Bændablaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 2
2 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 26. febrúar 2002 Neysluvatn í eyfirskum sveitum Mikill ðhugi meðal bænda aö fð gott vatn Á fundi sem Norðurmjólk efndi til fyrir skömmu var meðal annars rætt um stöðu neyslu- vatnsmála á svæðinu. í umræðunni kom fram mikill áhugi á að bæta neysluvatnið enn frekar, en könnun á gæðum þess hófst fyrir tveimur árum á vegum Búnaðarsambands Eyja- ijarðar, Norðurmjólkur og Heilbrigðis- eftirlits Eyjafjarðar. Þess má geta að Kristján Gunnarsson, mjólkureftir- litsmaður Norðurmjólkur, hefur bændum að kostnaðarlausu tekið vatnssýni hvenær sem þess er óskað og að eigin frumkvæði þar sem grunsemdir hafa vaknað uni ónóg gæði vatns. Rannsóknastofa Norðurmjólkur hefur annast rannsókn sýnanna. Eins og bændum er kunnugt þá fer það oft saman að gerlatala mjólkurinnar sveiflast mjög til hins verra ef vatnsgæði eru misjöfn eða slæm. Þá verður þvottur mjaltakerfa oft ómarkviss þar sem allar kerfisþvotta- vélar skola með köldu vatni eftir sápuþvott. Af þeim sökum verður eftir- mengun eftir þvott vandamál þar sem kaldavatnsgæði eru bágborin með hækkandi eða sveiflandi heildargerlatölu í mjólkinni og fjölgun kuldakærra gerla. Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurmjólkur, sagði að á sínum tíma hefðu bændur sýnt því mikinn áhuga að fá faglega úttekt á vatnsmálum í Eyjafirði. Samstarf Norðurmjólkur og ofangreindra aðila hófst síðan í kjölfar fundarins sem stjórn BSE boðaði um bætta umgengni og ásýnd sveitabæja. „Þaó er Norðurmjólk mikið kappsmál að neysluvatn á svæði fyrirtækisins sé í góðu lagi," sagði framkvæmdastjórinn. Á fundinum sem Helgi nefnir, og haldinn var fyrir röskum tveimur árum, voru þeir Kristján Gunnarson, Ólaf- ur Vagnsson ráðunautur og Alfreð Schiöth, heilbrigðisfulltrúi, beðnir að taka að sér að kanna þessi mál. Ólafur var formaður nefndarinnar. Nefndin útbjó spurningalista, og fengust svör frá 136 bændum. Sé haft í huga að búin voru um 170 er Ijóst að bændur hafa mikinn áhuga á málinu. Nefndarmenn skoðuðu um 30 vatnsból og Óttar Geirsson, ráðunautur Bændasamtaka íslands, mældi fvrir nokkrum tugum nýrra vatnsbóla. „Samstarf BSE og Norðurmjólkur hefur heppnast frábærlega vel," sagði Kristján Gunnarsson sem gat þess að hann og Guðmundur Steindórsson, ráðunautur hefðu í mörg ár lialdið fræðsluerindi um þýðingu góðs neysluvatns á fundum búnaðarfélaga hreppanna. Þá hefði sam- starfið við Alfreð Schiöth verið í alla staði til fyrirmyndar. „Samkvæmt sýnatökum vantar enn nokkuð á að vatnsból bænda séu í fullkomnu lagi en um þcssar mundir eru margir að endurbæta vatnsbólin sín eða að hefja það verk. Þá eru margir búnir að sækja um styrki sem þeim standa til boða í þessu sambandi," sagði Kristján Gunnarsson mjólkureftirlitsmaður. Strangara efíipin meú gaiúuai vaúis í nýlegri reglugerð umhverfis- ráðuneytisins um vatnsgæði, sem er samræmd við tilskipanir ESB, kemur fram að eftirlit, sýnatökur og rannsóknir skuli vera með allri vatnsnotkun á matvælafram- leiðslustöðum. Hver sveitabær með mjólkurframleiðslu fellur undir þessa skilgreiningu. „Nú þarf að skoða hvemig þessar kröfur verða uppfylltar. Mín hugmynd er sú að þegar dýralæknir kemur í árlega fjósa- skoðun þá þurfi bóndinn að geta framvísað vottorði um að vatnið sem notað er við mjólkurfram- leiðsluna sé í lagi," sagði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir í samtali við Bændablaðið. „Að mínu mati væri hagkvæmast fyrir þá bændur sem leggja inn í sama mjólkurbú að sameinast í útboði um þessa vinnu, t.d. undir forystu síns mjólkurbús. Nokkur mjólkurbú hafa þegar látið fara frarn svona könnun á sínu svæði. Að baki hverju vottorði getur legið talsverð vinna. Það þarf að skoða og meta hvert vatnsból og ekki er nóg að taka eitt sýni á ári, a.m.k. ekki til að byrja með. Ástæðan er sú að sýni sem er tekið á besta tíma, t.d. í febrúar, gefur ekki mynd af því hvemig vatnið er í vorleysingum. Sú hætta er fyrir hendi í sumum tilvikum og þarf að koma í veg fyrir slíkt," sagði