Bændablaðið - 26.02.2002, Page 8

Bændablaðið - 26.02.2002, Page 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 26. febrúar 2002 GaÉBtýring í sauOQárrækt gagnrýnd Hópur sauðfjárbœnda á Suðurlandi heldur uppi andófi gegn gœðastýringu í sauðfiárrœkt og kom Ketill Gíslason, bóndi í Meiri-Tungu í Holtum í Rangárvallasýslu, fram í sjónvarpi fyrir þeirra hönd á dögunum og lagðist fast gegn gæðastýringunni. Það sem honum þótti helst að varðandi hana er að landnýtingarþátturinn liggi ekki fyrir og að alltof mikið skrifræði fylgi henni. r Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Islands, segir nauðsynlegt að fara yfir forsögu gœðastýringarmáIsins þegar gagnrýni á borð við þessa kemur fram. Tók langan tíma „Ég vil minna á að samningagerðin varðandi gæðastýringuna tók langan tírna og það var ekki auðvelt að ná samkomulagi vió ríkisvaldið um aukna fjármuni til sauðfjárræktar. Það korn strax fram hjá ríkisvaldinu að forsendan fyrir auknum fjármunum til sauðfjárræktarinnar væri að einhver framþróun ætti sér stað varðandi atvinnuhætti og hugsunarhátt i greininni. Við veltum vöngum yfir þessu á allmörgum fundum og völdum síðan leið gæðastýringar. Við völdum hana vegna þess að hún er að ryðja sér til rúms, bæði í atvinnurekstri í þjóðfélaginu hér á landi og í löndunum í kringum okkur, sem tæki til þess að fá menn til að vinna betur úr því sem þeir hafa. Einnig til að ná betri árangri í rekstri og þar með auka tekjumar og um leið að vera með öruggari vöru," segir Ari. Hann segir að það gæðastýringarkerfi sem valið var sé þróað í Noregi og hafi verið þar í notkun í hartnær fímm ár. Um sé að ræða íslenska útfærslu á norska gæðastýringarkerfinu, sem orðin er góð sátt um þar i landi. 777 styrktar á tnarkaði „Vió vitum að það er mikil harka á íslenskum kjötmarkaði. Þess vegna er það mikilvægt fyrir landbúnaöinn, og ekki síst sauðfjárræktina, að geta sýnt fram á hvernig framleiósluferilinn er. Við stefnum að þvi að gæðastýringin verði til að styrkja dilkakjötið á markaði á næstu árum þegar kerfið verður komið í framkvæmd. Það er því ekkert óeðlilegt við það að eitthvað af þeim fjármunum sent ríkisvaldið setur í stuðning við sauðfjárræktina, sé tengt því að í gangi séu framfarir og ekki sjálfgefið að greiða eftir sama kerfi og um var samið 1995. Sá samningur var til ákveðins tíma og þessi samningur raunar líka. Það er mikill misskilningur þegar talað er um að með því að leggja áherslu á gæðastýringuna sé verið að taka frá þeim sem ekki eru með í henni. Staðreyndin er sú að ef gæðastýringin, eða önnur sambærileg aðferðarfræði við að þróa greinina, hefði ekki komið til þá hefðu fjármunir í samningnum orðið minni." Ari segir að sér komi í sjálfu sér ekki á óvart sú andstaða gegn gæðastýringunni, sem nú er uppi á Suðurlandi, því að nánast þriðji hver sauðfjárbóndi á landinu greiddi atkvæði gegn samningnum í almennri atkvæðagreiðslu á sínum tíma. Landnýtingarþátturinn Sunnlendingar segja í andófi sínu gegn gæðastýringunni að ekki sé búið að ganga frá landnýtingarþættinum í samkomulaginu. Ari var spurður um þessa gagnrýni. „Við bændur höfum verið skammaðir fyrir landnýtingu í tengslum við sauðfjár- rækt í áratugi. Okkur var legið á hálsi fyrir að ekkert tiliit skyldi tekið til landnýtingar í samningnum 1995. Ég er viss um að þetta hafói neikvæð áhrif á markaðsstöðu kinda- kjötsins. Við urðum sammála unt þaö í samninganefndinni nú að eðlilegt væri að þeir sem í raun væru að spilla landi fengju ekki sama stuðning til frantleiðslu sinnar og hinir sent ekki spilla landi. Það var því gert í góðu samkomulagi að taka landnýtingar- þáttinn inn í samninginn. Þá var reynt að hafa í huga, og var skjalfest í vilja- yfirlýsingu með samningnum, og raunar að hluta í samningnum sjálfum lika, að þeir bændur sem hafa beit fyrir sitt búfé án þess að spilla landi komist inn í gæðastýringuna. Við höfum haldið því fram undanfarin ár að sárafáir bændur séu í raun að spilla landi. Það er til að mynda fram komið að meirihluti afrétta Sunnlendinga cr í framför. Við höfum frá því að samningurinn var gerður verið að vinna að útfærslu á mati á landi og mati á úrbótum. Ég trúi því að langflestir sunnlenskir sauðfjárbændur fái annað hvort