Bændablaðið - 25.11.1997, Síða 13
Þriðjudagur 25.nóvember 1997
Bœndablaðið
13
Bændur athugið!
Framleiði kornvalsa, gjafagrindur, baggahnífa,
afrúllara og margt fleira.
Bíla-, búvéla- og vélhjólaviðgerðir. Rennismíði
og fræsivinna.
Vélaverkstæði Svenna,
Hólmi II
781 Hornafirði
Sími & fax 478 103.
Árni Jónsson
Búkarfragn
Búnaðarsamband Suðurlands
hefur nýlega gefið út bókina
Sauðfjárræktin á Suðurlandi.
Þættir úr sögu fjárræktarinnar á
20. öldinni.
Höfundur bókarinnar er Hjalti
Gestsson frá Hæli í Gnúpverja-
hreppi, fyrrverandi ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Suðurlands
um nærri hálfrar aldar skeið.
Þetta er einstök bók. Ekki er
mér kunnugt um að nokkur annar
maður hafi lagt í að skrifa slíka
bók og er Búnaðarsamband Suð-
urlands þó stærst búnaðarsam-
banda og náði til 35 hreppa eins
og þeir voru áður en sameiningar
hófust.
Segja má að Hjalti Gestsson
hafi, ásamt Halldóri Pálssyni
meðan hans naut við, leitt sunn-
lenska fjárbændur og stutt á allan
hátt, og þó margir aðrir hafi
komið við sögu mun hlutur þeirra
vera stærstur.
Bókin er kaflaskipt. í fyrsta
kafla er ræktunarsagan fram til
fjárskiptanna 1951-1954. Árið
1916 voru fyrstu skipulögðu
hrútasýningar haldnar á Suður-
landi. Dómari var Jón H. Þor-
bergsson, síðar bóndi á Laxa-
mýri. Aðeins hlutu 12 hrútar 1.
verðlaun en 278 voru metnir
ónothæfir. Á síðustu sýningu
fyrir fjárskiptin fengu 305 hrútar
1. verðlaun eða 25 sinnum fleiri
en 1916.
Gerð er grein fyrir 5 fjárstofn-
um sem náð höfðu nokkuð fast-
mótuðum eiginleikum. Allir
byggðu þeir þó á aðfluttum fjár-
stofnum að einhverju leyti.
ítarlegur kafli er um fjár-
skiptin 1951-1954 en Hjalti
Gestsson var formaður Fjár-
skiptafélags Ámessýslu. Nýju
fjárstofnunum er lýst og rakið
hvaðan kostamesta féð kom og
hvemig það reyndist í ræktu-
ninni. Tíu árum eftir fjárskiptin
voru 24 fjárbú á Suðurlandi
komin með fjárstofna sem höfðu
sannað gildi sitt m.a. með sölu
kynbótahrúta.
Þá er umsögn um ræktunar-
árangur í hverri sveit. Síðan er
ræktunarsögunni haldið áfram.
Greint frá stofnun sæðingar-
stöðvarinnar 1968 sem hefir
ásamt tilraunum og
ræktunarstarfi fjárræktarbúsins á
Hesti í Borgarfirði verið horn-
steinar fjárræktarinnar á Suð-
urlandi síðustu áratugina.
Fjöldi mynda er í bókinni
bæði af sauðfé og mönnum, og
einnig eru margar töflur til
skýringa. Sem eins konar bókar-
auki eru sex ferðaþættir frá fjár-
kaupunum og flutningi lambanna
milli landshluta, ein ritgerð um
gamalt og nýtt búskaparlag á
fjárbúi og frásögn er af Herdísar-
víkursurtlu sem harðast allra áa
barðist fyrir lífi sínu.
Fjárbændur á Suðurlandi og
aðrir unnendur sauðkindarinnar
munu fagna þessari bók. Hún
mun verða mikið lesin, ekki einu
sinni heldur aftur og aftur. Bókin
kemur eins og ljósgeisli inn í það
myrkur sem grúft hefir yfir sauð-
fjárræktinni að undanfömu.
Einnig er gleðiefni að bókin
er til minningar um farsælt ævi-
starf höfundarins.
Kynnum nýju JOHN DEERE 5000 traktorana
Nú eru þeir fáanlegir traktorarnir sem allir hafa beðið eftir! Nýju
John Deere 5000 traktorarnir eru léttir, meðfærilegir og afar
hentugir í flesta algenga traktorvinnu. Þeir eru mjög léttir og spora
því lítið út. Þeir eru lágbyggðir og komast inn í eldri byggingar.
Traktorarnir eru liprir í allri notkun, þeir eru vel búnir og vinnan
verður auðveld.
LÉTTIR OG LIPRIR
# Tvær stærðir: 55 og 70 hö.
# 3ja strokka mótor m/forþjöppu
# Alsamhæfður gírkassi 24/24
# Vendigír
# Skriðgír
* 40 Km/klst.
