Neytendablaðið - 01.12.2003, Page 19
Utskýringar á greiðsluseðli
Margir hafa tekið verðtryggð lán og kann-
ast því við að fá greiðsluseðla fljúgandi
inn um bréfalúguna í hverjum mánuði.
Fæstir hafa eflaust fyrir því að rýna í
upplýsingarnar sem fram koma á greiðslu-
seðlinum enda kannski ekkert allt of
upplífgandi Iestur. I>ar fyrir utan gengur
mörgum erfiðlega að skilja þau hugtök
sem notuð eru.
Neytendablaðiðfékk Auði Eir Guðmunds-
dóttur, fyrrverandi þjónustustjóra og sér-
fræðing hjá íslandsbanka, til að útskýra
greiðsluseðil af verðtryggðu Iáni.
1. Lántaki tekur lán í mars 1995 og upp-
haflegupphæðvar 1.352.493 krónur. Upp-
reiknuð er upphæðin 1.693.484 krónur.
Það þýðir að sú upphæð sem fengin var
að láni árið 1996 myndi í dag jafngilda
1.693.484. krónum.
2. Öll lán sem tekin eru til lengri tíma en
fimm ára eru verðtryggð. Verðtrygging er
trygging fyrir því að tiltekin fjárhæð (lán
eða sparnaður) haldi kaupmætti sínum.
Lánið er verðtryggt með vísitölu neyslu-
verðs á höfuðstól. Vísitala neysluverðs er
reiknuð út af Hagstofu íslands og sýnir
breytingar á verðlagi einkaneyslu.
Það þýðir að ef einhver þáttur sem tekin er
inn í vísitölu neysluverðs hækkar (t.d. bens-
ín, lottómiði, raforkuverð, verð á áfengi og
tóbaki) þá hækkar vísitalan og þar með höf-
uðstóll lána sem eru vísitölubundin.
Á greiðsluseðlinum sést að vísitalan var
176,9 stig þegar lánið var tekið en er 221,5
þegar þessi greiðsluseðill er gerður.
Höfuðstóll
3. Eftirstöðvar nafnverðs fyrir greiðslu er
sú upphæð sem lántaki á eftir að greiða
af láninu fyrir utan áfallnar verðbætur og
vexti. Höfuðstóllinn sem var í upphafi láns
1.352.493 krónur hefur lækkað niður í
608.620 krónur.
4. Áfallnar verðbætur fyrir greiðslu reikn-
ast á höfuðstólinn. Verðbæturnar eru í
raun uppbætur vegna verðlagshækkana.
Hér sjást þær verðbætur sem hafa reikn-
ast á lánið frá lántökudegi til gjalddaga
síðasta mánaðar.
5. Hækkun eða lækkun verðbóta er sú
breyting sem hefur orðið síðastliðinn
mánuð á neysluvísitölunni. Oftast hækkar
neysluvísitalan milli mánaða og á þessum
seðli sjáum við að hún hefur hækkað um 2
stig frá fyrra mánuði, úr 219,5 stigum í 221,5.
Eftir því sem verðbólgan er meiri því hærri
verðbætur þarf lántakandi að greiða. Þeg-
ar hins vegar vísitalan lækkar á milli
mánaða, svokölluð verðhjöðnun, sleppur
lántaki við að borga verðbætur eða fær
jafnvel mínustölu íþennan reit. Verðtryggð
lán eru því afar hagstæð ef verðbólgan er
lág svo ekki sé talað um ef verðhjöðnun
er til staðar.
6. Afborgun er 14.112 krónur. Þar af er
fasta greiðslan 11.270,80 krónur að við-
bættum áföllnum verðbótum af afborgun
sem eru 2841,20 krónur.
7. Eftirstöðvar með verðbótum eftir
greiðslu er sú upphæð sem lántaki skuldar
eftir greiðslu þessa gjalddaga. Eftirstöðvar
nafnverðs eftir greiðslu eru 597.350 krónur
og að auki áfallnar verðbætur eftir greiðslu.
150.603,70 kr., að frádreginni afborgun.
Eða samtals 747.953,70 krónur.
