Bændablaðið - 25.11.1997, Qupperneq 20
BændcMaðíð
Endurmenntun borgar sig!
Hranneyri ■ Hólarog Earðyrkjuskólinn
Greiðslur
Markaðsráðs fil
bænda vegna
sumarslátrunar
1998
í Bændablaðinu þann 16.
september sl. voru birtar fyrir-
hugaðar álagsgreiðslur Mark-
aðsráðs kindakjöts til bænda
vegna sumarslátrunar 1998.
Þar kom fram að greitt yrði á
fjölda dilka í gæðaflokkum Dl
(Dl*, DIA, DIB og DIC) eða
samsvarandi flokka í nýju
matskerfi, á það kjöt sem selt
er ferskt. Greiðslur þessar áttu
að hefjast í byrjun júlí með
1.200,- kr. pr. dilk og fara
síðan stiglækkandi niður í
200,- kr. pr. dilk í lok ágúst.
A fundi sínum þann 6.
nóvember sl. ákvað Markaðsráð
kindakjöts að greiða sama álag á
dilkaslátrun í júm 1998 og greitt
verður fyrstu vikuna í júlí, byggt á
sömu forsendum og gilda fyrir
slátrun í júlí og ágúst. I samræmi
við ofansagt mun Markaðsráð
kindakjöts því greiða 1.200,- kr.
pr. dilk dagana 1.-30. júní 1998.
Ný útgáfa af
Einka-Feng
Einka-Fengur, 2,0, ásamt
gagnasafni 1997, verður send
til áskrifenda á næstunni. í
gagnasafni Einka-Fengs eru
upplýsingar um 100 þúsund
hross með nýju kynbótamati og
kynbótadómum sumarsins.
Ný útgáfa af
Fjárvísi
Tölvudeild Bændasamtaka
Islands er að senda frá sór nýja
útgáfu af Fjárvísi, ætta- og
afurðaskýrsluhaldsforriti í
sauðfjárrækt.
Nýja útgáfan, Fjárvís 2,0,
er mikið endurbætt frá síðustu
útgáfu. Notendaviðmót hefur
tekið miklum breytingum með
það að markmiði að auðvelda
alla vinnu notenda við skrán-
ingu og leiðréttingar. Forritið
var þróað í nýrri útgáfu af
þróunarhugbúnaði sem eykur
hraða og minnismeðhöndlun
forritsins til muna. Bændasam-
tökin sömdu við Hjálmar
Ólafsson um forritun, eins og
fyrr, og að sögn Jóns B. Lor-
ange, sem hefur verið verk-
efnastjóri verksins, er hann
mjög ánægður með árangurinn
af þessu samstarfi enda leggur
Hjálmar allan metnað sinn í að
verða við ítrustu kröfum not-
enda. Þá sé einnig ánægjulegt
að finna fyrir einlægum áhuga
sauðfjárbænda að koma með
uppbyggilegar ábendingar við
að gera gott forrit betra, sagði
Jón B. Lorange. A þriðja
hundrað sauðfjárbændur nýta
sér nú forritið við sauðfjár-
skýrsluhald sitt.
I Gagnleg forrit fyrir framsækna bændur
| Einka Fenqur
IForrit fyrir
hrossaræktendur
J DanMink/Fox
| fyrir loðdýrabændur
Fjárvís
Afurða- og
ættbókarforrit fyrir
sauðfjárbændur
AoroSoft
skýrsluhalds- og
afurðaforrit fyrir
svínabændur
Búbót
Sérhannað
bókhaldsforrit fyrir
bændur
Bændasamtök
íslands,
Bændahöll viö
Hagatorg
Sími 563 0300
^ MASSEY FERGUSOINI
Gerið
MASSEY
FERGUSON 4200
\ Farþegasæti
Nýr mótor
Meira afl
> Nýtt útlit
> Nýtt og stærra
lúxushús
> Meira rými
iNútímaþægindi
\ Gott útsýni
Þökkum góöar
viótökurum
landiö allt
^rocra,-.
Ingvar
Helgason hf.
~ — ~ ' Sævarhöföa 2
“====■ Simi 525 8000
* Véladeild
Sími 525 8070
Mjög þægileg
vökva- og
beislisstýring sem
er öll hægra megin