Bændablaðið - 11.07.2000, Síða 11
Þriðjudagur ll.júlí 2000
BÆNDABLAÐIÐ
11
Mhópiir um
stefnumótun í
skógrækt
Landbúnaðarráðherra
hefur skipað starfshóp sem
hefur það að markmiði að
móta langtímastefnu í
málefnum skógræktar hér á
landi og hlutverki ríkisins í
skógræktinni.
Starfshópur þessi mun
kynna sér sjónarmið sem
flestra þeirra sem koma
nálægt skógrækt hér á landi
og móta úr því framtíðar-
stefnu í þessum málum. Á
grundvelli þessarar stefnu á
hópurinn síðan að semja
frumvarp til nýrra
skógræktarlaga. Hópurinn
hefur þegar haldið þrjá fundi
en honum er ætlað að skila
áliti fyrir árslok.
Þessi starfshópur ætlar að
mynda samráðshóp eftir til-
nefningu þeirra aðila sem
mestra hagsmuna eiga að
gæta í skógrækt. Hafa um 25
slíkir aðilar þegar fengið send
bréf og þeim boðið að tilnefna
fulltrúa í þennan hóp. Þeim
verður boðið að skila skrif-
legum hugmyndum um hvað
leggja ber sérstaka áherslu á í
þesari stefnumótun auk þess
sem hópnum er boðið að
fjalla um drög að nefndaráliti
og lagafrumvarpi. Þetta er
svipað fyrirkomulag og var
viðhaft þegar skipaður var
starfshópur um stefnumótun
í landgræðslu.
Starfshópinn skipa: Sig-
urður Guðmundsson skipu-
lagsfræðingur sem jafnframt
er formaður hópsins, Björn
B. Jónsson skógar-
verkfræðingur, Níels Árni
Lund deildarstjóri, Ólafia
Jakobsdóttir sveitarstjóri og
Þröstur Eysteinsson,
skógfræðingur. Hörður
Harðarson stjórnarmaður í
BI verið tilnefndur í
samráðshópinn fýrir hönd
Bændasamtaka Islands.
Ný stjúnn í
Félagi saufifjár-
bænda í
Bnrgar-
íjaröarhéraði
Nýlega var kjörin stjóm í
Félagi sauðfjárbænda í Borgar-
fjarðarhéraði. Formaður er Sigur-
geir Sindri Sigurgeirsson, Bakka-
koti en varafpnnaður Brynjólfur
Ottesen, Ytra-Hplmi, gjaldkeri er
Ólafur Guðmundsson, Sámstöðum
og ritari Ólafur Jóhannesson Kjal-
vararstöðum.
PLASTRISTAR
Margar tegundir og
styrkleikar fyrir nautgripi,
kindur og svín.
Vélaval • Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
slegist í för með bændum í Víðidal í V-Húna-
vatnssýslu þegar þeir smala hrossum og rétta
í Víðidalstungurétt. Einnig var fjallað um
íslenska hestinn í Ameríku og búgarður Dan
Slott í New York fylki heimsóttur. Skemmst
er frá því að segja að þátturinn vakti gríðarleg
viðbrögð og hefur fyrirspumum rignt yfír
aðila í Bandaríkjunum sem selja og rækta
íslenska hesta. Á fréttarás Eiðfaxa á netinu
var m.a. sagt frá því að einn aðili í Ameríku
hefði fengið hvorki fleiri né færri en 89 fyrir-
spumir í gegnum tölvupóst strax að þættinum
loknum. Einnig hefur fjöldi fyrirspurna borist
hingað til lands og er ljóst að öflug kynning
hestafyrirtækja á intemetinu leikur þar stórt
hlutverk. Mikil umfjöllun vestanhafs undan-
farið um ísland almennt, víkinga og landa-
fundi hefur líka haft sitt að segja.