viðurkennt að þeir séu með næga beit ellegar að samkomulag verði um það hvemig hægt er að bæta land þeirra og skipuleggja beit þannig að hún verði í góðu lagi. Þess vegna tel ég að þegar upp verður staðið verði mjög fáir bændur á Suðurlandi sem fái ekki vottun landnýtingarinnar vegna." Skrifrœði í gœðastýringu Sunnlenskir bændur benda líka á í sinni gagnrýni að mikil bókhaldsvinna fylgi gæðastýringunni. „Það er rétt að það er þónokkur skráning í gæðastýringu, enda byggist hún á því að menn skrái niður það sem þeir em að gera. Bæði er það til að geta sýnt fram á fram- leiðsluferilinn og líka til að geta lært af því á næsta ári. í yfirferð á gæðahandbókinni sem kynnt var á síðasta ári hefur verið ákveðið að draga ofurlítið úr skráningu og gera hana eins einfalda og mögulegt er þannig að hún á ekki að vera ofviða nokkrum manni og hún tekur ekki marga klukkutíma á ári. Þar fyrir utan fer nokkur tími í að rnerkja og halda bókhald um sauðfé. Hluti af trúverðugleika í búvöm- framleiðslu er skynsamleg notkun lyfja. Lyfjagjöf verður ekki skráð og sannreynd nema menn geti skráð hana á einstaka gripi og þá verða þeir að vera merktir. Þess vegna er útilokað að komast hjá því í framtíðinni að bændur merki sitt fé." Ari segist von að landbúnaðarráðuneytið, Alþingi og bændur í sameiningu fínni lausn á þessu máli sem allir geti unaó við. „Hitt veróa menn að athuga að það tekst aldrei að ná fullri samstöðu urn kjarasamning, alveg sama hvernig hann er, og því hlýtur meirihlutinn að verða að ráða," segir Ari Teitsson. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra: Neytendur vilja hekkja Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra segir í upphafi að þetta sé fyrsti samningur um fram- leiðslu sauðfjárafurða sem gerður hefur verið sem farið hefur í almenna atkvæðagreiðslu meðal sauðfjárbænda. Lýðræðið hafi fengið að ráða því hvort menn samþykktu samninginn eða ekki. Tveir þriðjuhlutar sauðfjárbænda samþykktu samninginn, sem er afgerandi meirihluti. „í raun fylgir þessum sauð- fjársamningi mikil breyting á bú- skapnum. Það er krafa um ræktunar- búskap, ákveöin skilyrði og allt hefur þetta mikil áhrif til að skapa samstöðu. Við þekkjum það að neytendur hér á landi, og ekki síður annars staðar í veröldinni, spyrja eftir vörum sem þeir geta treyst. Neytendur vilja góða vöru þar sem framleiðsluferillinn er þekktur. Vottaðar vörur, hvort sem þær eru lífrænar eða vistvænar, ná allt öðmm árangri á markaðnum og fá rniklu hærra verð en hinar. Gæðastýringarsamningurinn snýst því um að sauðfjárræktin fari inn á nýtt skeið framfara." Guðni segir þaó rnjög eðlilegt að fram komi gagnrýni frá þeim hluta sauðfjárbænda sem ekki samþykktu, enda hræðist menn oft hið óþekkta. Hins vegar er hann sannfærður um að samningurinn skipti sköpum fyrir sauðfjár- ræktina bæði hvað varðar fjármagn og nýja möguleika. Gagnrýnin „Nú gagnrýna menn tvö eða þrjú atriði samningsins sem ég vil gjaman fara yfir. Ég hef rætt við bændur í Norður-Þingeyjarsýslu sem em að fást við að þróa skrif- finnskuna, sem kölluð er. Bændur em almennt vel gefnir menn sem kunna með skýrsluhald að fara. Þeir bændur sem ég hef rætt þar við segja mér að þetta sé ekki erfítt verk. Þeir benda á að menn verði að gera sér grein fyrir því hvað rnenn þurfi að gera og hvað menn geta gert. Á þessu segja þeir að sé mikill munur. Það sem menn þurfa að gera sé létt verk en benda á að ekkert sé betri kaupauki fyrir sauðfjárbændur en að taka þátt i skýrsluhaldi. Merkja æmar sínar og vita hvað þær heita, rnerkja lömbin og fylgjast með þeim og vita hvað hver ær gefur af sér. Þá verða bændur að halda utan um alla efnanotkun. Þar vega þyngst áburður og lyf. Neytendur morgun- dagsins vilja fá þessar upplýsingar. Þess vegna verður þelta allt að vera inni, segir Guðni." Hann segir eðlilegt að þeim, sem aldrei hafa merkt æmar sínar eða lömbin að vori, vaxi verkefnið í augum. Það sé hins vegar ljóst að þeir sem ætla að vera með í gæða- stýringunni verði að fara í þessi verk. Guðni segir að það hafi komið í ljós við rannsókn að þeir sauðfjárbændur sem hafa stundað skýrsluhaldi fá einu kílói meira í meðalvigt á lamb heldur en þeir sem ekki hafa fylgst með í gegnum skýrsluhald. Þeir