blaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 20
20 veiði
þriöjudagur, 24. maí 2005 I blaðið
- segir Þröstur Eliiðason
sem var á veiðislóðum á
írlandi. Þeim fjölgar veiði-
mönnunum sem fara út
fyrir landsteinana og renna
fyrirfisk. Rússland, Argent-
ína, Grænland og (rland
eru vinsæl þetta árið.
„Þetta var skemmtilegt en veiðin
hefði mátt vera betri. Við fengum
þó tvo laxa en samt vorum við ekki
að veiða mjög mikið,“ sagði Þröstur
Elliðason sem var að koma úr ánni
Blackwater á Suður-írlandi fyrir fá-
um dögum.
„Þessi á er svipuð að stærð og Laxá
í Aðaldal og það var mest af fiski á
einum stað í henni. Dóttir mín veiddi
maríulaxinn sinn á spún þarna en
fiskurinn var helst að gefa sig á
hann. Laxinn var 10 pund. Það er fal-
legt þarna og veiðin á viku er á milli
30 og 40 laxar en þessa viku sem við
vorum þarna veiddust aðeins 13 lax-
ar. í þessari veiðiá er veitt á fimm
stangir,“ sagði Þröstur að lokum.
„Við konan fórum til Argentínu
fyrr í vetur og það var mjög gaman,“
sagði séra Gunnlaugur Stefánsson í
Heydölum, en þar var hann á veiði-
slóðum eins og fleiri á þessum vetri.
Árni Baldursson var að koma ffá
Rússlandi og þar hefur veiðiskapur-
inn gengið ágætlega og fiskurinn er
vænn.
Blaðið heyrði að veiðimenn ætluðu
að hópast til Grænlands í sumar og
renna fyrir bleikjuna.
Nokkrir hópar hafa bókað sig,
enda nóg af bleikju þar og er hún vel
væn.
Lax-á hefur heldur betur breytt
síðunni sinni en Árni Baldursson
og fleiri hafa séð um þá breytingu.
Mikið fjör er víða á netinu eins og hjá
eftirtöldum: Stangveiðifélag Reykja-
víkur, Agnið, Strengir, Veiðimenn
og Vötn og veiði, sem Guðmundur
Guðjónsson, fyrrum blaðamaður á
Morgunblaðinu, skrifar inn á. Verður
fjör að fylgjast með þessum vefjum
f sumar.
Það styttist í að laxveiðin hefjist en
næsta þriðjudaginn verða opnaðar í
Borgarfirði Norðurá og Straumarnir,
fyrstar laxveiðiáa. Stjórn Stangveiði-
félags Reykjavíkur opnar Norðurá en
ekki er vitað hver opnar Straumana.
Vertu klár
rir sumarið!
Loftkœiar og varmadœlur
fyrlr skrifstofur og tölvurými.
Verð fré 49.900 án vsk.
Dóttirin veiddi maríulaxinn
Theodóra Gríma Þrastardóttir meö maríulaxinn sinn úr
ánni Blackwater á írlandi. Æ fleiri íslendingar fara erlendis
til stangveiöa en það er kannski ekki oft sem fyrsti lax ís-
lenskra veiðimanna og -kvenna kemur þaöan.
Veiðimaður með fisk á í Minnivallarlæk
en ágæt veiði hefur verið þar.
eðurfarið síðustu daga hefur ekki
verið neitt til að hrópa húrra fyrir,
skítkalt dag eftir dag, en veiðimenn
láta sig hafa það.
„Þetta er bara skítakuldi og ansi
kalt héma við vatnið en þeir hörð-
ustu em að fá ágæta veiði," sagði
SKItkalt
við veiðlskapinn
- 8 stiga frost við Þingvallavatn
Einar Óskarsson, veiðivörður við Ell-
iðavatn, í gærdag er við spurðum um
stöðuna á svæðinu.
„Stærsti fiskurinn sem hefur veiðst
hjá okkur er 2,5 punda en það fer von-
andi að hlýna á allra næstu dögum.
Veiðimenn sem vom héma vom að
tala um að það hefði verið 8 stiga
frost við Þingvallavatn í fyrrinótt,"
sagði Einar ennfremur.
Blaðið hitti veiðimenn við lónið í
Hvolsá í Dölum um helgina. Það snjó-
aði þar um slóðir og hitastigið var að-
eins ein gráða.
„Þetta er aðvitað klikkun og ekk-
ert annað," sögðu veiðimennirnir og
héldu áfram að renna en veiðin var
lítil. Helgina áður veiddust á þessum
slóðum 28 fallegar bleikjur en þá var
tíðin önnur og hlýrri.
Það er sama sagan alls staðar; kalt,
og það er kannski eitthvað sem veiði-
menn vilja ekki viku eftir viku. Veiði-
maður sem var að koma af Skagaheiði
sagði kuldalegt þar um að litast og að
veiðin hefði ekki verið mikil. Einn og
einn fiskur veiddist þó.
ÍS-hÚSÍð 566 6000
'j'mj
URVALIÐ
laugard. 12-16 og sunnud. kl. 13-17
TANGARHÖFÐA 1 ■ SÍMI 557 7720 ■ vihurverk.is
■
i« QML H- flJB }
0
Mercedes-Benz
Einstakt tækifæri fyrir
bílaáhugamenn & safnara
Mercedes Benz 280 CE
í fullkomnu ástandi
Silfurgrár með svörtu leðri
Árgerð 1982
Einn eigandi í 20 ár - uppgerður 2002
6 strokka - 2,8 L - bein innspýting - 185 hestöfl
ek. 197 þkm. - óslitin þjónustusaga hjá Mercedes
Allir fáanlegir aukahlutir þess tíma
Verð kr. 1.950.000,-
rh
M A S T E R.
Master ehf_____________________________________________________________
Glæsibæ, Álfheimum 74, 104 Reykjavík, sími 540 2200, www.masterbill.is