Bændablaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 6
6
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. mars 2001
Alltaf skrefi framar
n
diYTií TAMSTíTO
Bjóðum uppá hin vinsælu eyrnamerki
fyrir búfénað frá RITCHEY TAGG.
Sérpöntum númeruð merki í allt að ellefu litum.
Frí merkitöng fylgir fyrstu 100 merkjunum.
(Frí merkitöng fylgir aðeins Snapp Tagg)
Einnig merkipennar, úðabrúsar og krítar.
VELAR&
ÞJéNUSTAhF
ÞeKKTIR FYRIR ÞJÓNUSTtl
JArnhAlsi 2 «iio Reykjavík ■ Sími: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220 ■www.velar.is
Oseyri 1a «603 Akurcyri ■ SÍMi: 461-4040 ■ Fax: 461-4044
Selfoss, pakkhús v/Trygcvatorg b8oo Selfoss ■Sími: 482-1501 ■ Fax: 482-2819
Hklla, pakkhús «850 Hella ■ SÍMI: 487-5887 mFaX: 487-5833
Fyrirspurnir á Alþingi um húshitun:
Húshitun með olíu 146
hús. kpúnum lnerri en
hjú orkufyrirtækjum
Húshitunarkostnaður í sveitum
var nokkuð til umræðu á
Alþingi á dögunum þegar tveir
þingmenn lögðu fram fyrir-
spurnir um þetta málefni til
iðnaðarráðherra.
Fyrri fyrirspumin, sem kom frá
Einari K. Guðfinnssyni, var al-
menns eðlis og var þá spurt um
fjölda þeirra lögbýla sem ekki ættu
þess kost að tengjast veitukerfum
orkufyrirtækjanna í landinu,
áætlaða heildarorkuþörf þessara
jík
Polaris -umbodid á Akureyri sími 462-3626 Glerárgötu 32
Sportsman 6X6
Burðargeta 400 kg. Hátt og lágt drif.
Verð 1.069.000 kominn á skrá og meö VSK,
858.620 án VSK
Fjórhjól verð frá 549.000 með VSK
Vélsleðar í úrvali, verð frá 598.000 komnir á skrá og
með VSK
Úrval af útivistarfatnaði, gallar, skór,
hanskar, hjálmar, gleraugu, nýrnabelti.o.fl.
o.fl. o.fl.
Viðgeröar- og varahlutaþjónusta
býla, hversu mikið ætla mætti að
húshitunarkostnaður þessara býla
breyttist við það að þau tengdust
þessum kerfum og aðgerðir
ráðherra til að lækka húshitunar-
kostnað þessara lögbýla.
I svari Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra kom fram að
samkvæmt gögnum frá orkufyr-
irtækjum megi ætla að 115 lögbýli
séu ekki tengd veitukerfum þeirra.
Af þeim hafa um 70 heima-
rafstöðvar og um 25 eru í eyði
þannig að eftir standa um 20 býli í
ábúð sem hvorki hafa aðgang að
veitukerfi orkufyrirtækja né
heimarafstöð. Tekið er fram að
nánast allir eigi þess kost að tengj-
ast þessum veitukerfum en oft sé
það ekki raunhæfur kostur vegna
kostnaðar. Þá kom einnig fram að
miðað við meðalorkuþörf á býlum
kostar 226 þúsund krónur á ári að
hita með olíu en tæplega 80
þúsund að vera tengd veitukerfum
orkufyrirtækja. Þarna munar því
146 þúsund krónum. Ráðherra
upplýsti einnig að í ljósi þessara
staðreynda hefði hún ákveðið að
fela nefnd á vegum ráðuneytisins
að kanna stöðu þessara mála og
gera tillögur um aðgerðir vegna
lögbýla sem ekki eru tengd orku-
fyrirtækjum.
Svanfríður Jónasdóttir spurði
síðan um niðurgreiðslu á húshitun
með olíu. Hún vildi vita hvar á
landinu íbúar ættu ekki annan
kyndingarkost en olíu og hvort
niðurgreiðsla á þessum kostnaði
samræmdist tillögum um lækkun á
húshitunarkostnaði sem komu
fram bæði í skýrslu um aðgerðir í
byggðamálum og þingsályktun um
stefnu í byggðamálum 1999-2002.
