Bændablaðið - 30.03.1999, Page 1
6. tölublað 5. árgangur
Þriðjudagur 30. mars 1999
ISSN 1025-5621
Þeir físka sem róa
Bœndablaðsmynd: Þröstur Reynisson
Eitt þeirra mála sem fjallað var um á
Búnaðarþingi 1999 voru hin fornu
réttindi, sem fylgt hafa jörðum á
íslandi frá því land var numið, til
hvers konar veiða úr sjó, rétturinn til
útræðis. Ályktunin hljóðaði svo:
„Búnaðarþing 1999 fer þess á leit við
stjórn BI að hún leiti leiða til að fá
útræðisrétt strandjarða virtan á ný og
staðfestan í fiskveiðilögum.“
Reynir Bergsveinsson,
fyrrverandi bóndi í Fremri-Gufudal,
sem slær þang á Breiðafirði á sumrin.
Til ferði á milli sláttuprammans og
lands notar hann bátkænu, sem er
lipur til slíkra flutninga þótt lítil sé.
Á vissum árstímum er fiskur enn
á ný kominn inn um eyjasund á
Breiðafirði og minnir það marga á
fiskigengd fyrr á tímum. Reynir brá
sér nokkra metra út á Flateyjarsund
í fyrra og veiddi vel, en Reynir er
einn þeirra sem gjarnan sækir sér fisk
í soðið. En vel á minnst, jafnvel þótt
hann veiði innan netlaga má hann
ekki selja afiann.
Meðfylgjandi texta lét Reynir
fylgja með myndinni, sem hann
afhenti Árna Snæbjörnssyni,
hlunnindaráðunauti BÍ, við upphaf
Búnaðarþings 1999. „Ég skora á
Bændasamtök Islands að sækja og
verja rétt manna til fiskveiða í eigin
netlögum og víðar þar sem það á við.“
/ÁS
Mjólkursamsalan og Mjólkurbú Flóamanna
Rekstrarhagnaður og arður
greiddur fil félagsmanna
Gðfl afkoma
SS
Sláturfélag Suðurlands skilaði
hagnaði af rekstri sínum á
síðasta ári fimmta árið í röð.
Hagnaður af rekstri félagsins
var 11 milljónir króna á síðasta
ári og er það 30 milljóna króna
aukning frá árinu áður. Er þessi
afkoma þökkuð samstilltu átaki
allra sem að félaginu standa og
þeirrar neytendatryggðar sem
félgið nýtur.
Bæði tekjur og gjöld jukust
hjá félaginu og dótturfélagi um
rúmar 200 milljónir. Veltufé á
árinu var 231,2 milljónir og
jókst um 16% milli ára.
Eiginfjárhlutfall var 45% á
síðasta ári og hefur aukist jafnt
og þétt frá árinu 1994 þegar það
var 15%. Félagið vann á síðasta
ári 327 ársverk samanborið við
318 árið 1997.
Á aðalfundi SS sem haldinn
var á föstudag var lagt til að
greiddur yrði 7% arður af
nafnverði hluta í B-deild
stofnsjóðs og reiknaði yrðu 7%
vextir á höfuðstól inneigna í A-
deild stofnsjóðs.
Á síðasta ári lauk
Sláturfélag Suðurlands við
stækkum kjötvinnslunnar á
Hvolsvelli. Sláturhúsum hefur
einnig verið fækkað.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
telja þetta hafa skapað
grundvöll fyrir góða nýtingu
húsanna og hagkvæman
rekstur.
Á árinu 1999 er gert ráð
fyrir svipaðri afkomu og á
síðasta ári. Rekstrarhorfur eru
taldar nokkuð góðar.
Aðalfundur Mjólkursamsölunn-
ar í Reykjavík var haldinn fyrir
skömmu. í ársreikningi vegna
ársins 1998 kemur fram að
heildartekjur fyrirtækisins og
dótturfélaga þess voru á síðasta
ári 4.411 milljónir króna, sem er
14% aukning frá árinu 1997.