* 2ja hraða aflúrtak 540/750
* Heildarhæð um 240 cm
* Heildarþyngd um 2.900 kg.
* Afar hagstætt verð
ÞOR HF
Reykjavík - Akureyri
REYKJAVlK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka, - Sími 461-1070
Forrit fyrir kúabændur.
Forrit sem léttir störf og auöveldar
skýrsluhaldið.
HH huobúnaður. sími 487 8684
Stíflu. 861 Hvolsvelli
Ræktun og jarðvegsefnagreiningar
Er ísienskur jarOvegur
næringarefnaríkur og
hvað þarf að hala í huga
við raekhin?
Islenskur jarðvegur er basalt-
jarðvegur og það er áberandi
hve hann er að jafnaði fQsfór-
snauður. Útilokað er að koma
nýrækt til nema með drjúgum
skammti af fosfóráburði í
upphafi og síðan reglu-
bundinni fosfórgjöf eftir það.
Líka er áberandi að fosfórá-
burðurinn skilar ekki nema
litlum árangri einn sér en því
meiri ef plöntunni er gefið
köfnunarefni líka.
Til að nefna fleiri sérkenni ■
jarðvegs af basaltuppruna er slík-
ur jarðvegur jafnan mjög ríkur af
járni og áli. Mikið magn þessara
efna veldur m.a. hinni miklu fos-
fórþörf jarðvegsins. Það veldur
t.d. því líka hve móajarðvegur er
oft þéttur og klessukenndur. í
þurrlendi er sýrustig (pH) jarð-
vegsins víðast tiltölulega hag-
stætt en það þarf þó ekki endilega
að vera vísbending um gott kalk-
ástand sem er ein forsenda þess
að vel takist til við ræktun.
Mýrajarðvegurinn er að jafnaði
verulega súrari, einkum á vestur-
hluta landsins þar sem áhrifa af
eldgosum hefur lítið gætt. Þar
getur því oft verið um meiri kalk-
þörf að ræða, einkum þegar menn
rækta túngrös af erlendum upp-
runa sem að jafnaði eru aðlöguð
öðrum ræktunaraðstæðum.
Þetta kom fram hjá Bjarna
Helgasyni, jarðvegsfræðingi hjá
RALA, þegar hann var inntur
eftir því hvort íslenskur jarðvegur
væri næringarefnaríkur og hvað
þyrfti að hafa í huga við ræktun.
Bjarni hefur um árabil rannsakað
íslenskan jarðveg, næringargildi
hans og þörf plantna fyrir áburð.
-Er rœktun hér byggð á er-
lendum stofnum ?
“Já, síðan ræktunaröld hófst
hefur öll ræktun okkar byggst á
innfluttum stofnum. Þeir eru að
jafnaði uppskerumeiri og þurfta-
frekari en okkar gamli, innlendi
gróður. Ólíkar aðstæður og
krafan um mikla uppskeru ræður
því næringarþörfinni en endan-
Íega eru það auðvitað kringum-
stæður á hverjum stað sem
stjórna áburðarþörfinni. Tilgang-
urinn með jarðvegsefnagreining-
um og áburðarleiðbeiningum í
tengslum við þær er að hjálpa
mönnum að takast á við þennan
þátt í búskapnum.”
-Hvað er það sem menn skoða
helst í sambandi við jarðvegs-
efnagreiningar?
“Fyrir hefðbundna ræktun líta
menn fyrst og fremst á sýrustig
til að kanna hvort ástæða er til
þess að kalka jarðveginn eða
ekki. Þá þurfa menn auðvitað að
gera sér grein fyrir þeim tak-
mörkunum sem sýrustigs-
mælingin hefur. Fosfór og kalí
eru þau grundvallarnæringarefni
sem verða að vera til staðar og
lengi vel hafa verið talin hvað
mikilvægust ásamt köfnunarefni.
Því hefur megináhersla verið
lögð á að rannsaka þessi næring-
arefni. Jarðvegssýni í þessu sam-
bandi er venjulega best að taka á
hausti eftir að sprettu er lokið og
fram undir frost.
Efnagreiningar á jarðvegssýn-
um vegna ylræktar eru hins vegar
gerðar allt árið enda ræktunin
ekki lengur bundin eingöngu við
sumarið. Og almennum áhuga-
mönnum um ræktun eru veittar
ýmiss konar upplýsingar og leið-
beiningar þegar eftir því er
leitað.”
Bjarni segir að lokum að
grundvöllur starfsins séu áburðar-
tilraunir sem gerðar voru víða um
land um árabil og eru enn gerðar
þótt þeim hafi mikið fækkað á
undanförnum árum. Ekki sé hægt
að leggja allar þessar tilraunir
niður því að þær gefi mjög mikl-
ar upplýsingar um hvað gerist í
jarðveginum við stöðuga áburðar-
notkun í ræktun eins og tíðkast í
hefðbundnum búskap.