Bændablaðið - 14.11.2000, Síða 11
Þriðjudagur 14. nóvember 2000
BÆNDABLAÐIÐ
11
pjðlmenni á mál-
þingi um reiðvegi
Góð þátttaka var á málþingi um
reiðvegi sem Hestamiðstöð ís-
lands stóð fyrir á Hólum í
Hjaltadal í síðustu viku, en alls
komu um 60 gestir víðsvegar af
landinu og meðal þeirra
fulltrúar hinna ýmsu aðila er
málið varðar s.s. vegagerðarinn-
ar, ferðaaðila, náttúruverndar,
landgræðslunnar, landeigenda,
umhverfisráðuneytisins og LH
auk fulltrúa margra hesta-
mannafélaga. Samgönguráðh-
erra Sturla Böðvarsson setti
þingið og í ræðu sinni benti hann
á að mikið væri óunnið í um-
ferðarmálum hestamanna, en
góður áfangi hefði náðst á
síðasta ári er reiðvegir voru sett-
ir undir vegalög. Þannig væri
búið að setja reiðvegi undir
sama hatt og þjóðvegi og þeir
orðnir lögformlegur hluti vega-
kerfísins.
Sturla gat þess einnig að við
endurskoðun á vegaáætlun þyrfti
að forgangsraða uppbyggingu á
reiðvegum bæði meðfram þjóð-
vegum og eins á milli landshluta.
Núverandi fjármagn til slíkra
vegaframkvæmda hrykki þó stutt
og hvaðst ráðherra tilbúinn að
beita sér fyrir hækkum fjárveitinga
af Qárlögum úr 30- 40 milljónum
árlega sem nú er í 140-150
milljónir á ári er næsta vegaáætlun
tekur gildi eftir 2 ár, að uppfylltum
skilyrðum um raunhæf áform
tengdum uppbyggingu reiðvega-
kerfisins.
I framsöguerindum var fjallað
um reiðvegamál frá sjónarhóli
margra aðila og voru allir sammála
um nauðsyn þess að koma á skil-
virku vegakerfi ekki síst í og við
byggð til að létta á hálendisum-
ferðinni þar sem allmargar leiðir
eru nú þegar illa farnar og sjáanleg
aukning á ferðamannastraumnum.
Hagsmunir landeigenda og ferða-
langa þurfi að fara saman, svo og
vemdun náttúru og lands. Taka
þurfi upp flokkun reiðvega með
tilliti til burðargetu og tegund um-
ferðar og semja staðla fyrir lagn-
ingu vega.
Flestir sem til máls tóku sögðu
að breyting á vegalögum, sem
meðal annars felur í sér heimild til
eignamáms lands undir reiðvegi,
væri af hinu góða og raunar for-
senda þess að vegagerðin geti
komið að vegalagningu annars-
staðar en meðfram þjóðvegum. En
Jóhann Már Jóhannsson, fulltrúi
landeigenda, benti á að með þeim
lögum félli eitt síðasta vígi um-
ráðamanna lands til áhrifa á fram-
kvæmdir á eignarlandi sínu. Væri
þar ekki um landsærindi að ræða
nema í fáum tilvikum heldur miklu
frekar það ónæði sem mikil um-
ferð skapaði og lög ein og sér
næðu ekki til að spoma við, gagn-
kvæm tillitsemi yrði alltaf að
fylgja með.
I pallborðsumræðum sem á
eftir fóru komu fram margar fyrir-
spumir og meðal annars hve mikil
vinna væri framundan að skrá og
flokka reiðleiðir fyrir frekara
áframhald. Sigríður Sigþórsdóttir
frá LH taldi það ekki eiga að taka
mjög langan tíma þar sem mikið af
upplýsingum væri til staðar í
gagnagmnni sveitarfélaga vegna
skipulagsvinnu þeirra. Og þó til-
lögum að flokkun reiðvega væri
ekki lokið þá mætti nota tillögur
nefndar samgönguráðuneytisins
um reiðvegamál sem stuðningsp-
lagg heima í héruðum til undir-
búningsvinnu.
Almenn ánægja var með
málþingið sem þótti takast vel og
vom menn að lokum hóflega
bjartsýnir á að málefni þeirra er
„vilja frjálst um fjöllin ríða“ séu á
réttri leið þó hægt fari. /GR.
r ^
A DeLaval
Alpro
Tölvustýrð kálfafóstra
• Alpro tölvustýrð kálfafóstra
• Fjárfesting sem borgar sig!
