Bændablaðið - 13.11.2001, Side 8

Bændablaðið - 13.11.2001, Side 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 13. nóvember 2001 Rsektun íslenskra mjölkurkúa Ræktunarstarf snýst að stórum hluta um það að bera saman gripi með tilliti til verðmætra eiginleika og velja siðan þá gripi sem best koma út til áframhaldandi ræktunar. Ef litið er til ræktunar nautgripa til mjólkurframleiðslu um víða veröld þá kemur í Ijós að takmarkið er mjög svipað milli landa og kynja, miklar og auðteknar afurðir frá hraustum og hagkvæmum gripum. Því má ætla að almennt sé verið að velja fyrir svipuðum eiginleikum þó svo að um sé að ræða mismunandi skilgreind kúakyn sem nýtt eru til framleiðslunnar. Eins er þessu farið hérlendis með okkar íslensku kýr en þar miðar ræktunarstarfið í nákvæmlega sömu átt og er róðið með öllum tiltækum árum, mælingum, sæðingum, dómum, kynbótamati o.s.frv. Miðað við gildismat dagsins í dag á því hvað teljist verðmæti í mjólkurframleiðslu er ljóst að við tökum þátt í sama róðri og aðrar þjóðir með önnur kyn. Því er eðlilegt að einhverjir líti upp og velti fyrir sér öðrum eða betrumbættum farkosti eða að minnsta kosti vilji vita hvemig miði I samanburði. Islenskt ræktunarstarf stefnir, þegar öllu er á botninn hvolft, á gripi sem eru sömu eiginleikum búnir og bestu alhliða mjólkurkýr heimsins. Ræktunartakmark með íslenskar mjólkurkýr og evrópskar er í rauninni nákvæmlega það sama. Urvalið gengur út á að velja gripi sem eru sömu kostum búnir. Því hljóta að vakna spumingar um möguleika islenska kynsins hvað þessa eiginleika varðar með afkomu bænda og neytenda í huga, því ef ræktunarstarfið skilar sér ekki til þessara aðila þá spyr ég nú bara: Til hvers er annars róið? Nú er það svo að gildismat getur breyst, það sýnir sagan okkur, og hver veit nema einhver einkenni íslensku kýrinnar sem ekki fá mikla athygli í dag fái einhvemtíma aukið vægi. Um það er hins vegar ekki auðvelt að spá en möguleikinn hlýtur þó að vera fyrir hendi og hann þurfum við að koma auga á með öllum tiltækum ráðum. Eins og áður sagði þá er samanburður lykilatriði í öllu ræktunarstarfi en það má segja að framfarir í kynbótafræði hafi að stómm hluta snúist um að ná tökum á ömggari og betri aðferðum til samanburðar. Þegar nautgripasæðingar komu til sögunnar fyrir miðbik síðustu aldar þá skapaðist loks færi á að bera saman gripi á mismunandi búum því sæðinganautin mynduðu ættemistengsl á milli hjarðanna. Mikil verslun með erfðaefni landa á milli á undanfömum árum hefur breytt stöðunni enn frekar því með þeim tengingum sem þar skapast má bera saman gripi á búum í mismunandi löndum og raða þeim upp með tilliti til verðmætra erfðaeiginleika. Þar sem svo háttar til má á hverjum tíma meta stöðu viðkomandi kyns í samanburði við önnur með tilltölulega litlum tilkostnaði þ.e. hreinlega með fjölþjóðlegu kynbótamati. Hérlendis höfum við ekki þennan möguleika á stöðumati því við erum að fást við algjörlega einangrað kyn. Til þess að hægt væri að beita slíkum samanburði yrði því að dreifa erlendu erfðaefni út til bænda sem síðan skapaði grunninn. Þessi aðferð er ffekar einföld og henni fylgja þeir ótvíræðu kostir að samanburðamiðurstöður kynja tilheyra ekki einhveijum ákveðnum tímapunkti heldur verður um símat að ræða í gegnum ættemistengingar landa á milli. Gallamir em hins vegar þeir að blöndun hefur átt sér stað og ekki endilega einfalt að hætt við í miðjum klíðum. Leið okkar Islendinga er því að gera einangraða samanburðarrannsókn sem hefur þá mikilvægu kosti að ekki er um innblöndun í stofninn að ræða. Gallinn em hins vegar sá að hún segir fyrst og fremst til um stöðu mála á ákveðnum tímapunkti. Þá er stundum nefnt að svona samanburðir séu dýrir í framkvæmd samanborið við dreifðar tilraunir úti hjá bændum en það er auðvitað afstætt hvað sé dýrt ef ekki verður aftur snúið. Sú þaulhugsaða samanburðarrannsókn sú nú er í deiglunni gæti orðið okkur afar verðmæt til að meta stöðu og möguleika íslensku kýrinnar og mun ekki einungis veita okkur svör um hvemig hún stendur sig í samanburði við annað kyn heldur gefúr okkur tækifæri til að stunda rannsóknir á eiginleikum hennar