Almennt er áhugi á íslenska hestinum í
Ameríku mjög vaxandi og eftirspum eftir vel
tömdum, ganggóðum hestum mikil. Utflutn-
ingur þangað hefur verið nokkuð stöðugur
undanfarin ár, eða hátt í tvö hundruð hross á
ári. Það sem af er þessu ári hafa verið flutt út
107 hross til Norður-Ameríku, sem er aðeins
fjölgun miðað við sama tíma í fyrra. Helsti
flöskuhálsinn í markaðssetningunni ytra er að
erfítt er að senda fólk þangað til starfa þar
sem nánast ómögulegt er að fá atvinnuleyfí í
Bandaríkjunum. Ljóst er að öflug útbreiðsla
mun ekki eiga sér stað nema þar sem fagfólk
er til staðar og getur ræktað, selt og kennt
fólki á íslenska hestinn. Þar sem slík þjónusta
er í boði, t.d. í Kalifomíufylki og víðsvegar á
austurströndinni, hefur útbreiðslan orðið
langmest. Einnig spilar hár flutnings-
kostnaður og sóttkví inn í, en fulltaminn
íslenskur hestur kominn til Ameríku með
öllum kostnaði er miklum mun dýrari en
frístundahestur af innlendu eða blönduðu
kyni. Takist að fella niður sóttkvína og
mennta fleira fólk þar vestra til fræðslu- og
kennslustarfa ætti íslenski hesturinn að eiga
greiða leið inn á markað í Ameríku. I haust
verður í fyrsta sinn haldin lögleg
kynbótasýning í Ameríku og mun Ágúst Sig-
urðsson, hrossaræktarráðunautur Islands,
stýra henni, en að sýningunni standa Band-
arísku Islandshestasamtökin, „United States
Icelandic Horse Congress." Mikill áhugi er
fyrir sýningunni og vonast menn til að hún
muni vekja menn til umhugsunar þar ytra um
gæðavitund í hrossarækt og kveikja áhuga
manna á því að eignast enn betri hross, en
góðir hestar sem eigendur eru ánægðir með
eru að sjálfsögðu besta auglýsing sem hesta-
kynið fær. Nokkuð líf hefur færst í keppni og
sýningar á íslenskum hestum og hefur færst í
vöxt að íslenskir og/eða evrópskir dómarar
haldi til Ameríku til að dæma mót eftir þeim
reglum er gilda hjá FEIF, alþjóðasamtökum
íslenska hestsins.
Félag hrossabænda hefur undanfarin þrjú
ár sinnt Ameríkumarkaði vel og m.a. tekið
þátt í átaksverkefninu „Islensk-Ameríska
hestaráðið" sem t.d. hefur staðið að
sjónvarpsþáttagerðinni og fjölmiðlaumfjöllun
ytra. Stjóm félagsins hefur lagt áherslu á
vinnu á Ameríkumarkaði og boðið aðild-
arfélögum sínum upp á kynningu á kröfum
Ameríkumarkaðar. Ljóst er að markaður
þessi er gríðarstór og erfitt hefur reynst að
finna hross sem henta kaupendum, en að
sama skapi býður þessi stóri markaður upp á
mörg spennandi tækifæri sem íslenskum
hrossabændum býðst að nýta með áframhald-
andi markaðs- og kynningarstarfi, markviss-
um tamningum og þjálfun, auk gæðavottunar
í hrossarækt.
Hulda G. Geirsdóttir
markaðsfulltrúi Félags hrossabœnda
Áhugi á íslenska hestinum eykst stöðugt vest-
anhafs og hefur öflugt kynningarstarf þar
undanfarin ár verið að skila góðum árangri. Á
sl. ári hafa m.a. verið sýndir amk. þrír vegleg-
ir sjónvarpsþættir um íslenska hestinn sem
náð hafa augum vel á annað hundrað milljóna
manna. Hin þekkta sjónvarpsstöð Discovery
Channel sýndi í vetur glæsilegan þátt um
íslenska hestinn þar sem farið var m.a. í
stóðréttir í Skagafirði og hefur sá þáttur verið
margendursýndur og brot úr honum sýnd á
fréttarás Discovery og Animal Planet
stöðvanna. Nú síðast var svo sýndur tveggja
klukkutíma þáttur um hesta á sjónvarps-
stöðinni A&E Network, en kynnir þáttarins
var hinn þekkti leikari Lou Diamond Phillips.
Þátturinn sem fjallaði um ýmis konar hesta og
nefndist „In the Company of Horses" eða
„Með hestum“ eins og það gæti lauslega þýtt
á íslensku, og var íslenski hesturinn eitt af
viðfangsefnum þáttarins. í þættinum er fylgst
með náttúrulegu uppeldi íslenska hestsins og
Prúður frá Neðra Ási er einn af mörgum góðum stóðhestum í Ameríku. Hér er hann á hlaðinu
heima á Helms Hill búgarðinum í New York, ásamt þjálfara sínum Birgu Wild frá Þýskalandi.
Hestarnir sem frú Hillary Clinton voru afhentir á Islandi sl. haust, þeir Reimar frá Argerði og Spaði
frá Feti, ásamt tilvonandi þjálfurum þeirra, reiðkennurum á Green Chimneys skólanum þangað
sem hestarnir munu fara og gleðja bandarísk bðrn.
TmMíí
■
Þ..*• fét'.
i V *; í
íslenski hesturinn:
Mikill áhugi
í Ameríku