Bændablaðið - 30.03.1999, Síða 18
18
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. mars 1999
Vaxandi spennaí
viðskiptum með
greiðslumark í mjólk
Gðð afkoma kjá
ii og
Mjólknrkúi Hðamanna
Guðbjörn Arnason,
framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda
Svo virðist sem spenna fari
vaxandi í viðskiptum með
greiðslumark í mjólk. Megin
ástæðan er sú að eftirspum eftir
greiðslumarki er mun meiri en
framboð. Innvigtun mjólkur síð-
ustu mánuði hefur farið langt fram
úr áætlun og sýnt að mun fleiri
bændur framleiða umfram fram-
leiðsluheimildir nú en mörg und-
anfarin ár.
Það er alveg ljóst að innlendur
markaður tekur engan veginn við
því mjólkurmagni sem berst til af-
urðastöðva á yfirstandandi verð-
lagsári og því safnast upp birgðir.
Að öllum líkindum verður ekkert
svigrúm til að greiða bændum fyrir
umframmjólk á verðlagsárinu
1999/2000.
Hlutverk afurðastöðva
Það er óhætt að fullyrða að
nokkrar afurðastöðvar leika stórt
hlutverk í verðmyndun á greiðslu-
marki. Dæmi eru um að mjólkur-
samlag kaupi greiðslumark á
„markaðsverði" og endurselji
bændum á samlagssvæðinu á 10 til
15% lægra verði og aðstoði þannig
sína framleiðendur við kaupin. Þá
lána afurðarstöðvar, kaupfélög og
fjármálastofnanir bændum fyrir
kaupum á greiðslumarki.
Verð hœkkar
Samkvæmt upplýsingum sem
LK hefur haldið saman var algengt
að menn greiddu um 125 kr. fyrir
hvern lítra greiðslumarks á tíma-
bilinu frá september 1998 og fram
til áramóta. í janúar og febrúar fór
verð hins vegar að hækka og má
ætla að það hafi verið á bilinu 130
til 140 kr. Frá því um miðjan mars
virðist sem spennan hafi farið
verulega af stað og jafnvel hafa átt
sér lítilsháttar viðskipti sem hljóð-
uðu upp á 170 kr/ltr.
Ljóst er að venjulegur búrekst-
ur getur tæplega staðið undir þessu
verði og margur bóndinn myndi
sökkva sér í skuldir við kaup á
greiðslumarki á svo háu verði.
Bændur verða því að reikna dæm-
ið til enda áður en lagt er af stað.
Að vísu er alls ekki einfalt að finna
út hvað má borga fyrir greiðslu-
mark og hafa hag af fjárfesting-
unni. Margt þarf að athuga svo
sem skattalegt hagræði af því að
kaupa greiðslumark, en menn geta
lækkað tekjuskattsgreiðslur með
niðurfærslu á framleiðsluheimild-
um. Þá vegur framlegðarstigið
þungt þegar menn meta greiðslu-
getu búanna. Ætla má að fram-
legðin liggi á bilinu frá 25 kr/ltr.
og allt upp í 40 kr/ltr.
Dœmi um kaup
á greiðslumarki
1 eftirfarandi töflu er tekið ein-
falt dæmi, um bónda sem kaupir
greiðslumark á fyrri hluta þessa árs
og ávöxtunarkrafan er áætluð 9%.
Hér er ekki gert ráð fyrir skatta-
legu hagræði af greiðslumarks-
kaupunum, einnig er gengið út frá
því að tekjur og gjöld haldist í
hendur á tímabilinu (framlegðin
breytist ekki). Lágmarksverð
mjólkur er í dag 63,88 kr/ltr.,
breytilegur kostnaður er hér áætl-
aður 29,10 kr/ltr. og framlegðin er
því 34,78 kr/ltr. og fer sú upphæð
á árinu 1999 til að borga niður
greiðslumarkskaupin. Framlegð-
ina verður síðan að framreikna
með ákveðnum stuðli fyrir hvert ár
frá árinu 2000 til þess að hægt sé
að gera sér grein fyrir núvirði upp-
hæðarinnar að teknu tilliti til
ávöxtunarkröfunnar.