sjálffar. Sérstaða sem við höfúm ekki komið auga á enn gæti komið fram í dagsljósið í umfangsmikill rannsókn sem þessari. Það gæti hleypt nýju blóði í islenska nautgriparækt því aldrei getur það verið takmark okkar að útrýma íslensku kúnni. Draumastaða okkar hlýtur að vera að geta áfram nýtt okkar eigið kyn og geta fært fyrir því ótvíræð rök. Sú áætlun að nota norskar kýr í þennan samanburð finnst mér ekki aðalatriði málsins, þó svo að líklega sé það skynsamlegt. Aðalatriðið er að samanburðurinn fari ffam því með honum fáum við óbeinan samanburð á önnur mjólkurkúakyn almennt auk stórefldra rannsókna á islenska kúastofninum. Ágúst Sigurðsson, ráðunautur, Bœndasamtökum íslands. A DeLaval Harmony TopFlow MJALTAKROSSIN VÉIAVER Lágmúla 7,108 Reykjavík, sími 588 2600 Dalsbraut 1, 603 Akureyri, sími 461 H F 4007 ‘Meðan birgðir endast Rít um æðarfugl og æðarvarp í nær fjögur ár hefur verið unnið að gerð bókar um æðar- fugl og æðarrækt á íslandi. Nú er þessi bók væntanleg á markaðinn innan fárra daga frá bókaútgáfunni Máli og Mynd ehf. Æðarræktarfélag Islands ákvað skömmu fyrir þrítugsafmæli sitt, sem var 1999, að efna til rits sem helgað yrði æðarfuglinum og æðarræktinni í landinu. Æðarræktarfélagið hefur síðan staðið straum af ritun bókarinnar, öflun mynda og annars sem til þurfti. Til þessa hefur það notið góðra styrkja frá ýmsum aðilum. Mestu munar í því efni um að Jónas Jónsson frv. búnaðar- málastjóri, sem fenginn var til að ritstýra verkinu, hefur með góð- fúslegu leyfi stjómenda Bænda- samtakanna haft alla aðstöðu hér og notið allrar fyrirgreiðslu, m.a. tölvuskráningu handrita, allt ÆÍ að kostnaðarlausu. Hann hefur og átt mikið samstarf við Áma Snæ- bjömsson hlunnindaráðunaut og notið ráða hans og aðstoðar í fjöl- mörgum efnum. Frá upphafi var það ætlun ÆÍ að láta taka saman alþýðlegt fræði- rit um allt er varðar æðarfúglinn og æðarræktina bæði frá náttúm- fræðilegu og sögulegu sjónarmiði. Fugla- og dýrafræðingamir Ævar Petersen og Karl Skímisson vom fengnir til að skrifa ítarlegar greinar um æðarfuglinn sem tegund og þá sjúkdóma, og skaðvalda sem liann hrjá. Valdi- mar H. Gíslason sagnfræðingur á Mýrum skrifar um dúnhreinsun og dúnverslun frá fyrri tímum til nútímans. Ámi Snæbjömsson gerir grein fyrir hirðingu æðarvarps og ræktun æðamnga og því hvemig víða hefúr tekist að kveikja nýtt varp með ýmsum aðgerðum. Þessir kaflar m.a. gera bókina að mjög gagnlegu fræðslu- og leiðbeiningariti fyrir alla sem sinna æðarvarpi og sérstaklega þá sem hyggjast koma upp varpi á nýjum stöðum. Mikið má einnig læra af frásögnum fólks sem lýsir minn- ingum og reynslu sinni af þátttöku í varphirðu. Níu manns hvaðanæva af landinu skrifa slíka þætti undir heitinu Dagur í æðarvarpi. Þar er lýst eldri sem yngri starfsháttum og kemur fram hve breytilegir þeir gátu verið eftir stöðum og tíma. Enn er þá ótalið að rakin er saga Iöggjafar varðandi æðarfugl frá þjóðveldislögum til nútímans. Saga ÆÍ og saga leiðbeininga í æðarrækt er rakin. Mörgum mun og þykja forvitnileg saga tveggja æðarræktarfélaga sem störfúðu undir lok 19. aldar, Æðarræktar- félagsins á Breiðafirði og annars við Strandaflóa sem af mörgum var kallað Vargafélagið sökum vasklegrar framgöngu sinnar við að vinna á þeim vörgum sem menn einkum töldu að stæðu æðar- fuglinum fyrir þrifúm. Þar á meðal var öminn, en sumir telja að ama- stofninn hér á landi hafi ekki síðan borið sitt barr, m.a. vegna aðgerða félagsins. Annað félag, Æðar- ræktarfélag Sléttunga starfaði um sama leyti, en með nokkuð öðrum hætti. Síðasti kafli bókarinnar og sá lengsti er skrá um varpjarðir á Islandi. Þar em taldar allar jarðir sem vitað er að hafi haft nokkur hlunnindi af æðarvarpi, fyrr og síðar. Lýst er staðháttum jarðar og varps og sögu varps eftir því sem heimildir leyfa. Alls em þar taldar nokkuð á sjötta hundrað jarðir. Bókin er hin veglegasta að allri gerð, um 540 síður í stóm broti og með rúmlega 500 ljósmyndum og teikningum. Eigendur Máls og Myndar, þeir Steingrímur Steinþórsson og Ivar Gissurarson hafa sýnt mikinn metnað og ekkert til sparað svo bókin yrði hin vandaðasta.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.