Bændablaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 6
6 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 30. mars 1999 „Jú, ég er fædd og uppalin héma“, svaraði Asdís Sigurjónsdóttir á Syðra-Skörðugili þegar útsendari Bændablaðsins kom blaðskellandi í hlaðið hjá henni einn sólbjartan mánudag í mars. „Foreldrar mínir, Sigrún Júlíusdóttir og Sigurjón Jónasson, bjuggu hér og hér ólumst við upp, fjögur systkini." - Blaðamaður telur að margir hafi kannast við föður Asdísar, betur þekktan sem Dúdda á Skörðugili. „Já, það var nú líklega einna mest í sambandi við hross, hann hafði alla ævi unun af hestum og það skapast oft ansi mikil kynni milli manna í kringum hrossin, þótt menn búi hver í sínum landshlutanum. Svo áttu líklega ekki margir lengri samleið með Karlakómum Heimi en hann, svo það varð margt til þess að hann átti fjölda kunningja, víða um land“, svaraði Ásdís þessari spumingu. - Hvenœr fluttuð þið hjónin hingað að Syðra-Skörðugili? „Það var 1974, en þá höfðum við búið um skeið að Hesti í Borgarfirði, en maðurinn minn, Einar E. Gíslason, stjómaði búinu þar í 14 ár. Þar höfðum við byrjað okkar búskap og þar eignuðumst við tvo elstu syni okkar, þá Einar, sem er nú við nám erlendis og Elvar, sem býr á móti okkur hér á Syðra-Skörðugili. Hinir tveir, þeir Eyþór, sem er við nám á Hvanneyri núna og Sigurjón Pálmi, sem starfar við tamningar, fæddust svo eftir að við fluttum hingað", svarar Ásdís. - Hvað olli þvífremur en annað að þið ákváðuð að flytja hingað? „Það var nú líklega aðalástæðan að það var orðið ljóst að ekkert annað okkar systkina var líklegt til að taka við búinu hér og valkosturinn sá annar, að jörðin yrði seld einhverjum óskyldum. Við vildum hinsvegar prófa þetta og létum slag standa. Á þessum tímapunkti var orðið ljóst, að það færi að styttast í búskap foreldra minna, þau vom orðin fullorðin og slitin og húsakostur hér var allur miðaður við þann tíma þegar þau vom á besta aldri. Hinsvegar var ljóst, að ef halda átti búskap áfram Landssími íslands hf. afhenti ný- lega Kvenfélagasambandi Suður- Þingeyinga að gjöf tölvubúnað, sem nota á til að efla tölvukennslu í sveitum Suður-Þingeyjarsýslu, ekki síst á meðal kvenna. Um er að ræða fimm notaðar Pentium-tölvur og skjái úr eigu Landssímans, auk prentara, netþjóns og annars vél- búnaðar. Þá útvegar Landssíminn hugbúnaðarleyfi fyrir nauðsynleg- an hugbúnað. Tölvubúnaðurinn hefur verið settur upp í húsnæði hér, þurfti að byggja allt upp að nýju og þau vom einfaldlega orðin of fullorðin til þess og því í raun sjálfhætt hjá þeim að öðrum kosti“. - Það hefur verið mikið átak að koma jörðinni íþað horf sem hún er núna? „Já, við byrjuðum strax vorið 1974 á því að byggja bæði þetta íbúðarhús og útihúsin þama vestan við þjóðveginn. Þar em bæði fjárhús, rúmgóð hlaða og steinsteypt hesthús fyrir 50 hesta, sem þótti nokkurt nýmæli hér á þeim tíma. Við komum nefnilega með talsvert af hrossum með okkur, en Einar hafði verið að rækta homfirsk hross og faðir minn átti talsvert fyrir svo það var full þörf á stóm hesthúsi. Svo jukum við túnrækt veralega á næstu ámm. Einar fór strax að sambandsins í Húsmæðraskólan- um á Laugum. Kvenfélagasambandið hyggst ganga fyrir námskeiðum í tölvu- notkun og nýtingu Netsins. Að mati stjómar sambandsins veitir ný upplýsingatækni íbúum dreifbýlis- ins mörg ný tækifæri til að brúa fjarlægðir, afla sér þekkingar og ella atvinnustarfsemi. Haldin verða námskeið sem em öllum op- in en félagar í Kvenfélagasam- bandinu munu þó ganga fyrir og starfa hér sem ráðunautur og hélt því áfram fram til ársins 1983, þannig að ég þurfti að sjá mikið um búreksturinn.