Bændablaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 2
2 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 30. mars 1999 Hætt við kjötdaga Framleiðsluráð hefur ákveðið að hætta við kjötdaga sem hafa verið árlegur viðburður undanfarin ár. Aðalástæðan fyrir því, að sögn Ólafs Hjalta Erlingssonar mark- aðsfulltrúa hjá Framleiðsluráði, er sú að ekki fengust nógu margir til þátttöku. „Það voru margir af stærstu framleiðendunum volgir til að byrja með og þess vegna var sýningartímanum breytt til að laga það að þörfum þeirra og óskum. Þrátt fyrir þetta hættu þau við,“ sagði hann. Ólafur bætir því við að minni fyrirtæki séu síðan misjafnlega í stakk búin til að taka að sér slík verkefni. „Þetta hefði gengið ef við hefðum náð nógu mörgum litl- um aðilum þó að stóru fyrirtækin hefðu ekki verið með. Það tókst því miður ekki,“ sagði Ólafur. 1000-1200 tonna umframbirgðir ai kartöflum Landssamband kartöflubænda telur að umffambirgðir af kartöflum nú séu á bilinu 1000-1200 tonn. Sighvatur Hafsteins- son formaður sambands- ins segir að menn séu að gera því skóna að þetta séu 10-15% umfram innanlandsneyslu. Sighvatur segir að undanfarin ár hafi verið hægt að losna við þessar umframbirgðir með útflutningi. „1994 fluttum við út til Færeyja og Noregs og svo fluttum við aftur út til Færeyja vet- urinn 1996-97. Við höfum haldið þessu áfram í vetur,“ segir hann. Sighvatur segir að íslenskar kartöflur eigi yfirleitt auðvelt með að komast inn á Fær- eyjamarkað. „Það fer hins vegar eftir að- stæðum hvort við komumst inn á Noregsmarkað. Nú eru svipaðar aðstæður í Evrópu og 1994 þegar kartöfluskortur var í Evrópu vegna þess að það náðist ekki að taka upp alla uppskeruna vegna ytri aðstæðna. En þegar eru nægar kartöflur í Evrópu er Nor- egur utan seilingar vegna flutn- ingskostnaðar," segir hann. Búið er að setja í reglugerðir um kynbótasýningar hrossa að sýnendum sé skylt að bera hjálma á sýningunum. Þetta er gert í kjölfar áskorunar árs- þings Landssambands hesta- manna þess cfnis. Ágúst Sigurðsson hrossa- ræktarráðunaumr BÍ segir að ís- lendingar hafi hingað til verið frekar fijálslegir með þetta og að tíma hafi tekið að breyta þessu. „Þetta er mikilvægt öryggistæki og mikilvægt að vera ekki neinir eftirbátar hvað varðar kynbóta- hrossin. Við ættum frekar að vera í fararbroddi. Nú hefur þetta verið sett í reglur," sagði Ágúst. Þessi nýja regla tekur gildi í vor. Gunnar Þórisson bóndi á Fellsenda í Þingvallasveit hefur undanfarið verið að tína fé frá Kjalarnesinu sem orðið hefur útundan í réttum. Gunnar og smölunarfélagar hans hafa fundið töluvert af fé og er Gunnar ósáttur við frammistöðu Reykjavíkurborgar í þessum málum. Gunnar segir að aðstæður á Kjalamesi séu þannig að Esjan sé norðan við stórt heiðarsvæði og það sæki alltaf í norðanáttina þegar veður er bjart og mýbit er. „Nú er svo komið að einungis 2-3 bæir á Kjalarnesinu eru með sauðfé meðan menn í Þingvalla- sveit lifa á sauðfé eingöngu. Kindin hagar sér þannig að ef engin kind er fyrir þá fer hún þangað.” Hann segir skilning sveitar- stjórna misjafnan á þessu. „Fyrir 10-15 árum var svo komið að það var farið að ganga óeðlilega mik- ið úti á Kjalarnesinu vegna þess að þeir sinntu ekki sínum skyld- um. Þá var þeim gert það ljóst af mér og Reyni í Helgadal að annaðhvort smöluðu þeir landið sitt eða þeir yrðu kærðir. Við vís- uðum á góðan smala, Friðrik í Vogsósum, og hann smalaði hjá þeim í tvö ár. Þá hætti að ganga úti.” Eftir þetta fækkaði fénu enn og allt fór í sama farið. Gunnar segir að síðastliðinn vetur hafi þrjár kindur gengið úti allan vet- urinn. „Ég náði ásamt öðrum 16 kindum í febrúar í fyrra. Við gerðum ekkert mikið veður út af því þá. Nú er Kjalames hins veg- Steinar Halldórsson frá Auðsholti var i óða önn að rýja ær á Hrafn- kelsstöðum í Hrunamannahreppi þegar Bændablaðið leit þangað í heimsókn. ar orðið hluti af Reykjavík og einn maður sér sérstaklega um þetta. Ástandið hefur hins vegar ekkert skánað því það vantar þekkinguna. Menn verða í raun að vera á sama stigi og rollan til að eiga