Bændablaðið - 25.06.2002, Síða 9
Átaksverkefnið Fegurri sveitir er á
vegum landbúnaðarráðuneytisins í um-
boði ríkisstjórnarinnar. Það er fólgið í
því að hvetja til, auðvelda og skipuleggja
alhliða tiltekt í sveitum landsins.
Starfsmenn verkefnisins aðstoða heima-
menn eftir mætti, við að koma auga á
það sem má betur fara, finna lausnir og
miðla upplýsingum.
Einnig viljum við vekja athygli á öllum
þeim góðu verkum sem verið er að vinna
um allt land og miða að bættri ásýnd
landsins. Við hvetjum öll sveitarfélög til
að farga brotajárni og spilliefnum á
viðeigandi hátt.
Hvernig er ástandið í þinni sveit?
Hjálpumst að og komum hlutunum í lag!
Öllum sem láta sig þessi mál varða er
velkomið að vera með, því fleiri, þeim
mun fegurri sveitir! Er þitt sveitarfélag,
félag eða fyrirtæki með? Enn er hægt
að skrá þátttöku.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Fegurri sveita:
www.simnet.is/umhverfi
Ragnhildur Sigurðardóttir verkefnisstjóri
netfang: ragnhildur.umhverfi@simnet.is
sími 435 6695 / NMT: 851 1646 / GSM: 848 2339
Ölína Gunnlaugsdóttir
netfang: akrar@simnet.is
sími 435 6751 / NMT: 898 7152
Kortið sýnir þau sveitarfélög
sem taka þátt í verkefninu:
• Allir bændur hafa verið heimsóttir
• Samband við tengilið
• Fundir og/eða heimsóknir til einhvers
hóps bænda
• Heimsóknir á alla bæi fyrirhugaðar í sumar
Málmendurvinnsla
Spiluefnanefnd
Fura ehf., málmendurvinnsla hefur verið
starfandi í um 9 ár og er umsvifamesta
fyrirtækið á sínu sviði hérlendis.
Starfsemin felst í því að taka við
brotajárni, hvaðan sem er af landinu,
flokka það, fullvinna og senda úr landi
til endurvinnslu.
Með einu símtali við Furu er unnt að
koma varanlegu skipulagi á hreinsun
brotajárns í þéttbýli sem dreifbýli, hvar
sem er á landinu.
Fura hefur yfir að ráða sérhæfðum
tækjum til flutnings og vinnslu
brotamálma og ef um sérstök
átaksverkefni við hreinsun á ákveðnum
svæðum eða einstökum brota-járnshaug
er að ræða er hægt að fá senda
færanlega pressu hvert á land sem er.
Allir gámar eru fluttir burt jafnskjótt og
þeir fyllast.
Ávinningur landsmanna er augljós:
Endur-nýting, landhreinsun og
umhverfisvernd.
Fura ehf., málmendurvinnsla
Hringhellu 3
220 Hafnarfjörður
sími: 565 3557 / fax: 565 3526
netfang: fura@simnet.is
Allir geta skilað spilliefnum sér að
kostnaðarlausu á söfnunarstöð síns
sveitarfélags.
Spilliefni sem hér um ræðir og algengust
eru: olía (smurolía, glussavökvi o.fl.),
rafgeymar, rafhlöður (með kvikasilfri og
NiCad, þ.m.t. hnapparafhlöður), olíu-
málning og leysiefni (svo sem þynnar
og terpentína). Enn fremur skordýra-
eitur, framköllunarvökvar, hreinsiefni
fyrir efnalaugar og skinnaiðnað o.fl.
Spilliefnagjald er lagt á vörur sem verða
að spilliefnum, skv. lögum um spilli-
efnagjald sem voru samþykkt á Alþingi
árið 1996. Með greiðslu spilliefnagjalds,
sem er hluti af vöruverði, hefur spilli-
efnahafi öðlast rétt til að skila spilliefnum
sér að kostnaðarlausu. Gjaldinu er varið
til greiðslu kostnaðar við förgun spilliefna
en einnig vegna kostnaðar sveitarfélaga
af söfnunarstöðvum og flutningi
spilliefna til móttökustöðva sem sjá um
förgunina.
Spilliefnanefnd
Bíldshöfða 16 110 Reykjavík
sími 550 4670/fax 550 4610
netfang: spilliefnanefnd @ver.is
VIÐ AÐSTOÐUM ÞIG I ENDURVINNSLU
BROTAJÁRNS OG MÁLMA
Hjá Hringrás hafa aðferðir og tæki til
söfnunar, vinnslu og útflutnings brota-
málma þróast mjög mikið í gegnum árin
enda hefur fyrirtækið flutt út nær
500.000 tonn af brotajárni. Við erum
nú búnir hagkvæmum og góðum tækja-
kosti sem er sniðinn að því að veita
viðskiptavinum okkar úrvals þjónustu
s.s:
■ Færanlegri og hraðvirkri brotajárnspressu
■ Ný og öflug pressa í Sundahöfn
• Stórvirkar klippur
■ Öruggar beltagröfur, grabbar og seglar
■ Stórir og hagkvæmir vagnar og vörubílar
• Lipur málmabíll
• Stórir og smáir gámar og gámabílar
Hringrás hefur ekki eingöngu safnað
brotamálmum á höfuðborgarsvæðinu.
Safnað hefur verið brotajárni og málmum
um allt land og flutt beint á erlendan
markað eða á athafnasvæðið í Sunda-
höfn til fullvinnslu fyrir útflutning.l þessu
starfi er Hringrás með samstarfsaðila
vítt og breitt um landið. Færanleg brota-
járnspressa gerir okkur mögulegt að
vinna efnið á staðnum og því verða
flutningar hráefnisins mun hagkvæmari.
Á Akureyri hefur Hringrás einnig vinnslu-
svæði með tækjum til að klippa og
pressa málma í samvinnu við Sorp-
eyðingu Eyjafjarðarsvæðisins og á fleiri
stöðum á landinu.
HRINGRÁS HF.
ENDURViNNSLA