin sem getur vald- ið myndgöllum (ljósflekkj- um). • Erfitt er að taka mynd á ná- kvæntlega „réttu“ andartaki ef myndefnið er á hreyf- ingu. Biðtími frá því þrýst er á tökuhnapp þangað til vélin smellir af getur verið hálf sekúnda og upp í tvær sekúndur. • Séu myndir teknar í mikilli upplausn er dálítil bið milli þess að hægt er að smella af, jafnvel hálf mínúta. • Innbyggt leifturljós er oft full-kraftlítið. • Minniskortin með myndun- unt eru fljót að fyllast. A ferðalagi getur reynst nauð- synlegt að losa myndir af minniskortum á tölvudisk. Annaðhvort þarf að hafa fartölvu meðferðis eða vís- an aðgang að tölvu og geisladiskaskrifara. Markaöurinn í markaðskönnun Neytenda- samtakanna í okt.-nóv. reynd- ust vera hér til sölu rúmlega 50 gerðir af stafrænum myndavélum. Þetta eru enn að jafnaði fremur dýr tæki sem sjá má af því að helmingur þeirra kostaði yfir 90 þúsund kr. Ódýrasta vélin, Kodak DC 3200, kostaði um 18.000 hjá Elko, en sú dýrasta, Canon P30 Pro Kit, kostaði um 340.000 kr. hjá Nýherja. Til eru mun dýrari vélar en versl- anir afgreiða þær samkvæmt pöntunum. Þeim sem vilja vél í ódýrari kantinum má benda á að sjö gerðir fengust á innan við 40 þús. og um 15 gerðir var að velja á innan við 50 þús. kr. (í Fríhöfninni í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar fengust 18 gerðir af stafrænum myndavélum á verðbilinu um 34-100 þús. kr. en hún er ekki með í markaðskönnuninni). Athugið vel að mismun- andi búnaður fylgir vélunum. Slíkt þarf að bera saman, nauðsynlegir fylgihlutir geta verið dýrir séu þeir keyptir sérstaklega. Markaðskönnun er á vef Neytendasamtakanna www.ns.is. Lykilorðið er af27. Upplausn og skerpa Myndavélarnar í gæðakönnun ICRT sem hér birtist eru í betri kantinum og geta skilað myndupplausn á bilinu 2,1-3,3 megadílar sem merkir að 2,1-3,3 milljónir díla eru á hverri mynd. Sumir metast á um upplausn stafrænna véla líkt og hestöfl ökutækja. En rétt eins og bílvél með mörg hestöfl er ekki trygging fyrir því að bíllinn sé góður segir upplausnartalan heldur ekki allt um skerpu og gæði mynda. Myndupplausnin sem framleiðendur gefa upp er að- eins vísbending um gæði mynda, ekki trygging fyrir þeim. Sony Cybershot DCS- P1 er t.d. skráð með 3,2-3,3 megadíla en fékk þó bara rúmlega meðaleinkunn fyrir myndgæði í gæðakönnun ICRT. Canon PowerShot Pro 90IS er gefin upp með 3,3-3,4 megadíla en notar að- eins 2,58 í myndina. Afgang- urinn er notaður til stöðug- leikaleiðréttinga sem gefa skarpari myndir ef myndavél- in er á hreyfingu meðan smellt er af, svipað og til er í myndbandstökuvélum. Þetta getur verið nauðsynlegt, síð- arnefnda vélin er með 10 x brun (zoom) sem samsvarar því á 35 mm myndavél að hún nái upp í 370 mm aðdrátt. Án stöðugleika-leiðréttingar þarf að nota þrífót til slíkrar myndatöku. Hins vegar leikur enginn vafi á því að myndir í hærri upplausn eru að öðru jöfnu skýrari og betri en þær sem eru í lægri upplausn og þetta kemur ekki síst í ljós þegar myndirnar eru stækkað- ar. Ef myndasmiðurinn þarf bara að fá litlar myndir sem henta á heimasíðu, í tölvupóst eða t.d. í verðskrá , þá er nóg að nota stafræna myndavél með upplausnina 0,5-1 megadíll. Ef á að prenta myndir í stærðinni 13 x 18 cm þarf um 1,2-2 megadfla. Myndir úr 3,3 megadfla vél er hægt að prenta skýrar og fínar í síðustærð íslensks dagblaðs. Athugið að sumir framleið- endur gefa upp háa megadfla- tölu sem náð er með innreikn- ingi (interpolation) og er ekki sambærileg við raunverulega megadfla. Þá reiknar vélin út frá samliggjandi dflum lflcind- in á því hvemig dflar á milli þeirra eigi að líta út. Myndskurður Á stafrænum myndavélum em tvær leiðir til að skoða og velja myndskurð, á stafrænum skjá eða í gegnum myndkíki. Skjárinn notar mikið rafmagn en er góður til að meta myndefni og myndskurð. Hliðmn (parallax) getur þó átt sér stað, jafnvel allt að 20%, Hverjir selja vélarnar? Seljandi Fjöldi gerða Vörumerki Bræðurnir Ormsson 10 Olympus, Nikon Nýherji 10 Canon Elko 7 Kodak, Hewlett Packard, Samsung, Ricoh Kalíber (Heimilistæki) 7 Sony, Canon, Ricoh, Casio, Fuji Sjónvarpsmiðstöðin 5 Minolta, OVC Hans Petersen 4 Kodak, Epson Myndval 4 Canon, Kodak HT&T 3 Toshiba Ljósmyndavörur 3 Fujifilm Prentsmiðjan Oddi 3 Canon Griffill 1 Hewlett Packard Frihöfnin, Keflavík 18 Canon, Fuji, Kodak, Nikon, Olympus, Ricoh, Sony, Toshiba Fteiri verslanir hafa selt og/eða selja stafrænar myndavélar, t.d. Þór og BT, en sumar sérpanta þær fyrir viðskiptavini, t.d. Beco. NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2001 11

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.