Bændablaðið - 01.10.2002, Síða 18
4
18
BÆNDABLAÐIÐ
á
u
»
■>
+■
l
)
\
■
I
I
»
{
b
í
Svipmyndir úr Hrntatungurútt
Um áraraðir hafa húnvetnskir bændur réttað í Hrútatungurétt og munu án efa gera það enn um ókomin ár þar sem
nú er búið að smíða nýja rétt, en sú gamla var grautfúin og handónýt að sögn heimamanna. Nýja réttin er á sama
stað og sú gamla og aðeins stœrri, auk þess sem í henni eru tveir gangar svo fólk á auðvelt með að komast í
almenninginn. Laugardaginn 7. september var réttað í Hrútatungurétt og komu þá um 4000 kindur í hana. Ekki er
vitað umfjölda tvífætlinga en svo mikið er víst að þeir voru ansi margir. Skilarétt verður 6. október. Nýja réttin
kostaði um þrjár milljónir króna. Sveitarfélagið greiðir 40% kostnaðar en afganginn greiðir fjallskiladeildin.
Fv. Þórarinn Þorvaldsson á Þóroddsstöðum, Eyjólfur Gunnarsson á Bálkastöðum II, Árni J. Eyþórsson
á Bálkastöðum I, Þorkell Zakaríasson á Brandagili og Skúli Einarsson á Tannstaðabakka tóku lagið fyrir
rétta rgesti.
Gunnar V. Sig-
urðsson, fyrrv.
kaupfélags-
stjóri á
Hvammstanga.
Þórður
Magnússon
fyrrverandi bóndi á
Staðarflöt - og nú-
verandi sölumaður
hjá SS horfir
athugulum augum
yfir safnið.
Brynjólfur
Sveinbergsson
fyrrv. mjólkur-
bússtjóri á
Hvammstanga.
Jón Kristján Sæmundsson úr
Borgarnesi var að hugsa um
réttardaginn.
F.v. Sigurlaug Árnadóttir á Bálkastöðum I, Sigrún E. Sigurjónsdóttir í
Hrútatungu, Hafdís Þorsteinsdóttir á Hvalshöfða, Pálína F. Skúladóttir
á Laugabakka og Guðbjörg Kristinsdóttir í Brautarholti sáu um
kafflveltingar.
Sólveig S.
Sæmundsdóttir í
fangi móðursinnar,
Kristínar
Kristjánsdóttur úr
Borgarnesi.
F.v. Hannes Lárusson á Óspaksstöðum og Ásgeir Sverrisson, í
Brautarholti.
Bændablaðsmyndir/ST
Þorvaldur Böðvarsson frá
Akurbrekku.
F.v. Sverrir Björnsson f Brautarholti og Guðmundur
V. Magnússon á Efri-Torfustöðum.
F.v. Þórarinn Þorvaldsson frá Þóroddsstöðum og
Kristmann Stefánsson frá Húki.
Þriðjudagur 1. október 2002
cpj£\
[MfDME
Amerísk gæda
framleiðsla
30-450
lítrar
Umbods-
menn um
land allt
RAFVORUR
ARMULI 5 • RVK • SIMI 568 6411
Garðyrkjubændur:
Breyflngar
garfl-
yrkjumanna
Hópur garðyrkjubænda hefur
keypt Sölufélag garðyrkju-
manna ehf. út úr Feng, sem er
blandaður hópur. Georg Ottós-
son garðyrkjubóndi, sem er einn
af þeim sem keypti Sölufélagið,
sagði í samtali við Bændablaðið
að ekki væri búið að ganga
endanlega frá kaupunum. Hins
vegar væri hugmyndin sú að
þeir sem keyptu fyrirtækið gefi
öðrum garðyrkjubændum kost
á að kaupa hluti í Sölufélaginu,
miðað við innlegg þeirra.
Georg segir að með því að
kaupa Sölufélagið séu garðyrkju-
bændur að reyna að koma milli-
liðakostnaði eins neðarlega og
mögulegt er. Sölufélag garðyrkju-
manna lengi stundað innflutning,
en nú verður hann aflagður og
sömuleiðis verður öllum við-
skiptum við minni aðila hætt og
aðrir látnir sjá um hann.
Lœkkun milliliðakostnaðar
Georg var spurður hvort hann
teldi það koma betur út fyrir garð-
yrkjubændur að taka sölumálin
svona í eigin hendur. „Við erum
að vona að sú milliliðaþóknun
sem tekin hefur verið lækki um
40%. Hvort aðrir milliliðir á
leiðinni frá framleiðanda til neyt-
enda hækki þá sínar álögur vitum
við ekki, en munum fylgjast vel
með þeim málum. Við erum að
kaupa Sölufélagið til að forða því
að milliliðimir taki of mikið frá
bóndanum til neytandans. Það
verður okkar aðalverkefni. Við
höfum meðbyr hjá íslenskum
neytendum sem telja íslenskt
grænmeti betra en innflutt. Þessu
munum við sinna sérstaklega
þannig að íslenskt grænmeti verði
vel aðgreint frá því innflutta í
verslunum. Nú er heimilt að flytja
inn tollfrjálst grænmeti og við
erum að glíma við nýtt umhverfi
og þetta er liður í að styrkja okkur
í því," sagði Georg Ottósson.
Bændablaðið kemur
næst út 15. október.