Bændablaðið - 01.10.2002, Side 19
Þriðjudagur 1. október 2002
BÆNDABLAÐIÐ
19
Yfirkjijtmatsmenii á
ferð og flugi í slðturtfð
Miklar annir steðja að kjötmats-
mönnum, og þá ekki síst
yfirkjötmatsmönnum, um þessar
mundir. Stefán Vilhjálmsson
yfirkjötmatsformaður sagði í
samtali við Bændablaðið að
undirbúningur yfirkjötmatsins
að sauðfjárslátrun hafi hafist
með því að haldin voru námskeið
fyrir starfandi kjötmatsmenn á
þremur stöðum á landinu í lok
ágúst og byrjun september.
Rúmlega þrjátíu starfandi kjöt-
matsmenn frá sauðfjárslátur-
húsunum 17 í landinu mættu á
námskeiðin, þar sem farið var
yfir kjötmatsreglur og annað það
sem snýr að starfi kjötmats-
manna. Engar breytingar hafa
átt sér stað á matinu síðan
EUROP-matið var tekið upp
haustið 1998.
Kotna vikulega í sláturhúsin
„Síðan hef ég sem kjötmats-
formaður, ásamt yfirmats-
mönnunum Karli Loftssyni og Óla
Þór Hilmarssyni, verið á ferðinni
og komið í öll sláturhús í landinu í
upphafi sláturtíðar. Eftir það höfum
við komið vikulega í sláturhúsin til
eftirlits með kjötmatinu," sagði
Stefán.
Hann segir að í hverju húsi séu
skoðaðir 40 skrokkar sem mats-
menn húsanna hafa metið. Yfir-
matsmaður metur skrokkana og ber
saman við mat matsmanna húsanna
og skráir frávik, en ákveðin frávik
eru leyfð. Farið er yfir þau með
matsmönnum og þau rædd. Ef
ástæða þykir til er betur fylgst með
mati og mönnum leiðbeint og síðan
gerð önnur úttekt. Kjötmatið er
bara flokkun í holdfyllingar- og
fituflokka og sömuleiðis ber kjöt-
matinu að fylgjast með að snyrting
skrokka sé samkvæmt þeim reglum
sem í gildi eru um kjötmat.
Kjötmatið tekur einnig til mats á
svína- og stórgripakjöti, en nú í
hefðbundinni sláturtíð er aðal-
áherslan á kindakjöt. Stefán segir
að sláturstörfin hafi farið vel af
stað, þar á meðal störf kjötmats-
manna.
„Við Óli Þór Hilmarsson fórum
til Noregs um miðjan september og
heimsóttum þar sláturhús. Þama
var um að ræða samstillingu
evrópskra yfirkjötmatsmatsmanna í
EUROP-matinu á kindakjöti.
Mættir voru yfirmatsmenn ffá
Frakklandi, Englandi, Svíþjóð,
Noregi og íslandi. Um var að ræða
10 manna hóp sem ferðaðist um
Norður-Noreg og heimsótti eitt
sláturhús á dag í eina vinnuviku.
Menn mátu kjöt og báru síðan
saman til að athuga hvort menn
væru á sömu línu. I stórum dráttum
reyndist svo vera og við ís-
lendingamir sáum að við emm að
vinna eftir sömu línu og
kjötmatsmenn annarra landa," sagði
Stefán Vilhjálmsson.
Umslknir um framlög til
vatnsveíta ðrið 2003
Fáðu þér sæti!
Merkilitir - krítar
ilfell
Merkilitir - úði
Dráttarvélasæti
Skeifan 2
Sími: 530 5900
Fax: 530 5911
Netfang: poulsen@poulsen.is
Heimasíða: http://www.poulsen.is
Ullarklippur
7
Hestaklippur
með hleðslu
Kambar og hnífar
Fjár- og
hestaklippur
Ormalyfssprautur
Sogvarnir
'1'
Kálfa- og lambafötur
Allflex fjármerki og
stórgripamerki. Tangir.
Sérpöntum sérmerkingar.
Einnig álmerki
Fóðurker I
Saltsteins-
haldari
Kúabönd
4P rO
<r
Hitalampi
Drykkjartæki og búnaður
Veittur er styrkur til vatns-
veitugerðar, sem nær til
kostnaðar við vatnsupptöku,
þar með talin borun, brunn,
vatnsgeymi og lagnir að
húsvegg á tögbýlum.
Þeir umráðamenn lögbýla,
sem hafa hugsað sér að ráðast í
vatnsveituframkvæmdir á árinu
2003 og telja sig eiga rétt á
framlagi, geta sótt um framlag
fyrir 15. nóvember 2002.
Umsóknareyðublöð fást á
skrifstofum búnaðarsambanda
og Bændasamtaka svo og á
heimasíðu Bændasamtakanna
www.bondi.is á netinu.
Eldri umsóknir falla jafn-
framt úr gildi sama dag og
verður litið svo á að hætt hafi
verið við vatnsveitu, nema ef
umsókn frá fyrra ári verður
endurnýjuð eða úttektarvottorð
frá héraðsráðunauti berst til
Bændasamtakanna fyrir 14.
nóvember 2002.
