Neytendablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 21
ingar- og útskriftardaga. Og á öskudag
eru góðir foreldrar minntir á að kaupa
grímu eða búning handa börnunum. Jóla-
gjafaskyldan hefur verið hugfestsvo ræki-
lega að svo til allir sem eitthvað bjóða
á markaði reyna að tengja sig við hana.
Bjóða tilvalda jólagjöf - eða aðstoð við
það sem þarf að gera fyrir jólin.
Fleira en framburður auglýsingaflóðsins á
þátt í því að endurskapa veruleikann, og
móta einhvers konar sýndarveruleika:
• Verðmæti fyrirtækja ræðst af því sem
fjárfestar á hlutabréfamarkaði halda
að gerist.
• Sviðsett atburðarás söluaðila verður
algengt frétta- og umfjöllunarefni í
fjölmiðlum.
Aðalfundir BEUC
Aðalfundir BEUC eru haldnir tvisvar á
ári, í maímánuði og nóvembermánuði.
Alla jafna eru fundirnir haldnir í Brus-
sel. Þetta ár hefur einkennst af stóraf-
mælum neytendasamtaka. í byrjun árs-
ins áttu íslensku, norsku og hollensku
samtökin öll 50 ára afmæli og í maí-
mánuði fögnuðu þýsku samtökin einnig
50 ára afmæli sínu og var aðalfundur
BEUC í Berlín af því tilefni. Og nú í nóv-
ember héldu ítölsku neytendasamtökin
upp á 30 ára afmæli sitt og var síðari
aðalfundurinn því haldinn í Róm.
Þessir fundir taka fyrir mjög fjölbreytileg
mál. Á vorfundinum var talsvert fjallað
um erfðabreytt matvæli og merkingar
á slíkum vörum. Evrópusambandið hef-
ur að undanförnu verið að endurskoða
gildandi reglur um þetta og nú hefur
verið gefin út ný tilskipun. Þetta snertir
okkur íslendinga þar sem taka á upp
þessa tilskipun í EES-samninginn. Það
er mikilvægt að hraða því að það verði
gert enda snertir það mjög hagsmuni ís-
lenskra neytenda þar sem ísland er eina
landið á EES-svæðinu þar sem ekki þarf
að merkja erfðabreytt matvæli.
Einnig hafa Bandaríkin og Kanada
kært Evrópusambandið til Alþjóða við-
• Stjörnuíþróttir verða meiri háttar mark-
aðsvara en almenn þátttaka hverfur í
skuggann.
• Jólahátíð breytist í jólamarkað, jóla-
gleði í jólastress, hvalveiðar í hvala-
skoðun, Njála í óperettu, draugabæli í
draugasetur.
Fjölmiðlar í auglýsingafjötrum
Auglýsingaflóðið hækkar og stendur
nú orðið undir stórum hluta kostnaðar
við blaðaútgáfu, hljóðvarp og sjónvarp.
Ef svo heldur fram sem horfir verður
hætt að krefja okkur um áskriftargjöld,
fjölmiðlun í landinu verður í boði aug-
Iýsenda. Það kann að virðast góður kost-
ur. En kostnaðurinn er ekki gufaður upp.
Það þarf ekki að skyggnast djúpt til að
sjá að kostnaðinn greiðum við þegar við
skiptum við auglýsendurna. Reynslan
sýnir að vaxandi áhrif auglýsenda á fjöl-
miðlana gera þá einsleitari. Fjölmiðill,
sem fær rekstrarkostnaðinn greiddan
frá auglýsendum, verður að keppa að
vinsældum. Því sem þykir skemmtilegt,
spennandi og auðmelt er þvf gefið gott
rúm og sveipað hrífandi umbúðum
mynda og lita. Slíkur öfugsnúningur ger-
ir tímabært að setja fram þverstæðufulla
kröfu fyrir hönd neytenda: Við heimtum
að fá að borga! Afnotagjöld og áskriftar-
gjöld. Til að varðveita fjölbreytnina, fá
stundum annað að sjá og heyra en það
sem er ódýrt og ætlað til skemmtunar.
Eftir Hörð Bergmann
Evrópusamtaka Evrópu á þessu ári
skiptastofnunarinnar fyrir tæknilegar
viðskiptahindranir vegna evrópsku merk-
ingarreglnanna, en nú á að merkja þau
matvæli sérstaklega sem innihalda 1%
eða meira af erfðabreyttu hráefni. BEUC
samræmdi mótmælabréf evrópskra neyt-
endasamtaka til bandarískra stjórnvalda
vegna þessarar kæru.
Ný tilskipun er í vinnslu sem heimilar
fleiri lyfjaauglýsingar en lyfjaiðnaðurinn
í Evrópu þrýstir mjög á um aukið frelsi
til að auglýsa lyf. BEUC er á móti þessu
og óttast verulega og óþarfa aukningu í
neyslu lyfja ef slíkar auglýsingar verða
heimilaðar. Önnur tilskipun, um neyt-
endalán, er í vinnslu og gæti hún snert
skuldsetta íslenska neytendur verulega.
BEUC tók virkan þátt í ásamt Aljóða-
samtökum neytenda að móta stefnu í
yfirstandandi samningalotu um Alþjóða
viðskiptastofnunina (WTO) og átti full-
trúa á Cancun-fundinum sem fór út um
þúfur. Frjáls heimsviðskipti eru til hags-
bóta fyrir neytendur og því mikilvægt
að neytendasjónarmið komi sterkt inn í
þessar viðræður.
BEUC hefur gagnrýnt sameiginlega
landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins
harðlega og fjallað ítrekað um hana á
fundum sínum. Samtökin telja hana allt
of kostnaðarsama fyrir neytendur og
bitni harkalega á landbúnaði í löndum
þriðja heimsins.
í júnímánuði á næsta ári verður kosið
til nýs Evrópuþings. Vegna stækkunar
Evrópusambandsins (og fjölgunar þing-
manna frá nýju aðildarlöndunum) hefur
verið ákveðið að á nýju þingi starfi 20
fastanefndir í stað 17 nú. Meðal annars
verður sett á laggirnar ný nefnd sem á
að fjalla um innri markaðinn og neyt-
endamál.
Auk þess er á fundunum fjallað um ýmis
innri mál BEUC. Þess má geta að á und-
anförnu hefur aðildarfélögum fjölgað
mjög í BEUC og er þar um að ræða
neytendasamtök í Mið og Austur Evrópu,
þ.e. frá þeim löndum sem innan skamms
koma ný inn í Evrópusambandið. Þetta
hefur kallað á ýmsar breytingar, þar á
meðal á lögum BEUC. Jóhannes Cunn-
arsson formaður Neytendasamtakanna
sat þessa fundi fyrir hönd Neytendasam-
takanna.