hafí líka fengið að meðaltali hálfu lambi meira á hverja á. „Þessa þróun viljum við sjá almennt hjá sauðQárbændum. Áð þeir nái meiri arði af sinum búum en verið hefúr. Menn verða því að taka þátt í skýrsluhaldinu ef þeir vilja vera með í gæða- stýringunni, jafnvel þótt það vaxi þeim i augum." Hvati til framþróunar Guðni segir að þegar gæða- stýringin byrjar að virka árið 2003 fái þeir bændur sem eru með í og standast gæðastýringuna viðbótar- greiðslur. Sumum þyki þetta órétt- látt og segi peninga færða frá einum bónda til annars. Þaö sé hins vegar alrangt því þessir peningar væru ekki þarna nenta vegna gæðastýringarinnar. Það er ekkert fært á milli heldur er þetta greiðsla til þeirra sem taka þátt í gæðastýrðu framleiðsluferli. Þetta geti orðið til þess að sá sent er með í gæðastýringunni til enda samningsins fái um 20% meira en sá sem ekki er með. Því megi hins vegar ekki gleyma að hann leggi á sig meiri vinnu eins og fyrr er nefnt. Guðni segir að þetta sé ekki ólíkt því bónuskerfi sem gildir í fiskvinnslu. I gæðastýringar- samningnum eru ákvæði um að bændum bjóðist að fara á nám- skeið og það muni skila þeint meiri tekjum. Og hann bendir líka á að þær auknu tekjur sem menn eru að fá fyrir að taka þátt í gæða- stýringunni hefðu aldrei komið inn i samninginn ef hún hefði ekki verið í honum. Greiðslumarkið „Viðskipti bænda með greiðslumark komu inn á lokastigum samningsins og eru þannig að þegar 45 þúsund ærgildi hafa verið keypt upp byijar frelsi með greiðslumark. Enn vantar 1500 ærgildi til þess að þetta ákvæði taki gildi en ég veit að það gerist um næstu áramót. Eitt atriði sem hefúr komið mér nokkuð á óvart er andstaða við þá yfirlýsingu ríkis- stjómarinnar að verja peningum sem nemur 7.500 ærgildum til þeirra svæða á landinu sem eiga sér litla aðra atvinnumöguleika en sauðfjárrækt. Þetta snýr ekki beint að sauðljársamningnum en er byggðastyrkur sem ríkisvaldið hefur ákveðið að veita inn á ákveðin sauðQárræktarsvæði. Þetta eru fyrst og fremst peningar til fólks, sem býr við takmarkaða möguleika. Þetta verður ekki söluvara heldur byggðastuðningur." Landnýtingarþátturinn Guðni segir að ekkert sé jafn mikilvægt í dag og að ná sátt um landnot. Hann segir það skipta mál fyrir innanlandsmarkað og miklu máli ef fótfesta næst með lamba- kjöt á erlendum mörkuðum, að lambið korni af landi sem sé í jafnvægi eða framför og hægt sé að sýna frani á að ekki sé verið að níðast á landi. Hann fullyrðir að bændur almennt vilji fara vel með landið, hvort heldur eru heimalönd eða afrétti. „Þess vegna var það mikilvægt í sambandi við sauðfjársamninginn að sátt næðist um landnýtinguna. Á síðustu árum hefur Landgræösla ríkisins lagt mikið upp úr því að vinna með bændum og fela þeim framkvæmdarverkefni. Bændur eru 550 í átaksverkefninu Bændur græða landið. Sumir gagnrýna Nytjaland hjá RALA. Það tel ég vera rangt því Nytjaland er bara upplýsingabanki sem segir fólki til um hvemig landið er. Þar er bara um staðreyndir að ræða. Ég tel nauðsynlegt að þeir sem afréttina nýta fari í samstarf við Land- græðsluna um mörg atriði. Það getur verið um hvenær fé fer á afrétt, hvenær það er tekið af af- réttinum. Það getur verið um ákveðin svæði að ræða sem nauð- synlegt er að girða af eða loka. í þessu eru langar aðgerðaráætlanir sem menn geta tekið þátt í. Mér sýnist því að menn þurfi ekkert að kvíða samstarfi við Land- græðsluna um þessi atriði. Það getur vel verið að einhver afréttur verði ekki nýttur um alla framtíð en það hefði líka orðið þannig hvort sem samningurinn hefði verið gerður eða ekki. Aðalatriðið er að tengja starfið á milli bændanna og Landgræðslunnar sterkum böndum og inn í það sé tengt að bændur fái vottun um landnotin, skýrsluhaldið og annað sem skiptir máli. Þetta á ekki að vera flókið og ég vil hafa það sem einfaldast og að innra eftirlitið verði sem mest. Það þýðir ekkert fyrir ntenn að segja nú til dags að þeir vilji hafa skýrsluhald fyrir sig, það komi engum öðrum við. Neytendur heimsins spyrja eftir framleiðsluferli vörunnar og munu í framtíðinni velja vönt frá bændum sem eru með í þróun eins og þeirri sem hér er byrjuð," segir Guðni Ágústsson.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.