möguleika á að ná henni,” segir hann. Hann segir að í þremur leitum sem framkvæmdar voru af Reykjavíkurborg á haustmánuð- um hafi náðst 15 kindur. Hann hafi hins vegar sjálfur náð í 36 kindur eftir áramót. Hann segir að líkur séu á að um 100 kindur hafi orðið útundan eftir réttir. „Þetta er mikið tjón fyrir þá sem eiga lömb í þessu. Þegar þetta er farið að leggja að þarf miicið fóð- ur til þess og gimbramar eru komnar að burði þegar páskarnir eru komnir. Þannig að tjónið er nokkuð þó að kindin sé lifandi. Gunnar segir að meðan allt er ógirt þá geti menn lítið sagt við þessu. „Reykjavíkurborg hlýtur að bera sömu skyldur til fjallskila og aðrir,” segir hann. Gunnar segir að Reykjavíkur- borg ætli sér að girða löndin af vegna ágangs sauðfjár. Það leysi hins vegar ekki vandann. „Við sauðfjárbændur erum að rækta mikið land í Þingvallasveitinni sem við beitum á líka og það gengur ágætlega. Þeir halda hins vegar að það þurfi að friða allt saman. Við tökum féð það tíman- lega að það skemmir ekki út frá sér því í útigangi gengur féð mjög hart að landinu. Ef þeir hefðu áhuga á að verja landið myndi þeir smala fénu strax',” segir hann. Hann bendir á að þó að girt sé í kringum lönd minnki skyldur þeirra ekki. „Þeir halda að ef þeir girði verði allt fjárlaust á eftir. Þá segja þeir bara að nú sé búið að girða og þá þurfi ekkert að smala fénu. En það þarf að hafa í huga að því færri sem kindumar eru því nákvæmar þarf að leita,” seg- ir hann. Gunnar tekur það fram að hann hafi átt mjög gott samstarf við Magnús í Stardal og ekkert hafi gengið úti hjá honum. Ástandið versni hins vegar þegar nær dregur þéttbýlinu. Garðyrkjuskólinn 60 ára Fjögurra daga af- mælishátíð Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í Ölfusi, fagnar 60 ára afmæli á sumardaginn fyrsta, 22. aprflnk. Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að halda fjögurra daga afmælishátíð, frá 22. aprfl til sunnudagsins 25. aprfl, sem er dagur umhverfisins. Það verður margt í boði á afmælishátíðinni, m.a. skrúðgarðyrkjusýning, blómasýning, garðyrkjusýning og fyrirtæki innan "græna geirans" munu kynna þjónustu sína. Það verður einnig heilmargt í boði fyrir yngstu kynslóðina, hestaleiga, hoppukastali og fleira. Hátíðin hefst með opnu húsi á sumardaginn fyrsta, sem nemendur sjá um. Á fóstudeginum kemur forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson m.a. í heimsókn. Á degi umhverfisins er ætlunin að skrifa undir samstarfssamning Garðyrkjuskólans, Hveragerðisbæjar, Grunnaskólans í Hveragerði, Ölfushrepps, Grunnskólans í Þorlákshöfn og Heilsustofnunar HNLFÍ á sviði umhverfismála. Garðyrkjuskólinn vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta á hátíðina og fagni þannig 60 ára afmælinu með nemendum og starfsfólki skólans. Viðmunum segja betur frá afmælisliátíðinni í næsta tölublaði Bændablaðsins. Kleiri njólk IIMBF Innlögð mjólk hjá Mjólkurbúi Flóamanna var 39,7 milljónir lítra árið 1998 og jókst um 1,4 milljón lítra frá árinu áður. Aukning inn- lagðrar mjólkur verður mest til á seinasta ársþriðjungi eða 1,2 millj. ltr. Að auki var keypt próteinríkt undanrennuþykkni (Kvarg). Að því meðtöldu voru 40,0 milljónir lítra til ráðstöfunar á próteingmnni en 39,7 á fitugrunni. Efnainnihald var nokkru lægra en árið áður og lægra en í grundvallarmjólk. Þannig urðu greiðslur til framleiðenda kr. 32,12 pr. lítra en meðalverð grundvallarmjólkur var kr. 32,41 pr lítra. Fjöldi innleggjenda á svæðinu var um áramótin 438 og fækkaði um 6 á árinu. Nýjum iirossaræktar- ráðunauO færO blóm Síðustu vikur hafa Ágúst Sigurðsson, nýráðinn hrossa- ræktarráðunautur Bændasamtaka íslands og Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda verið á fundarherferð um landið til að fjalla um stöðu hrossaræktar- innar og heyra hljóðið í hesta- mönnum. Á fjölsóttum fundi í Hótel Selfossi notaði Þorkell Bjamason, fyrrverandi hrossa- ræktarráðunautur tækifærið og bauð Ágúst Sigurðsson velkominn í starfið, með því að afhenda honum blómavönd. /MHH

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.