“ - En þú starfar við kennslu, ekki satt? „Já, ég útskrifaðist sem kennari árið 1970 og vann sem stundakennari við gmnnskólann á Hvanneyri einn vetur og kenndi einnig hér í Varmahlíð fyrstu tvö búskaparár okkar hér. Eg tók mér svo frí frá kennslunni til 1989 en tók þá til við hana aftur“. - Það hefur trúlega líka verið nóg að gera hjá þér á þeim tíma? „Það má segja það. Ég átti þama fjóra syni, sá yngsti er fæddur 1980, og það þurfti auðvitað að sinna þeim og heimilinu. Okkar búskap, sem var í upphafi bæði hrossa- og fjárbú, fylgdi líka talsvert mikið umstang, njóta afsláttarkjara. Lögð verður áherzla á að ná til fólks sem ekki hefur getað nýtt sér það tölvunám sem verið hefur í boði. í fréttatilkynningu frá Lands- símanum segir að fyrirtækið líti svo á að það gegni lykilhlutverki við að opna þjóðinni dyr að upp- lýsingasamfélagi nútímans. Fyrir- tækið leggi sérstaka áherslu á stuðning við menntamál, ekki síst nýtingu upplýsingatækni í skólum og þróun fjamáms og -kennslu, sem verður æ ríkari þáttur í menntakerfinu. Styrkur Lands- símans til Kvenfélagasambands- ins, sem samtals nemur rúmlega einni milljón króna, sé liður í þessari stefnu fyrirtækisins. mannmargt flest ár og oft upp í 15 - 20 manns í heimili að sumri til. Við höfum líka alla tíð haft það fyrirkomulag hér að hafa sjálfsþurftarbú að svo miklu leyti sem það er hægt, höfum t.d. haft kýr til heimilisnota, þótt við séum ekki með mjólkursölu og ég hef unnið úr mjólkinni hér heima“. - En þú ert nú ffullu starfi við kennslu, erþað ekki? „Jú, ég hef kennt samfleytt frá 1989 við gmnnskólann í Varmahlíð. Ég kenni þar 6. og 7. bekk og að auki kenni ég handavinnu og það, sem í eina tíð var kallað vélritun en heitir nú á tölvuöld fingrasetning.“ - En þið eruð nú með fjölbreyttari búskap en sauðfé og hross, erþað ekki? „Reyndar er það nú þannig að síðustu tvö árin hefur Elvar, næstelsti sonur okkar og Fjóla, kona hans, leigt af okkur sauðfjár- og hrossastofninn og reka þann hlutann. Við emm hinsvegar með loðdýrabú, en við settum upp refabú árið 1981 og bættum við okkur mink árið 1983. Sá rekstur er eins og allir vita sveiflukenndur hvað afkomu varðar og það kostar mikla þolinmæði og þolgæði að standast það allt. Hinsvegar þykir mér þetta að mörgu leyti ágæt vinna að hugsa um þessi dýr. Þetta er allt unnið undir þaki og á sama stað. Það er hinsvegar afar mikilvægt að hafa ræktunina í lagi og viðhalda stofninum með kynbótum. Aðstaða til þess hefur stórbatnað eftir að einangrunarbúinu í Hjarðarhaga var komið upp í því skyni. Við höfum fengið bæði kynbótadýr og sæði til þess að viðhalda okkar stofni og við teljum það gmndvallaratriði til að halda þeim skinnagæðum, sem nauðsynleg em til að fá sem best verð fyrir skinnin, hverjar svo sem markaðsaðstæðumar em“. - En þú ert nú aðfást við eitthvað fleira, er það