Neytendablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 10
Ertu á floti í fjármálunum?
Námskeið í heimilisbókhaldi og hagsýni
í heimilishaldi
Neytendasamtökin bjóða félagsmönnum
sínum upp á námskeið í hagsýni í heim-
ilishaldi, áætlanagerð og færslu heimilis-
bókhalds. Námskeiðið verður haldið í
byrjun nýs árs.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem
vilja hafa góða yfirsýn yfir fjármálin sín.
Farið verður yfir þau grundvallaratriði
sem þurfa að vera fyrir hendi til að hægt
sé að ná yfirsýn og árangri. Farið verð-
ur yfir nauðsynlegan undirbúning, m.a.
hvernig áætlanir eru gerðar og notaðar,
hvernig best er að standa að færslu heim-
ilisbókhalds og hvernig hægt er að hag-
ræða og breyta í rekstri heimilisins.
Þátttaka í námskeiðinu kostar 3.500 kr.
fyrir einstakling og 5.000 kr. fyrir hjón
og sambýlisfólk. Námsgögn eru innifal-
in. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í
námskeiðinu eru beðnir um að tikynna
þátttöku ítölvupósti til Neytendasamtak-
anna, ns@ns.is eða í síma 5451200.
Við viljum minna á að heimilisbókhaldið
er til sölu á skrifstofu Neytendasamtak-
anna. Verð til félagsmanna er aðeins
270 kr.
Setjifl árgjaldið á greiðslukort!
Neytendasamtökin hafa þrjár leiðir til
að innheimta félagsgjöld. í fyrsta lagi
skuldfærir meirihluti félagsmanna árgjald
sitt á greiðslukort, í öðru lagi heimsækir
innheimtufólk félagsmenn og í þriðja lagi
eru félagsgjöldin innheimt með gíróseðl-
um. Það verður að segjast eins og er að
síðast talda aðferðin er ekki vænleg fyrir
félagasamtök og er hlutfallsleg innheimta
mjög lág með þeirri aðferð. Að ganga f
hús til að innheimta félagsgjaldið getur
verið hvimleið aðferð fyrir félagsmann-
inn og er auk þess mjög kostnaðarsöm
fyrir Neytendasamtökin.
Langódýrasta aðferðin er sú að sem
flestir félagsmenn greiði árgjaldið með
greiðslukorti og um leið þægilegust fyrir
félagsmenn. Með því móti geta Neyt-
endasamtökin sinnt betur því sem þeim
ber fyrir félagsmenn. Bruðlum því ekki
með það takmarkaða fé sem við höfum
til neytendamála. Neytendablaðið hvetur
þá félagsmenn sem nota greiðslukort að
setja árgjald Neytendasamtakanna á kort-
in. Minnt er á að þeir sem gera það geta
skipt greiðslu árgjaldsins í tvo hluta.
\
10 NEYTENDABLAÐIÐ 4. IBL. 2003