8. Eftirstöövar nafnverðs eftir greiðslu
eru 608.620 kr. að frádreginni afborgun
á nafnverði, 11.270 kr., sem gera 597.350
krónur. Á næsta greiðsluseðli mun þessi
tala, 597.350 kr., standa efst sem eftirstöðv-
ar nafnverðs fyrir greiðslu.
Áfallnar verðbætur eftir greiðslu eru
150.603 kr. Það er áfallnar verðbætur fyrir
greiðslu, 146.564 kr. aðfrádreginni afborg-
un verðbóta sem er 2.841 krónur.
Á næsta greiðsluseðli mun þessi tala,
150.603 kr., standa sem áfallnar verðbæt-
ur fyrir greiðslu.
9. Gjalddagi. Á þessum gjalddaga er verið
að innheimta 67. afborgun af 120 afborg-
unum.
10. Greiðsla
Afborgun á nafnverði: Upphafleg upphæð
er tekin og deilt í 120 gjalddaga. Það gerir
11.270.80 krónur í fasta afborgun á mán-
uði í 10 ár. Þessi upphæð breytist ekki.
Afborgun verðbóta: Hér eru reiknaðar
verðbætur af afborgun.
Vextir: Vextirnir eru reiknaðir af eftirstöðv-
um nafnverðs fyrir greiðslu, 608.620 krón-
um, að viðbættum áföllnum verðbótum
sem eru 146.564 krónur. Alls eru því reikn-
aðir 9,25% vextir af 755.184 krónum.
Tilkynningar og greiðslugjald er 410 kr. (er
í dag 430 kr.). Þetta gjald lækkar ef lántaki
lætur t.d. skuldfæra greiðsluseðilinn beint af
reikningi sínum eða er í greiðsluþjónustu.
0526ISUNDSBANKI
Suðurlandsbr. 30
REYKJAVÍK
108 REYKJAVÍK
Slrnl 560 8400
SKULDABREF
('•MkKUsi
1. íebr. 2002
9 Gjalddagl 67 af 120
1. fobrúar 2002
Bankabrif núaar
Vpphaflag upph«8
1.352.493 Uppralknuð
830077
1.693.484
Jöfn afborgun
Vaxtlr raiknast frA og aað 1. Jan. 2002 til gjalddaga
Vaxtatiaabil ar 30 dagar. Vaxtaprösanta 9.2500X
Brayting vísitolu úr 219,5 í 221,5 stig
Útgáfudagur 23. aars 1995 l.vaxtad. 26. júni 1996
Vextlr skv. fikvörðun tslandsbanka hf
Lán verðtryggt aað vlsltðlu naysluvarBs 8 hðfuBstól
Crunnvlsltala 176,9 stlg
Sjálfskuldarábyrgð.
10
6REIBSLA
_ HÖFUÐSTÓLL
U Eftlrstöðvar nafnvarðs fyrlr gralBslu_______608.620,80 ■
_ Áfallnar varðbatur fyrir gralðslu___________146.564,30 4
0 Hakkun/lakkun varðböta _______________________6.881,00 q
Afborgun 14.112.40-U
747.953,70 'J
Afborgun k nafnvarði
Afborgun varBböta
Vaxtir
Tilkynningar* og graiBslugjald
Til graiSslu
11.270,80
2.841,60
5.874,30
410,00
DrAttarvaxtir raiknast fri og aað gjalddaga - -
Siðasti graiðsludagur An vanskilagjalds ar 7. fabr. 2002
Eftlrstdðvar aað varðb. eftir graiðslu
i Eftlrstöðvar nafnvarðs aftir gralðslu
Áfallnar varðbatur aftir greiðslu
597.350,00
150.603,70
ELDRI 6JALDDAGI ÖCREIDDUR
Amur kuvinjöur
VnmkilaiinUUkVu
Til crriAUu i -pkkliía SaMul. :n
20.396,70
VMUkllMJjki DrúurtcMir
lUnii Daprtwc i F«wImw.
Amun úr jjaldkcnniíl cr lullnoAarkviuun.
KcU.n. Kwii-M. «ol» ia.
NEYTENDABLAÐI0 4. TBL. 2003 1 9