• Einstaklingsfóðrun
• Fjöldi heimsókna og stærð skammta er
forritað á einfaldan hátt
• Getur fóðrað allt að 30 ungkálfa
• Sjálfvirk aukning/minnkun á dagskammti
• Færri vinnustundir við fóðrun
• Rólegri og heilbrigðari kálfar
• Fæst í tveimur útgáfum Alpro og Stand
alone
VELAVERf
Reykjavík:
Lagmúli 7
Sími 588 2600
Akureyri:
Dalsbraut le
Sími 461 4007
www.velaver.is
Garðyrkjumiðstöðin formlega opnuð við hátíðlega athöfn:
„Fyrsta skrefið í afi
festa Ifigheimili
garðyrkjunnap í sessi"
Garðyrkjumiðstöðin var opnuð
við hátíðlega athöfn að Reykjum
í Ölfusi á dögunum að viðstöddu
fjölmenni. Það eru Bænda-
samtök íslands, Garðyrkjuskóli
ríkisins og Samband garðyrkju-
bænda sem standa sameiginlega
að miðstöðinni og var samningur
vegna hennar undirritaður við
opnunina og staðfestur af land-
búnaðarráðherra.
RARIK gaf nýja heimtaug í til-
raunagróðurhús sem verður opnað
bráðlega og er verðgildi þeirrar gjaf-
ar um 800 þús. krónur. Þá var end-
umýjaður samningur milli Garð-
yrkjuskólans, Landgræðslunnar og
Skógræktar ríkisins um „græna
símennturí' þ.e. samvinna í endur-
menntun á þeim sviðum sem tvær
síðamefndu stofnanimar starfa á.
Garðar Ámason og Magnús Á.
Ágústssoii garðyrkjuráðunautar
Bændasamtaka íslands og Unn-
steinn Eggertsson framkvæmda-
stjóri Sambands garðyrkjubænda
hafa flutt starfsemi sína í mið-
stöðina ásamt tilraunastjóra Garð-
yrkjuskólans. Þessi fyrsti áfangi er
um 125 m2 en Sveinn Aðalsteins-
son skólastjóri Garðyrkjuskólans
vonast til að bráðlega verði hægt
að bjóða út 425 m2 viðbyggingu til
norðurs sem myndi hýsa skrifstof-
ur, bókasafn og nýjan fyrirlestrar-
sal.
„Þessi áfangi er fyrsta skrefið
en hann er að sjálfsögðu ófull-
nægjandi vegna þrengsla. Þetta er
þó fyrsta skrefið til að festa lög-
heimili garðyrkjunnar í sessi,“
sagði Sveinn.
Hann segir að til að ljúka næsta
áfanga vanti fé og til að tryggja
það fé þurfi hann á stuðningi að
halda frá þingmönnum. „Það skipt-
ir rniklu máli að við sköpum þess-
ari atvinnugrein og þróunarstarfi
hennar lífvænleg skilyrði. Þannig
framleiðum við áfram vöm og
veitum þjónustu sem skiptir máli
fyrir daglegt líf okkar allra en
skiptir jafnframt sköpum fyrir
lífsviðurværi hátt í 2000 fjöl-
skyldna."
„Þetta er merkur áfangi þó að
Að ofan má sjá fulltrúa að-
standenda garðyrkjumiðstöðvar-
innar ásamt ráðherra og ráðuneyt-
isstjóra. F.v.: Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra, Sigurgeir
Þorgeirsson framkvæmdastjóra
BÍ, Sveinn Aðalsteinsson skóla-
stjóra Garðyrkjuskóla ríkisins,
Guðmund Helgason ráðuneytis-
stjóra landbúnaðarráðuneytisins
og Kjartan Ólafsson formann
Sambands garðyrkjubænda. Hér
til hliðar eru starfsmenn garð-
yrkjumiðstöðvarinnar, f.v.:
Magnús Ágústsson og Garðar
Árnason garðyrkjuráðunautar BÍ
og Unnsteinn Eggertsson fram-
kvæmdastjóri Sambands garð-
yrkjubænda.
við bíðum þess enn að aðstaðan
verði fullkomnari en hún er þegar
orðin,“ sagði Sigurgeir Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri Bænda-
samtakanna.
„Ég get ekki neitað því að við í
Bændahöllinni söknum þessara
ágætu félaga okkar og vissulega
mun gangurinn veikjast þegar
þessi fagþekking fer úr húsi. End-
anlegt mat gat hins vegar aldrei
orðið annað en að það hlyti að vera
heilladrýgra fyrir greinina að færa
þessa fáu fagaðila í garðyrkjunni
saman og styrkja þeirra samstarf í
rannsóknum, leiðbeiningu og
kennslu. Auðvitað munum við þó
áfram halda tengslum við okkar
menn.“
„Nú eru ráðunautamir komnir
heim,“ sagði Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra við opnunina.
„Skólamir era hjartastaður bú-
greinanna. Þeir dæla afli og orku í
greinamar og þess vegna eiga
vísindamennimir og ráðunautamir
að vera þar. Þar em þeir í gras-
rótinni og í þeim tengslum sem
þeir þurfa á að halda.“
Guðni segir mörg og stór verk-
efni að vinna. „Við eigum eftir að
byggja við þennan skóla og ég er
sannfærður um að það mál fær
framgang. Ég trúi því að á næstu
tveimur ámm verði spýtt í lófana
og tekið á með þessari stofnun. Ég
heiti því að ég skal fara fyrir því
liði af fullri orku og veit að margir
vilja þar fara fram úr mér til að
eiga þau afrek sem menn í þessari
stofnun vilja vinna.“