Framlegö Uppsöfnuð
Ár á núvirði framlegð
kr/ltr kr/ltr
1999 34,78 34,78
2000 31,91 66,69
2001 29,27 95,96
2002 26,86 122,82
2003 24,64 147,46
2004 22,60 170,06
2005 20,74 190,80
Fjárfestingin skilar seint arði
Eins og sjá má í töflunni tekur
það bóndann sex ár að greiða upp
kvótann ef hann borgar 170 kr.
fyrir lítrann. Það yrði ekki fyrr en
árið 2004 sem hann byrjar að fá
laun fyrir vinnu sína vegna kaup-
anna. Því er ljóst að nauðsynlegt
er fyrir alla að athuga sinn gang
vandlega áður en keypt er
greiðslumark á þessu verði. Ein-
hverjir munu komast að því að
eins og ástandið er nú munu þeir
ekki tapa þótt þeir staldri við og
fresti kaupum á greiðslumarki ef
sýnt er að fjárfestingin skili þeim
seint arði.
Að lokum
í þeirri stöðu sem mjólkur-
framleiðslan í landinu er nú er
brýnt að kúabændur dragi úr fram-
leiðslunni út þetta verðlagsár og
leiti einnig allra leiða til að laga til
í rekstrinum og lækka tilkostnað.
Nú er vetrarálagið fallið niður og
þó greitt verði fyrir próteinhluta
umframmjólkur er engu að síður
eftir að draga frá flutningskostnað
og búnaðargjald. Eftir standa þá
einungis um 21 kr/ltr. sem gera
vart meira en að greiða annan
breytilegan kostnað.
Fjöldi mjólkurframleiðenda er
nú tæplega 1.200 og hefur þeim
fækkað jafnt og þétt undanfarin ár.
Sú þróun mun halda áfram og hátt
verð á greiðslumarki ýtir undir það
að menn hætti framleiðslu. Það er
því óhætt að fullyrða að þeir kúa-
bændur sem hyggjast auka fram-
leiðslu sína munu geta keypt
greiðslumark í mjólk í framtíðinni
og það verð sem hver og einn
greiðir verður að ráðast af aðstæð-
um í hans eigin búskap.
Góð afkoma var hjá Mjólkur-
samsölunni og Mjólkurbúi Flóa-
manna á síðasta ári. Hjá Mjólkur-
samsölunni var hagnaður ársins
115 milljónir króna og ávöxtun
eigin fjár 3,5%. Hagnaður af
reglulegri starfsemi var 270 millj-
ónir króna en langtímakostnaður
vegna hlutdeildar Kaupfélags
Borgfirðinga í hagræðingu af úr-
eldingu Ms. Borgfirðinga var af-
skrifaður að fullu á árinu ásamt
hlutafjáreign í Engjaás hf. ásamt
viðskiptakröfum og ábyrgðum alls
90 millj. kr. Hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna var hagnaður ársins ársins
131,5 millj. kr. og arðsemi eigin
fjár 7,9%. Hagnaður af reglulegri
starfssemi varð 196 milljónir kr.
en fyrirtækið afskrifaði 17 millj.
kr. vegna Engjaáss hf.
Bæði fyrirtækin hafa verið að
bæta rekstur sinn jafnt og þétt á
undanfömum árum í kjölfar hag-
ræðingaraðgerða undanfarinna ára.
Mjólkursamlögum á núverandi
starfssvæði þessarra tveggja sam-
laga hefur á 6 ámm fækkað úr
fimm í tvö. Þetta ásamt endurbót-
um innan fyrirtækjanna og aukn-
um gæðum mjólkur sem berst til
vinnslu, skilar sér til framleiðenda
á formi arðgreiðslna pr. innveginn
lítra. Mjólkursamsalan greiðir 2
kr/líter í arð til innleggjenda, eða
6,3% af verðmæti innveginnar
mjólkur (3,69% í fyrra) auk þess
sem lagðar eru 0,33 kr/líter í sér-
eignasjóð félagsmanna. Mb. Flóa-
manna greiðir 2,25 kr/líter eða
7,02% af innleggsviðskiptum, þar
af em um 0,25 kr. lagðar í stofn-
sjóð. I niðurstöðum úr uppgjöri
búreikninga 1997 var meðalkúabú
með um 98 þús lítra greiðslumark.
