Neytendablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 5
anda og/eða fasteignasala er kunnugt
um, upphitun og glerjun og um ástand
rafkerfis, vatns- og frárennslislagna.
• Föst gjöld af eigninni, áhvílandi veð-
skuldir, kvaðir og önnur eignarhöft.
Tilgreina skal eftirstöðvar og lánskjör,
þar á meðal vexti og verðtryggingu
allra áhvílandi veðskulda og geta þess
hvort um vanskil sé að ræða. Um þær
veðskuldir sem fylgja eiga við sölu skal
enn fremur tilgreina fjölda ógreiddra
afborgana.
■ Þann kostnað kaupanda sem fylgir
kaupum eignarinnar, s.s. þinglýsingar-
kostnað, kostnað við stimplun skjala
og lántökukostnað.
• Afhendingarástand eignar sem afhent
er ófullgerð í samræmi við staðla Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðarins.
• Húsgjöld og yfirstandandi eða vænt-
anlegar framkvæmdir. Sömuleiðis
skulu koma fram upplýsingar um
stöðu eiganda gagnvart hússjóði og
framkvæmdasjóði húsfélags.
• Seljandi skal með áritun sinni á söluyf-
irlit staðfesta að þær upplýsingar sem
þar eru tilgreindar séu réttar.
• Eignaskiptalýsing eða -samningur sé
um fjöleignarhús að ræða.
• Önnur atriði sem kunnugt er um, svo
sem skýrslur um ástand eignar sem
gerðar hafa verið.
Kynning fasteignasala á eign
• Við kynningu á eign sem fasteignasali
hefur til sölumeðferðar skal fasteigna-
sali gæta þess að upplýsingar sem veitt-
ar eru um hana og lýsingar á henni
séu réttar og í sem bestu samræmi við
eiginleika og ástand eignarinnar. Fast-
eignasali skal geta nafns síns í öllum
auglýsingum.
Fasteignasali skal vera sjálfstæður og
óháður í störfum sínum
• Fasteignasala og starfsmönnum hans
er óheimilt að kaupa eign sem fast-
eignasalanum hefur til verið falin til
sölumeðferðar.
• Fasteignasala er óheimil milliganga
um sölu fasteignar búi hann eða
starfsmenn hans yfir sérstökum upp-
lýsingum sem þýðingu hafa við sölu
eignarinnar og aðrir hafa ekki aðgang
að.
• Fasteignasala ber að tilkynna aðilum
um það tafarlaust með sannanlegum
hætti hafi hann annarra hagsmuna
að gæta en þeirra sem varða greiðslu
þóknunar og útlagðs kostnaðar.
Hagsmunagæsla
• Fasteignasali skal liðsinna báðum að-
ilum, seljanda og kaupanda, og gæta
réttmætra hagsmuna þeirra.
• Fasteignasali skal gæta þess að aðilum
séu ekki settir ólögmætir, ósanngjarnir
eða óeðlilegir kostir í samningum.
Skjalagerð
• Fasteignasala er skylt að annast alla
skjalagerð varðandi sölu fasteignar og
nafn hans skal koma Ijóslega fram á
kauptilboðum, kaupsamningum, afsöl-
um, veðbréfum og skuldabréfum. Öll
skjala- og samningsgerð skal þannig úr
garði gerð að hagsmunir beggja aðila
séu tryggðir og réttarstaða hvors um
sig glögg.
3. Skyldur fasteignasala eftir sölu
• Eftir sölu fasteignar má segja að skyld-
um fasteignasala sé lokið enda er hlut-
verk hans að koma á samningi á milli
seljanda og kaupanda en ekki að vera
aðili að samningnum sjálfur.
• Telji hins vegar seljandi eða kaupandi
að brotið hafi verið á sér í tengslum við
sölumeðferð er eðlilegt að viðkomandi
snúi sér til hlutaðeigandi fasteignasala
enda bar fasteignasalanum skylda til
þess að liðsinna báðum aðilum og
gæta réttmætra hagsmuna þeirra við
samningsgerðina. Sömuleiðis er eðli-
legt að aðili snúi sér til fasteignasalans
komi upp ósamræmi milli söluyfirlits
og fasteignar eða ef skjalagerð reynist
ófullkomin.
4. Úrræði/afleiðingar brota eða vanefnda
fasteignasala á skyldum sínum
a. Almennt
• Eftirlit með starfsemi fasteignasala er
í höndum eftirlitsnefndar Félags fast-
eignasala.
• Fullnægi fasteignasali ekki lengur
skilyrðum til löggildingar er honum
óheimil frekari starfsemi og ber að
skila löggildingarskírteini sínu til ráðu-
neytisins.
• Brot gegn lögunum, og reglum settum
samkvæmt þeim, varða sektum nema
þyngri refsing liggi við samkvæmt öðr-
um lögum.
b. Ábyrgð fasteignasala
• Fasteignasali ber ábyrgð á tjóni sem
hann eða starfsmenn hans valda í störf-
um sínum, af ásetningi eða gáleysi.
• Starfsábyrgðartrygging fasteignasala
tryggir viðskiptavini hans fyrir fjártjóni
sem leitt getur af gáleysi í störfum
fasteignasalans eða starfsmanna hans.
Tryggingin gildir ekki um tjón sem fast-
eignasali eða starfsmaður hans veldur
af ásetningi.
c. Samskiptanefnd Félags fasteigna-
sala
• Á vegum Félags fasteignasala er rekin
nefnd sem tekur á móti kvörtunum frá
viðskiptavinum félagsmanna í Félagi
fasteignasala. í nefndinni sitja full-
trúar tilnefndir af Félagi fasteignasala
og er þetta því einhliða skipuð nefnd
þar eð enginn fulltrúi er tilnefndur
fyrir hönd neytenda. Neytendasam-
tökin telja mikilvægt að komið verði
á fót hlutlausri úrskurðarnefnd vegna
fasteignaviðskipta með fulltrúum fast-
eignasala og neytanda auk hlutlauss
oddamanns.
NEYIENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2004 5