Bændablaðið - 13.03.2001, Page 21
Þriðjudagur 13. mars 2001
BÆNDABLAÐIÐ
21
Hestamennska í npp-1
sveiflu á Krúknum
Það hefur ekki farið fraru hjá
neinum að miklar vonir eru
bundnar við nýju reiðhöllina á
Sauðárkróki og þá starfsemi
sem þar mun fara fram. Þetta
hefur leitt til töluverðrar upp-
sveiflu í hesthúsabyggð á Flæði-
gerði þar sem margir tóku sér
hamar í hönd á haustdögum og
hófu lagfæringar á hesthúsum
sínum.
Víða mátti sjá gamlar milli-
gerðir og stalla liggja fyrir dyrum
úti og menn á þönum við að
innrétta upp á nýtt áður en gæðing-
arnir yrðu teknir á hús. Vígsla á
einu slíku nýuppgerðu húsi fór
fram nú á dögunum þar sem gest-
um var boðið að skoða glæsilegar
endurbætur á einu elsta húsinu í
hesthúsahverfinu. Allt var
hreinsað út og húsið klætt í hólf og
gólf og loks settar upp stíur fyrir
tólf hross.
Kaupfélag Skagfirðinga flytur
inn danskar milligerðir sem reynst
hafa vel hérlendis. Stíurnar eru
rúmgóðar og botninn klæddur
gúmmímottum sem hleypa raka í
gegnum sig svo mjög Iítils undir-
burðar er þörf. Sú nýjung er eftir-
tektarverð að í stað hefðbundinna
stalla er hey sett í trollpoka sem
síðan eru hengdir í keðju neðan úr
loftinu. Þetta lengir þann tíma sem
hrossin eru að éta og eins er fyrir-
komulagið heppilegt fyrir þá sem
eru að flýta sér við morgungjafir.
Hægt er að taka gjöfina til kvöldið
áður og aðeins þarf að hengja pok-
ana upp að morgni.
Plássið í húsinu nýtist afar vel
og rúmgóð kaffistofa og hrein-
lætisaðstaða er nú í einu horninu
þar sem áður var hlaða. Plássþörf
fyrir hey minnkaði verulega eftir
að eigendur ákváðu að kaupa fer-
bagga af Bessa verktaka í
Hofsstaðaseli sem þjónustar hesta-
menn á ýmsa lund og kemur viku-
lega og afgreiðir hey inn í hús.
Hitablásari og vifta sjá til þess
að ávallt er jafnt og gott loft í
húsinu. Augljóst er að hvergi hefur
verið til sparað við bygginguna
auk þess sem eigendur lögðu
sjálfir um 600 vinnustundir í
breytingarnar. Varð einhverjum að
orði við vígsluna að það væri varla
hægt að hleypa hrossum inn í
svona fínt hús, svo vel málað og
frágengið.
Bændur sem hætt hafa búskap
á síðustu árum og sest að á
BÆNDUR
Vatnsheldir samfestingar
úr Polyuretan.
Hentugir í öll bústörf
.Litir: grænt og orange
Eyjavík, heildsala
S. 481-1511
Sauðárkróki eru býsna áberandi í
hestamennsku þar og gefa hinum
yngri lítið eftir við tamningar og
þjálfun. Einn þeirra er Hafsteinn
Lúðvíksson frá Ytra-Vallholti en
hann er einn eigenda hússins. Að-
spurður kvað hann svona aðstöðu
auka enn á ánægjuna við hross-
astússið þar sem öll vinnuaðstaða
væri nú orðin svo þægileg og
hirðing leikur einn. /GR
Eigendurnir kampakátir á vígsludaginn en að sögn þeirra eru næstu fjárfestingar stór kerra og loks jörð!! Frá
vinstrh Hafsteinn, Guðbjörg, Soffía, Þórarinn, Orri^Helga Dagný með Valdísi og loks Sólrún.
Lengi býr að
fyrstu gerð
Kjarnfóður frá Fóðurblöndunni er náttúruleg afórð úr úrvals
hráefnum. Orkuríkir, fituhúðaðir fóðurkögglar, sérstaklega
framleiddir fyrir íslenskan markað.
Að mörgu er að hyggja við fóðrun búfjár því kálfur launar
gott uppeldi. Hafðu samband við fóðurfræðing okkar og
gerðu góðan bústofn betri.
FB
FOÐURBLANDAN HF
KORNGARÐI 12 • PÓSTHÓLF 4114 • 124 REYKJAVÍK • SÍMI: 568 7766 • FAX: 568 9166