Útborgaður arður frá þessum fyrir-
tækjum skilar búi af þessari stærð
196 þús. kr tekjum (því til viðbótar
kemur framlag í séreignasjóð eða
stofnsjóð), sem er góð búbót hjá
búi af þessari stærð. Þess má geta
að bú af þessari stærð skilaði á því
ári 1.715 þús kr. í launagreiðslu-
getu. Miðað við að inni í þeirri
tölu sé útborgaður arður, sem
nemur 62 aurum í líter er tekju-
aukningin ríflega 110 þúsund
krónur, sem er 6,4% af heildar
launagreiðslugetu ársins 1997.
Bæði fyrirtækin eru með hátt
hlutfall eigin fjár, Mjólkursamsal-
an 87,2% og Mb. Flóamanna
82,2%. Þó eiginfjárhlutfall lækki
lítillega milli ára er staða þessara
fyrirtækja mjög sterk. Eigin fé vex
í krónum talið, hjá Mjólkursam-
sölunni um 125 milljónir króna og
var í árslok 3.423 millj. króna, og
hjá Mb. Flóamanna um tæpar 72
milljónir og var í árslok 1.742
milljónir króna. Bæði ráðstafa
verulegum hluta hagnaðar í vara-
sjóð og tillag Mb. Flóamanna milli
áranna 1997 og 1998 í varasjóð
hækkar, úr 9,3 milljónum í 13,2
milljónir. Að auld hafa verið
teknar upp sérstakar greiðslur fyrir
úrvalsmjólk, 25 aura á líter frá og
með síðustu áramótum, á Sam-
sölusvæðinu. Framleiðendur á
starfssvæði Mjólkursamsölunnar
ættu því að geta horft björtum
augum til framtíðarinnar, með svo
öflug fyrirtæki sem bakhjarla.
Markaösmál
Erna Bjarnadóttir
BREVIGLERI
jarðtætarar
♦ Fjölhraða gírkassi
♦ Vinnslubreidd frá 205-
300 cm
♦ Með og án
jöfnunarvalsa
♦ Með bognum eða
beinum hnífum
Einnig mikið
úrval annarra
jarðvinnslutækja
VÉLAR&
WwNUSTAhf
Járnhálsi 2, Reykjavík,
sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri, Óseyri 1a,
sími 461 4040,
mmmMmmmmmmmmmmmmmmmmMmmmmsmmmmmmmimmmmmmmzmmmmmmmmmarmmmmmsiismmmmmmffimmMmmmmtsiammmimmmB
Framleiðsla og sala helstu búvara í febrúar 1999
Framleiðsla
Afurð Mánuður Ársfjórð. Ár Prósentubreyting frá fyrra ári Mánuður Ársfjórð. Ár Hlutdeild 12 mán,
Alifuglakjöt 200.695 638.830 2.767.585 31,7% 9.9% 29,7% 14,5%
Hrossakjöt 63.024 230.239 814.865 25,2% 8,7% 3,2% 4,3%
Kindakjöt 2.010 90.037 8.175.473 32,8% -26,2% 3,5% 42,7%
Nautgripakjöt 277.929 838.266 3.454.544 6,5% 4,9% 1,1% 18,0%
Svínakjöt 311.305 975.951 3.934.902 12,3% 5,5% 0,9% 20,6%
Samtals kjöt 854.963 2.774.323 19.147.370 15,2% 5,1% 5,6%
Mjólk 9.009.873 27.956.762 107.855.915 16,5% 12,3% 5,9%
Egg 170.158 781.626 2.333.152 3,0% 46,5% 1,9%
Sala
Prósentubreyting frá fyrra ári Hlutdeild
Afurð Mánuður Ársfjórð. Ár Mánuður Arsfjórð. Ar 12 mán,
Alifuglakjöt 233.447 755.780 2.744.129 32,3% 32,9% 29,5% 15,5%
Hrossakjöt 38.772 118.382 519.677 1,0% -15,5% -3,4% 2,9%
Kindakjöt 536.721 1.470.928 6.975.773 -6,4% -3,7% 4,0% 39,4%
Nautgripakjöt 305.480 812.905 3.537.028 14,4% 3,2% 3,9% 20,0%
Svínakjöt 327.007 990.299 3.923.975 16,6% 3,8% 0,2% 22,2%
Samtals kjöt 1.441.427 4.148.294 7,9% 4,3% 6,1%
Mjólk á prótg. 7.894.785 24.613.060 102.682.093 -0,9% -0,5% 0,3%
Mjólk á fitugr. 7.494.882 24.506.508 99.138.409 -2,2% -2,0% -0,4%
Egg 159.659 708.586 1.975.683 11,7% 42,7% -4,8%