Hesturinn í gúðum haga í dlfushflll
Föstudaginn 18. október frá
kl. 10:00 til 16:00 standa
Garðyrkjuskólinn og Land-
græðslan sameiginlega að
námskeiðinu „Hesturinn í
góðum haga“, sem fram fer í
Olfushöllinni. Leiðbeinendur
verða þeir Ingimar Sveinsson,
fyrrverandi kennari á
Hvanneyri ásamt þeim Birni
Barkarsyni og Bjarna P.
Maronssyni, sem báðir eru
sérfræðingar Landgræðslunnar.
Á námskeiðinu verður fjallað
um fóðurþarfir og uppeldi
hrossa, nýtingu hrosshaga, mat
á ástandi lands, beitarskipulag
og leiðir til að bæta land. Hluti
námskeiðsins felst í skoðunar-
ferð þar sem áhersla er lögð á
mat á ástandi og meðferð
beitilands.
Námskeiðin eru sérstaklega
ætluð hestaeigendum, búfjár-
eftirlitsmönnum og öðrum
starfsmönnum sveitarfélaga sem
sinna landnýtingarmálum.
Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá endurmenntunarstjóra
Garðyrkjuskólans eða á
heimasíðu skólans,
www.reykir.is.
Nú fljótlega verður auglýst eftir
umsóknum um þróunarverkefni og
jarðabætur á lögbýlum sbr. búnaðarlaga-
samning og reglugerð nr. 322/1999 um
búnaðarmál. Samkvæmt nýlegum
upplýsingum frá Bændasamtökum íslands
um jarðabótaframlag er vert að gefa þessu
gaum því veittir eru styrkir til ýmissa
afmarkaðra viðfangsefna. Sá flokkur sem
snýr beint að aðlögun að lífrænum búskap
nefnist: Lífrœn endurræktun túna og
garðlands og lífræn aðlögun í
gróðurhúsum. Hámarksframlag er 25.000
kr/ha lands og 250 kr/m2 í gróðurhúsi, svo
framarlega að til staðar sé aðlögunar-
samningur við Vottunarstofuna TÍJN.
Vottorð hennar um lífræna endurræktun
verður svo að fylgja úttektinni.
Aðrir liðir eru einnig mjög áhugaverðir
og tengjast betri búskaparháttum, s.s.
Beitarstjómun og landnýting - þar er
hámarksframlag 40.000 kr/bú. Æskilegt er
fyrir þá sem sækja um þennan lið að láta
skrá sig á námskeið er nefnist Betra bú -
Landnýtingaráætlanir sem verða í boði
Endurmenntunardeildar Landbúnaðar-
háskólans. Á námskeiðunum verður lögð
áhersla á að landnotendur vinni sjálfir að
gerð áætlana eftir eigin hugmyndum um
góða landnýtingu.
Bætt aðgengi að landi - Framlag er allt
að 50% af kostnaði en mest 200.000 kr á bú.
og ojðltaan búskap I gegnum
japðabútaframlag
Þeir sem stunda „græna"
ferðaþjónustu eða
móttöku skólanema,
ættu eindregið að
huga að þessum
lið og gera
landið þannig
meira aðlað-
andi og að-
gengilegra.
Verkefnin geta
verið marg-
vísleg, s.s.
merking
gönguleiða,
uppsetning á prílum,
borðum á áningarstöðum
upplýsingaskiltum og
minniháttar göngu-
brúm. Skila þarf
kostnaðar-
reikningum við
úttekt.
Aðbúnaður
búfjár - Þar er
meðal annars
komið að
stuðningi við
gerð skýlis fyrir
útigangshross,
sem víða er enn
ekki til staðar.
Hreinsun skurða - Liður
sem mikilvægt er að hafa í
huga samhliða endurrækt gamalla túna.
Framlög eru allt að 25.000 kr á km en þó
allt að 50.000 kr á hreinsaðan km í stórum
affallsskurðum (>6m breiðir). Nýr liður
kemur að öllum líkindum inn nú í haust sem
er kölkun túna - mikilvægt er að láta taka
jarðvegssýni til að greina sýrustig
ræktunarlandsins til að áætla þörf fyrir
kölkun áður en endurræktun á sér stað.
Mikilvægt er að gera áætlun um
endurrækt túna, eins og gerð er krafa um
innan lífræns búskapar, til að sjá fyrir um
endurræktunarþörf næstu ára. Við gerð
landnýtingaráætlana verður að öllum
líkindum komið inn á nær alla ofangreinda
liði jarðabótaframlaga.
Jarðabótaframlög greiða ekki allan
kostnað við ofangreinda liði en koma til
móts við þann kostnað sem leggst til. Fleiri
þættir eru styrktir en þeir sem að ofan
greinir og því er vert að skoða vel
umsóknareyðublað sem birtist ár hvert um
þetta leyti í Bændablaðinu. Búnaðar-
samböndin veita einnig upplýsingar um
þennan möguleika og til þeirra eiga allar
umsóknir að berast fyrir 1. nóvember ár
hvert.
Stefnum á sjálfbæran búskap og nýtum
þann stuðning sem er í boði.
Ásdís H. Bjarnadóttir
Lífrœnni miðstöð
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri