Bændablaðið - 13.11.2001, Side 17
Þriðjudagur 13. nóvember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
17
Árétting
Eftir bændafund í Þingborg
1. nóventber, óskaði Magnús
Hlynur, fféttamaður, eftir því að
taka við mig viðtal. Ég varð við
því og hluti af viðtalinu birtist
síðan í ríkissjónvarpinu fáuin
dögum síðar. Viðtalið var mikið
klippt og þar sem ég svara
spumingunni
um hugsanleg
áhrif af notkun
erfðaefnis úr
NRF-kyninu á
verðlag á
mjólkurvörum
hér á landi,
birtist
staðhæfing
fréttamanns
þess efnis að
„mjólkurverð lækki um leið og
norskar kýr komi til landsins".
Þetta er hans fullyrðing en ekki
mín orð, því eins og allir vita þá
er ekki áformað að flytja
norskar kýr til landsins, heldur
fósturvísa til Hríseyjar til að
geta gert samanburðartilraun
með íslenska kynið, NRF-kynið
og blendinga.
í viðtalinu sagði ég að þessi
lækkun verður því aðeins að
væntingar um áhrif af notkun að
tilraun lokinni gangi eftir.
Einnig að næstu 10 til 12 ár
mun þessi tilraunainnflutningur
engu breyta, því notkun
erfðaefnisins verður þann tíma
bundin við tilraunastöðvamar.
Þessi hluti viðtalsins birtist
ekki í sjónvarpinu.
Egill Sigurðsson,
stjórnarmaður í
Landssambandi kúabœnda
Dagurinn 15. október hefur
verið helgaður konum í dreifbýli
af Landbúnaðar- og matvæla-
stofnun samaeinuðu þjóðanna,
FAO, og Alþjóðasamtökum
búvöruframleiðenda, IFAP.
Hugmyndinni var líklega hreyft
fyrst á kvennaráðsefnunni sem
haldin var í Peking árið 1995.
Álfhiidur Ólafsdóttir kynnti
Alþjóðadag kvenna í dreifbýli
fyrir íslenskum konum með
grein í Bændablaðinu, líklega
haustið 1997.
Hugmyndin að hátíð kvenna í
dreifbýli hefur fallið í góðan
jarðveg á hinum Norðurlöndunum,
til dæmis í Finnlandi. Þar tóku
konur strax við sér og árið 1999
hafði Dagur dreifbýliskvenna fest
sig í sessi og konur héldu hátíð
með ýmsum hætti víða um land.
Alla síðustu öld hafa konur
fúndið að til að fá einhveiju fram-
gengt hafa þær þurft að standa
saman. Engin ástæða er til að
halda að það hafi nokkuð breyst.
Það er því engin tilviljun að
hugmyndin um sérstakan hátíðis-
dag dreifbýliskvenna kveikti vonir
í kvenmannsbrjósti á íslandi nú um
aldamót. Dreifbýlið á stöðugt í vök
að verjast. Þrátt fyrir að
atvinnuhættir breytist og fjöl-
breytni aukist sums staðar á lands-
byggðinni, verða önnur byggðarlög
eftir og samdráttur blasir við.
Hvemig sem aðstæður em til
sveita, höfúm við dreifbýliskonur
fúll not fyrir 15. október.
í fjölmennari byggðarlögum
verður hlutur landbúnaðar sífellt
minni, bændum fækkar og
samfélagið breytist. Meirihluti
íbúanna lítur ef til vill ekki á sig
sem sveitafólk og þarfir þeirra em
að mörgu leyti aðrar en þeirra sem
landbúnað stunda. Ibúar fjölbreytts
samfélags þurfa þó að koma sér
saman um framtíð byggðarinnar ef
Skágrindur
VÉLAVAL-Varmahliö w
Sími 453 8888 Fax 453 8828
Veffang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is
hún á að standast margvíslega
samkeppni við þéttbýlið.
í jaðarbyggðunum skiptir hver
kona svo miklu máli. Þar sem
engar konur em á samfélagið ekki
núkla framtíð fyrir sér. I
fámennum sveitum þurfa konur að
vita hver af annarri, kynnast
konum annarra byggðarlaga og
þekkja sitt eigið mikilvægi. Þar
ríður á að sjónarmið kvennanna
verði ekki undir, á því getur
framtíðin oltið.
Afl samfélagsins býr í
konunum, ekki síður en atvinnu-
vegunum og vegakerfmu, eða
hverju því sem telst nauðsynlegt til
að byggð megi fóstra sín böm. Því
fognum við tækifærinu til að fylkja
konum í dreifbýli saman, hvar sem
þær búa og hvaða störf sem þær
stunda.
Sigríður Jónsdóttir,
Gýgjarhólskoti.
“HtBOÍ
mazoa
örfáír Mazda B2500 TD
double cab á frábæru veröi.
Ekki hlka þú gætir orðið af
mögnuðum kaupum.
Rafdrifnar rúður og
útispeglar
Rafhituð framsæti
Samlæsing
Loftpúði í stýri og fyrir
farþega
Hiti í afturrúðu
Sjálfvirkar framdrifslokur
3V'dekk
16"álfelgur
Útvarp og geislaspilari
2.449.000 kr.
Aukabúnadur ó mynd: Brettakantar
l\EWHOLLAI\D
ánvsk. ;
Ný New Holland TL90 4x4 85 hestafla dráttarvél með Atö 940 ámoksturtækjum
Búnaður innifalinn:
Rýksíur í miöstöövarkerfi
• 3ja hraða miðstöð
• Farbegasæti
• Stillanlegt loftpúðaökumannssæti
• Sóllúga
Veltistýri með hæðastillingu
• Þurrkur og rúðusprauta á fram-
og afturrúðu
Greiðsludæmi:
• Kapallúga
• Opnanlegir hliðargluggar
• 3 baksýnisspeglar
• Spegill á drattarkrók
• Lágnefja
• Útblástursrörtil hliðar
og upp með hurðarstaf
Stillanleg frambretti
• Brettabreikkanir á afturhjólum
0 Flotdekk framan stærð 440/65-R24
• Flotdekk aftan stærð 540/65-R34
• 3ja hraða aflúttak
• Snúnings- og hektarmælir
á aflúrtaki
• Yfirstærð af startara 3.5 kw
• Yfirstærð af rafgeymi 135 Ah
• Yfirstærð af alternator 85 amp
• 127 lítra eldsneytistankur
með hlífðarpönnu
• Tvöfalt vökvakerfi með 60
og 35 l/mín vökvaflæði
• 40 km alsamhæfður gírkassi
• Samhæfður vendigír vinstra megin
við ökumann
• Vökva-vagnbremsuventill
• Kúlu-hraðtengi á beislisendum og yfirtengi
• 4 vökvaúttök
• Lyftukrókur og sveiflubeisli
• H lið a rstlátta rstífu m með stiglausri stillingu
• 4 vinnuljós á ökumannshúsi
• Stjórnstöng aftaná vélinni fyrir beisli
• Rafstýrðar vökva-driflæsingar
á öllum hjólum
• Útvarp og segulband
• Dráttarkrókur framan á vél
• Alopnun á vélarhlíf
• 3 staðlar á rafmagnsúttökum
• Ásett tvívirk Alö 940 ámoksturstæki
• Númer og skráning á vél
• Greipartengi á ámoksturstækjum
• 0.53m3 skofla á ámoksturstækjum
• 2ja staðla hraðtengi á ámoksturstækjum
Út á þessa vét er möguleiki á stofnláni á
hagstæðum kjörum allt að kr. 2.2000.000-
Ef þú att góða notaða dráttarvél gæti hún
dugað fyrir eftirstöðvunum.
Viðbótakostnaður fyrír vökvavendigír og vökvamilligír kr. 180.000- án vsk.
___________
Lágmúli 7 • Reykjavík Sími:588 2600 • Akureyri Sími:461 4007 VELAVERf
www.velaver.is