ekki Asdís? „ Það væri þá kannski hægt að minnast á að við byrjuðum á því fyrir tæpum fimm ámm, ég og önnur kona hér í sveitinni, að reka dálitla veitingastofu í svonefndu Áshúsi við Byggðasafnið í Glaumbæ, þegar það hafði verið endurbyggt. Þetta hús á sér merka sögu; það var byggt á síðustu öld að Ási í Hegranesi og þar var stofnaður og rekinn fyrsti kvennaskóli á Islandi. Það var svo flutt að Glaumbæ fyrir nokkmm ámm og endursmíðað til upphaflegs horfs. Það þótti vel við hæfi að nýta þá aðstöðu, sem þama skapaðist, til þess að bjóða gestum safnsins upp á veitingar að þjóðlegum íslenskum sið. Þetta hefur verið afskaplega vinsælt meðal safngesta og satt að segja er húsakosturinn aðallega hinn takmarkandi þáttur í umfanginu. Við höfum opnað veitingasöluna 1. júní ár hvert, og lokað í endaðan ágúst, þannig að þetta er að fara í gang um það leyti sem skólanum lýkur og hann byrjar nokkmm dögum áður en Áskaffi lokar". - Það er þá lítið um sumarfrí hjá þér? „Það er nú einu sinni svona, búreksturinn gefur ekki af sér nægilegar tekjur og þá verður að afla þeirra á annan hátt, svo einfalt er það, og mér hefur aldrei leiðst að vinna“, svarar Ásdís af hógværð. „Við vomm að ræða það einmitt núna á dögunum í kvenfélaginu, að þegar ég flutti hingað aftur fyrir um 25 árum, þá vom líklega þrjár konur í félaginu, sem unnu utan heimilis. Núna em lfldega ein eða tvær, sem gera það ekki. En hvað Áskaffið varðar þá er gaman að geta þess, að núna í desember síðastliðnum vargerð tilraun með að hafa opið í Askaffi nokkrar helgar og Sigríður, safnstjóri, stóð fyrir sérstökum skoðunarferðum um safnið með ljósabúnaði gamla tímans. Á sama tíma var Áshúsið skreytt að gömlum sið og meðal annars vom sýnd þar jólatré frá ýmsum tímum, auk þess sem við vomm með kaffisöluna þar. Þetta varð mjög vinsælt og efalítið verður frainhald á þessu“. - Þú ert sumsé ífélagsmálum líka ? „Nei, satt best að segja reyni ég að forðast það. Mér finnst það verða of mikil fjarvera frá heimilinu að vinna fulla vinnu utan þess og vera svo að sinna félagsmálum á kvöldin og um helgar. Ég hef hinsvegar verið frá byijun í Soroptimistaklúbbnum hér í Skagafirði og tel mig hafa haft bæði gagn og gaman af. Sá klúbbur er reyndar að verða tíu ára núna á árinu, og það er gaman að geta þess, að landsfundur Soroptimista verður haldinn hér í Skagafirði um miðjan apríl og á þann fund koma hátt á annað hundrað konur annarsstaðar að af landinu og við klúbbsystur hlökkum mikið til að sýna þeim og kynna okkar heimahaga“. Sólin var að setjast bak við vesturfjöllin, þegar blaðamaður kvaddi þessa athafnakonu á hennar fallega heimili þennan marsdag. Hún hefur án efa þurft að vinna eitthvað lengur þennan daginn vegna tafarinnar við að tala við blaðamanninn. En margur karlmaðurinn myndi vafalaust vera búinn að fá nóg eftir að hafa sinnt tveimur af þeim fjómm störfum, sem Ásdís á Skörðugili sinnir. Hún er kennari í fullu starfi, hún er húsmóðir á stóm heimili, sem er líklega meira en eitt starf, hún er bóndi og hún rekur blómlegt fyrirtæki utan heimilis, og öllu er vel sinnt. Þetta getur enginn nema íslensk kona. -//> Landssíminn styrkir tðlvukennslu pingeyskra kvenna

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.