Svanfríður sagði það alveg ljóst að
húshitun með olíu hefði ekki notið
sömu fyrirgreiðslna og húshitun
með raforku og sums staðar hafi
menn ekki annan kost en olíu til
kyndingar.
Ráðherra upplýsti í svari sínu
að í húshitunarspá orkuspámefnd-
ar frá 1996 væri talið að um 1,3%
af öllu hituðu íbúðarhúsrými í
landinu væri hitað upp með olíu.
Þetta hlutfall var hæst á
Vestfjörðum, eða 7%. Langstærsta
einstaka svæðið sem þannig háttar
til er Grímsey þar sem búa um 100
manns, en einnig nefndi ráðherra
Hólsfjöll og Flatey á Breiðafirði.
Þá sagði ráðherra það vera skoðun
ráðuneytisins að olíustyrkir féllu
ekki undir þær aðgerðir til lækkun-
ar húshitunarkostnaðar sem mælt
sé fyrir um í byggðaáætlun.
Aðgerðir til þess hafa einkum
verið að setja á stofn hitaveitur þar
sem því verður við komið og auka
niðurgreiðslur til rafhitunar.
Þetta svar kom Svanfríði á
óvart því að hún sagðist hafa
staðið í þeirri trú að þessi ákvæði
um húshitun ættu jafnt við um olíu
sem orkugjafa eins og aðra orku-
gjafa. Valgerður ítrekaði það hins
vegar að þetta væri skoðun ráðu-
neytisins, ekki hennar eigin
skoðun, og að framangreind nefnd
myndi skoða þennan þátt líka.
Takmarkið væri að lausn væri
komin á þessi mál áður en næsti
vetur gengi í garð.
Rekstrargangar á vefnnm
Tveir þingeyskir bændur, þeir
Vilhjálmur Grímsson og
Halldór Hrafn Gunnarsson,
hafa unnið við það í hjáverkum
að smíða rekstrarganga og selja.
Þeir hafa þegar selt fimm slíka
til bænda í Þingeyjarsýslum og
nú eru þeir farnir að kynna
starfsemi sína á vefnum.
Rekstrargangar þessi nýtast til
margra hluta ef rnarka má vefsíðu
þeirra félaga. Hægt er að nota þá
við flokkun, ef t.d. þarf að draga
heimafé frá ókunnugu. Þeir
gagnast einnig þegar vigta á fé,
gefa lyf eða skoða ær á haustin
með tilliti til holdafars, tanna o.fl.
Gangurinn er smíðaður úr gal-
vanhúðuðu próffljárni og hliðamar
eru klæddar með olíusoðnum
krossviði. Hann getur mest verið
370 cm á lengd. 115 cm á hæð og
114 cm á breidd.
Hægt er að skoða rekstrar-
ganginn nánar á slóðinni
http://gangur.nett.is. Þar eru einnig
upplýsingar um hvernig hægt er að
komast í samband við þá félaga.
Hægt er að ná sambandi við þá
Vilhjálm og Halldór, í símum 464-
3266 og 866-4975.
Sparaðu fé og fyrirhöfn
Z Dráttarvéladekk
Heyvinnuvéladekk
Vörubíladekk
£
/
/
/
Jeppadekk
Fólksbíladekk
Hjá Gúmmívinnslunni
fœrð þú allt á einum stað!
Z Felaur
2 Rafgeymar
£ Keðjur
Z Básamottur
.. M
ú Oryggishellur
Kannaðu málið á www.gv.is
Haltu þeim á
Sendum um allt land -
Frrr flutníngur til Reykjavíkur
SuL -■
mottunm!
9m J
Gúmmívinnslan hf.
Réttarhvammi 1 • Akureyri
Hringið og fáið frekari upplýsingar
Sími 461 2600 • Fax 461
Þýsku básamotturnar frá Gúmmívinnslunni
má nota jafnt undir hesta, kýr, svín og fleiri dýr
Eigum á lager 100,110 og 120 cm breiðar mottur í ýmsum
lengdum, einnig dregla og mottur í kerrur og pallbíla.
NYTT - NYTT
100% vatnsheldir kuldagallar
Litir: einlitir bláir og grænir og
tvílitur blár/orange
Gott verð
Eyjavík, heildsala
S. 481-1511