Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2001, Síða 15

Neytendablaðið - 01.12.2001, Síða 15
það reyndist einnig svo að netverslanir í ríkjum Evrópusambandsins brutu gegn tilskipunum sem þar gilda. Hvað kostar dýrðin? Sem dæmi um þetta má nefna að all- margar netverslanir gáfu kaupendum ekki upp endanlegt heildarverð - að sendingarkostnaði meðtöldum - fyrr en eftir að hann var búinn að láta verslun- inni í té kortnúmer sitt, en þá var sjaldn- ast unnt að hætta við. Þetta er í full- kominni andstöðu við bæði leiðbeiningar OECD og tilskipanir Evrópusambandsins og ber augljóslega ekki vott um gott við- skiptasiðferði þar eð hár sendingarkostn- aður getur auðveldlega gert meira en vega upp hagstætt verð og gæti því orðið þess valdandi að kaupandinn hætti við. Þetta atriði ættu íslenskir neytendur ekki síst að hafa í huga við verslun á netinu, enda sendingarkostnaður hingað sjálfsagt að jafnaði síður en svo lægri en til dæmis yfir landamæri á meginlandi Evrópu. Öðru má líka bæta hér við fyrir ís- lenska lesendur. Jafnvel þótt netbúðin standi sig fyllilega í stykkinu og gefi upp heildarverð að sendingarkostnaði með- töldum á hún þess eðlilega engan kost að gefa kaupandanum upp hugsanlegan kostnað við tollafgreiðslu, og til dæmis hugsanlegan afgreiðslukostnað og/eða heimsendingarkostnað í viðtökulandinu. Hérlendis getur slíkur kostnaður verið álitleg viðbót. I tilskipun Evrópusambandsins er einnig að finna mikilsverð ákvæði um réttindi neytandans til að afpanta vöru eða skila henni. Það var hinsvegar fátítt að lesa mætti um þessi réttindi á heima- síðum netverslana innan sambandsins. Sérkennileg viöbrögð Nokkrar hrakfallasögur eru sagðar í skýrslunni og við skulum endursegja hér eina þeirra þar sem svik virðast ekki hafa verið í tafli heldur fyrst og fremst fá- kunnátta og lélegur undirbúningur hjá versluninni: Kona sem tók þátt í könnuninni pant- aði klæðisplagg frá www.lastminute.com en vildi síðan skila því. A heimasíðunni var ekki að finna neinar upplýsingar um skilamöguleika og konan sendi því fyrir- Viðskipti á netinu tækinu tölvupóst og reyndi einnig margoft að hringja. A endanum barst henni eyðublað til að senda með flíkinni til baka en þar var ekki að finna neitt heimilisfang. Konan neyddist því til að halda áfram að hringja og senda tölvu- póst. Að lokum barst henni endurgreiðsla fyrir flíkina. Og það má kalla skondið að það skyldi gerast áður en konan hafði skilað flíkinni. Áhættusöm aðferð I heild segja skýrsluhöfundar niðurstöð- urnar sýna að enn sé nokkur áhætta í því fólgin að stunda verslun á netinu og benda á allmörg atriði sem rétt sé að hafa í huga. Rétt er að fullvissa sig um hver kaupmaðurinn er, hvaða skilyrði kunna að gilda um afpöntun eða skil, hvert má snúa sér til að bera fram kvartanir, hvort endanlegt verð er gefið upp áður en kaupin eru gerð, hversu langur afhend- ingartíminn er, hvort verslunin skuld- bindur sig til að láta ekki öðrum í té upp- lýsingar um kaupendur og hvernig versl- unin gætir öryggis, svo sem um korta- númer. Það þarf svo sem ekki að taka fram að 42 blaðsíðna skýrslu er ekki unnt að gera fullkomin skil á tveimur síðum. Hér hef- ur aðeins verið stiklað á stóru og ekki verið unnt að fara í samanburð eftir ríkj- um eða einstökum verslunum. Aftur á móti má gera ráð fyrir að neyt- endur sem á annað borð stunda verslun á netinu eða eru að velta henni fyrir sér hafi bæði netaðgang og búi yfir ensku- kunnáttu. Þeim má því með góðri sam- visku benda á að kynna sér skýrsluna í heild. Hana er að finna (á pdf-formi) á slóðinni www.consumers- international.org /news/pressreleases/ Shop0nline2001 .html. S----------------------------------------- Höfum stjóm a jjármálum jjölskyldunnar og jœmm heimilisbókhald Heimilisbókhald - lykillinn að bættum efnahag sem Neytendasamtökin hafa gefið út nýtist vel til þess. Fæst á skrifstofum Neytendasamtakanna - verð til félagsmanna 270 krónur og til annarra 350 krónur. ________________________________________ Heimilis x'khald A lykillinn að X bættum ehiahag t I ) 7 NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2001 15

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.