Rekstrargjöld samstæðunnar
hækkuðu um 12% milli ára og
námu í fyrra 4.141 milljónum
króna. Hagnaður af reglulegri
starfsemi var því 270 milljónir
króna, en á árinu 1997 var sam-
bærilegur hagnaður 168 millj-
ónir.
Samþykkt var að greiddur yrði
arður til félagsmanna sem næmi
6,3% af verðmæti innlagðrar mjólk-
ur. Það eru að meðaltali 2 krónur á
hvem innveginn lítra til þeirra félags-
manna sem voru innleggjendur hjá
Mjólkursamsölunni á árinu 1998 eða
samtals tæpar 34 milljónir króna Á
fundinum var einnig samþykkt að
fela stjómum Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík og Mjólkurbús Flóa-
manna að hefja skoðun á möguleik-
um til aukinnar samvinnu um mót-
töku, vinnslu og dreifmgu mjólkur
og kanna jafriframt leiðir til enn nán-
ara samstarfs með frekari hagræð-
ingu að leiðarljósi.
Aðalfundur Mjólkurbús
Flóamanna
Aðalfundur MBF var haldinn í
síðustu viku. Þar kom ffam að heild-
artekjur Mjólkurbús Flóamanna
námu kr. 2.550 millj. og hækkuðu
um 198 millj. eða 8,4 % á milli ára.
Rekstrargjöld án fjármagnsliða og
skatta námu ki. 2.408 millj. Hækk-
uðu um 167 millj. eða 7,5 % milli
ára. Hagnaður fyrir fjármagnsliði
nam kr. 142 millj.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi nam 196 millj. en 146 millj.
árið áður. Verulegur afkomubati
skýrist m.a. af því að hagræðingar-
aðgerðir undanfarinna ára skila sér
auk þess sem bætt gæði innlagðrar
mjólkur skila sér í bættri nýtingu.
Ymsar endurbætur á framleiðsluað-
stöðu sem unnar hafa verið með
samstilltu átaki stjómenda og starfs-
manna hafa skilað hagræðingu og
verulega bættum rekstrarárangri
sem gerir það að verkum, að hægt er
að greiða í arð til framleiðenda um
89,3 millj. krónur sem nemur
7,02% af innleggsviðskiptum og
gerir u.þ.b. kr. 2,25 pr. innveginn ltr.
Til ráðstöfunar skv. rekstrar-
reikningi em kr. 131,5 millj.
Hagnaði er ráðstafað þannig:
Arður til framleiðenda kr. 89,3
millj. þ.af kr. 9,9 millj. lagðar í
stofrisjóð. Vextir í stofnsjóð og vara-
sjóð kr. 26,5 millj. í varasjóð em
lagðar kr. 14,5 millj. Afkoma dóttur-
félags kr. l,2millj. Sjábl. 18.
Ferðamannafjósið á Laugarbökkum:
Kúrekadans og
sóleyjarbarinn vekja athygli
Aðsóknin að ferðamannfjósinu að Laugarbökkum í Ölfushreppi
hefur verið góð í vetur og það em miklir annatímar framundan.
Markaðsetning síðustu ára er greinilega að skila sér því það er mjög
mikið um erlenda hópa, sem koma til að skoða fjósið í svonefndum
óvissu- og ævintýraferðum. Ferðamannafjósið hefur slegið í gegn hjá
erlendum ferðamönnum og hafa verið að koma nokkur hundmð gestir
um hverja helgi. Þorvaldur Guðmundsson, ferðaþjónustubóndi, er að
vonum ánægður með þessa góðu aðsókn og hann og starfsfólkið í
fjósinu slær alltaf á létta strengi með ferðamönnunum. Það nýjasta er
að bjóða gestum upp á kennslu í kúrekadansi í fjósinu og
Sóleyjarbarinn í hlöðunni er líka mjög vinsæll áningarsstaður. Á
myndinni má sjá Þorvald fræða erlenda gesti um lífið í sveitinni./MHH