yfírdýralæknir. Landssamhand kúabœnda opnar heimasíOu um nautakjöt fyrir neytendur Vetrarsól Bbl/Jón Eiriksson Ritstjóri nýju heimasíðunnar er Kristín Linda Jónsdóttir kúa- bóndi í Miðhvammi, sem jafn- framt er stjórnarmaður í Lands- sambandinu. En hvers vegna sérstaka heimasíðu um nauta- kjöt? „Það er alveg ljóst að helsta tekjulind og ffamleiðsluvara ís- lenskra kúabænda er mjólk. Við erum svo lánsöm að íslenskir neytendur kunna vel að meta mjólkurvörur og neysla á mjólk, og þá sérstaklega þeim vörum sem innihalda mikið prótein, hefur aukist jafnt og þétt. Hin megin- afurð kúabænda er nauta- og nautgripakjöt, en þar höfum við sannarlega átt á brattann að sækja síðustu ár hvað varóar samspil eftirspumar og framboðs á kjöti, vöruþróun, tengsl við neytendur og möguleika framleiðenda á að fá viðunandi verð fyrir afurðina," sagði Kristín Linda. Hún sagði að heimasíðan sem var opnuð á Valentínusardag, í tengslum við markaðsátak i sam- vinnu við Bylgjuna og Grillið á Hótel Sögu, sé í raun hugsuð sem gmnnur að frekari markaðssókn, aukinni tengingu við neytendur, veitingahús, verslanir, kjötvinnslu og aðra samstarfsaðila. „En markmið númer eitt er að að nýta kjot.is til að gefa neytendum tækifæri til að nálgast almennan fróðleik urn nauta-, og nautgripakjöt, matreiðsluaðferðir og meðferð. Annar burðarásinn í heimasíðunni nefnist einmitt Ráð undir rifí og inniheldur almennar ráóleggingar og hinn Kjöthlaðan, en hún inniheldur á aðgengilegan hátt fjölbreyttar uppskriftir sent koma bæöi ffá bestu veitingastöðum landsins, neytendum og naut- gripabændum sjálfúm. Svo er bara að sjá hvemig til tekst, að sjálfsögðu er síðan ekki komin í endanlega útgáfu því það verður hún aldrei, við höfum aðeins sent frá okkur fyrsta tölublaðið af mörgum og stefnum að því að ný og ný tölublöð birtist á skjánum framvegis og síðan verði lifandi og skemmtileg. Viðbrögð hafa farið fram úr björtustu vonum en nú þegar hafa tæplega tvöþúsund manns gerst áskrifendur að kjot.is," sagði Kristín Linda. Eins og áður sagði sér Kristín Linda Jónsdóttir kúabóndi í Miðhvammi um síðuna en fag- legur ráðgjafi kjot.is er Guð- mundur Karl Tryggvason frá Mýri, kokkur á Bautanum á Akureyri og tölvuvinnslu annast Nepal í Borgamesi. Bændablaðið kemur næst út 12. mars Krossgátu- verOlaun Fjölmargar réttar lausnir bárust biaðinu við krossgátunni Í 2. tölublaði. Svarið var „Blessuð sértu sveitin mín." Dregið hefur verið úr réttum lausnum og hlaut Kristbjörg Kristjánsdóttir á Breiðu- mörk í Jökulsárhlíð aðalverð- launin, bókina íslenski hcsturinn, litaafbrigði eftir Stefán Aðal- steinsson og Friðþjóf Þorkelsson. Guðmundur Valur Gunnarsson, Lindabrekku, Djúpavogi, hlaut aukaverðlaunin, bókina Rit Björns Halldórssonar I Sauðlauksdal. lÉnam loðtlj/paliæmla skulðbrei/B Fyrir skömmu efndu loðdýrabændur til sýningar á skinnum á Hótel íslandi. Þátttaka var óvenju góð en tæplega 30 bú tóku þátt í sýningunni. Það var samdóma álit manna að gæði framleiðslunnar væru betri en nokkru sinni. Horfur í loðdýrarækt eru góðar og vel hefur gengið að selja loðskinn á sölutímabilinu sem hefst í desember og lýkur í september. Rösklega 100 gestir komu á sýninguna. Sérstaka hátíðarræðu flutti Guðni Ágústssson, landbúnaðar- ráðherra og kom m. a. fram í máli hans að það mundi takast að skuldbreyta lánum hjá þeim bændum sem verst fóru út úr lágu verði og miklum fjármagnskostnaöi á síðasta áratug. Veitt voru verölaun fyrir bestan árangur í hinum ýmsu litarafbrigðum í ref og mink. Eggert feldskeri var með sýningu á loðfeldum og voru viðstaddir afar hrifnir af verkum feldskerans. Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaöi. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 4.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.000. Síml: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaðamaður: Sigurdór Sigurdórsson Netfang blaðslns er bbl@bondi.is Prentun: Isafoldarprentsmiðja Nr. 149 Blaðinu er dreift í 6.400 eintökum. Dreifing: íslandspóstur. ISSN 1025-5621

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.